Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

154. fundur
6. maí 2010 kl. 16:00 - 21:00
í Ekru
Fundargerð ritaði:
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043

Bæjarráð Hornafjarðar 498. fundur, 6. apríl 2010.
Halldóra Bergljót óskaði eftir upplýsingum um framkvæmdir við Hof í Öræfum og það verklag sem haft var um málið. Einnig óskaði hún eftir nánari upplýsingum um samskipti við Karl Ó. Jónsson varðandi gjöf úr dánarbúi Svavars Guðnasonar.
Hjalti Þór ræddi um framkvæmdir á Hofi og sagði að athugasemd hafi komið frá húsafriðunarnefnd varðandi staðsetningu vegna Hofskirkju. Sagði hann að málið hafi farið í gegnum kerfið á eðlilega hátt. Forseti upplýsti um samskipti við Karl Ómar um málið.
Fundargerð samþykkt.


Bæjarráð Hornafjarðar 499. fundur, 15. apríl 2010.
Björn Ingi ræddi um tilboð í malbikun og það verð sem fyrirtækið er að bjóða einstaklingum sem er mun hærra en tilboð til sveitarfélagsins. Halldóra Bergljót ræddi einnig um malbikunarframkvæmdirnar, taldi hún þessar framkvæmdir bera merki kosninga, og hinn almenni borgar ekki getað nýtt sér þær sem skildi. Ræddi hún einnig um kostnað við viðbyggingu við Lönguhóla. Hjalti Þór svaraði. Árni Rúnar ræddi einnig um malbikunarframkvæmdir og þann verðmun sem er á. Halldóra Bergljót sagði að það verð sem einstaklingum er boðið er mun hærra en til stórnotenda. Hjalti Þór sagði að það verði farið yfir þessi mál með fyrirtækinu. Árni Rúnar, Björn Ingi og Halldóra Bergljót ræddu um málið.
Fundargerð samþykkt.


Bæjarráð Hornafjarðar 500. fundur, 26. apríl 2010.
Farið yfir feril grenndarkynningar vegna fyrirhugaðrar byggingar á Hofi 1-Austurhúsum. Kynnt voru málsgögn málsins. Einnig var fjallað um bókun byggingar- og skipulagsnefndar frá 21.04.2010 þar sem nefndin fjallaði um athugasemdir sem bárust.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi grenndarkynning með þeim kvöðum sem fram kemur í bókun byggingar- og skipulagsnefndar, að trjáplöntur verði gróðursettar sunnan og vestan við fyrirhugaða byggingu til að framkvæmdin falli sem best í umhverfi sitt. Jafnframt beinir bæjarstjórn Hornafjarðar þeim eindregnu tilmælum til landeigenda á Hofi að vinna deiliskipulag fyrir jörðina og móta þannig stefnu um frekari uppbyggingu mannvirkja á Hofi.
Sigurlaug þakkar íbúum sveitarfélagins fyrir átak í flokkun á sorpi. Ræddi hún um enn meiri flokkun á plasti. Einnig ræddi hún um verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.
Fundargerð samþykkt.


Bæjarráð Hornafjarðar 501. fundur, 3. maí 2010.
Halldóra Bergljót ræddi um plan við íþróttahús sem er viðbót og plan við Humarhöfnina. Spyr hún hvort ekki eigi að ganga frá því svæði líka. Einnig ræddi hún um niðurstöðu samræmdra könnunarprófa í Grunnskóla Hornafjarðar. Ræddi hún um starfsemi leikskólana og spyr hver taki ákvörðun um hve leikskólapláss séu mörg. Hjalti Þór hrósar ferðaþjónustufyrirtækjum hér í sveitarfélaginu varðandi uppbyggingu og sagði hann að ef ætti að gera breytingar í leikskólamálum þurfi að undirbúa þær vel. Sigurlaug ræddi einnig um umhverfi ferðaþjónustunnar. Árni Rúnar ræddi um leikskólamál og sagði að fara þurfi í endurskoðun á leikskólamálum. Halldóra Bergljót sagði að það þurfi að fara yfir leikskólamálin heilstætt. Ræddi hún um að öllum starfsmönnum Ísnets hafi verið sagt upp taldi hún það mjög alvarlegt mál. Hjalti Þór sagði að málefni Ísnets væru á viðkvæmu stigi. Árni Rúnar tekur undir áhyggjur Halldóru Berljótu varðandi Ísnet og sagði hann að atvinnumálin væru afar mikilvæg fyrir sveitarfélagið.
Fundargerð samþykkt.


Bæjarstjórn Hornafjarðar 153. fundur, 8. apríl 2010, áður samþykkt.
2.
Ráðning skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201005021
Reynir og Árni víkja af fundi við afgreiðslu málsins. Gunnar Ingi Valgeirsson sat fundinn undir þessum lið.

