Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

842. fundur
15. janúar 2018 kl. 16:00 - 17:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 37
Málsnúmer 1801007F
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 37
Málsnúmer 1801001F
Farið yfir fundargerð. Umræður um umferðaröryggisáætlun og aðgerðaráætlun umhverfisstefnu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Orkunýtingarstefna SASS 2017-2030
Málsnúmer 201712050
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
4.
Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs
Málsnúmer 201712006
Farið yfir stöðu mála og tekið aftur fyrir á næsta fundi.
5.
Fasteignagjöld: Ósk um niðurfellingu Hvannabraut 2
Málsnúmer 201801048
Bæjarráð samþykkti 11. maí 2015 að fella niður fasteignagjöld vegna ársins 2015 sem einskiptis aðgerð vegna ástands hússins. Liðin eru um 2 ár frá þeirri afgreiðslu og engin samskipti átt sér stað um framgang málsins á þeim tíma og gjöld vegna 2016 og 2017 því gjaldfallin. Bæjarráð hafnar beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda.
6.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Málsnúmer 201709104
Bæjarráð samþykkir skil á Netalofti.
7.
Austurhóll: Greiðslumark sauðfjár
Málsnúmer 201801049
Í ljósi stutts fyrirvara getur bæjarráð ekki samþykkt erindið.
8.
Hafnarbraut 25: ósk um afnot
Málsnúmer 201801025
Bæjarráð þakkar áhugann en ákvörðun um framtíð hússins hefur ekki verið tekin og unnið er að skipulagsvinnu á svæðinu. Umrætt hús mun ekki losna fyrr en eftir mitt ár 2018.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa Þorrablót Hafnar 2018
Málsnúmer 201712055
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Þorrablót Hafnar 2018
Málsnúmer 201801007
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Þorrablót Nesja og lónmanna 2018
Málsnúmer 201801006
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi þorrablót Suðusv/mýra
Málsnúmer 201801023
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
13.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Svínhólavegar
Málsnúmer 201712044
Lagt fram til kynningar.
14.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Neðribæjarvegar
Málsnúmer 201712043
Lagt fram til kynningar.