Hjalti Þór fylgir málinu úr hlaði og þakkar Þorvaldi Viktorssyni fyrir vel unnin störf. Einnig þakkar hann Guðmundi Inga Sigbjörnssynir sem hætti sem skólastjóri sl. haust fyrir vel unnin störf.
Ræddi hann um ferlið sem viðhaft var við undirbúning að ráðningu nýs skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar og gerir það að tillögu sinni að Hulda Laxdal Hauksdóttir verði ráðin sem skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar

Bókun vegna ráðningar skólastjóra
Við undirrituð bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokks styðjum ráðningu Huldu Laxdal Hauksdóttur í starf skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar. Við viljum samt ítreka þá skoðun okkar að farsælla hefði verið fyrir grunnskólann sem stofnun að ráðinn hefði verið einn skólastjóri og einn aðstoðarskólastjóri og að stöðurnar hefðu verið auglýstar eins og bókun sem lögð var fram í mars sl. sagði til um.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Björn Ingi Jónsson

Forseti bar tillögu bæjarstjóra upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.
3.
Ársreikningar 2009 - fyrri umræða
Málsnúmer 201003123
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningum úr hlaði. Kom fram í máli hans að afgangur af rekstri væri alls 128 m.kr. í sveitarsjóði og 144 m.kr. í samanteknum reikningsskilum. Veltufé frá rekstri væri 238 m.kr. í sveitarsjóði og 310 m.kr. í samanteknum reikningsskilum. Framkvæmdir voru upp á 352 m.kr. í sveitarsjóði og 423 m.kr. í samanteknum reikningsskilum. Langtímalán voru greidd niður um 104 m.kr. í sveitarsjóði og 149 m.kr. í samanteknum reikningsskilum. Ein athugasemd kom fram í endurskoðunarskýrslu er varðaði að ekki er til skrifleg staðfest stefna um ávöxtun handbærs fjár en eins og stendur í skýrslunni er tillögur um breytingu á ávöxtun fjárins borin undir bæjarráð. Í endurskoðunarskýrslu segir að allar kennitölur í rekstri sýni traustan og góða rekstur. Að endingu gerði bæjarstjóri grein fyrir þróun fjármála á síðustu árum. Kom m.a. fram að tekjur hafi aukist mikið á árunum 2002-2007 en dregist mikið saman á árunum 2008 og 2009. Helgast það fyrst og síðast af samdrætti tekna úr jöfnunarsjóði. Gjöldin hafa minkað á verðlagi ársins 2009 frá því að vera um 1400 m.kr. árið 2002 í að vera um 1.250 m.kr. árið 2009. Sterk staða sveitarsjóðs stafar því af tvennu, hækkandi tekjum sem leiddi til sterkrar lausafjárstöðu allt til ársins 2007 og að gjöld hafa lækkað stöðugt.
Bæjarstjóri þakkar bæjarstjórn, framkvæmdastjórum, forstöðumönnum og starfsfólki fyrir gott samstarf og leggur til að ársreikningnum sé vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Björn Ingi ræddi um jöfnunarsjóð og þróun á tekjum frá árinu 2002. Taldi mikilvægt að þegar tekjur minka verði að skoða reksturinn betur.
Björn Ingi lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd sjálfstæðismanna:
Um leið og við lýsum ánægju með góða stöðu sveitarfélagsins langar okkur að benda á nokkur atriði.
Eins og fram kemur í ársreikningi hefur handbært fé lækkað um 285,3 milljónir. Og með þessu áframhaldi verður allt eigið fé sveitarfélagsins uppurið á næstu 2 til 3 árum.
Við bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokks teljum að sveitarfélagið hefði þurft að hagræða meira í rekstri með það að markmiði að geta farið í fleiri framkvæmdir nú þegar lægð er í atvinnulífi í landinu. Við teljum að hægt hefði verið að hagræða í rekstrinum án þess að komið hefði til uppsagnar einhverra starfmanna sveitarfélagsins.
Það er ástæða til að fagna góðri afkomu hafnarsjóðs en hún er jákvæð um 35,6 milljónir sem gefur okkur hugmyndir um umfang starfsseminnar og hversu mikil lífæð höfnin er fyrir samfélagið hér.
Einnig er afkoma HSSA mjög góð og er það gott dæmi um átak hvernig hægt er að hagræða með samstilltu átaki án þessa að segja þurfi upp starfsmönnum.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Björn Ingi Jónsson

Hjalti Þór sagði að sveitarfélagið hafi verið að skera niður í rekstri á undanförnum árum, ræddi hann einnig um Jöfnunarsjóð og sagði að hann væri til að jafna tekjur sveitarfélaga í landinu. Björn Ingi benti á að Jöfnunarsjóður væri stór hlutur að skatttekjum og ef hann minkar þá hefur það áhrif á reksturinn. Árni Rúnar ræddi um hlutfall Jöfnunarsjóðs af skatttekjum, sagði hann það ekki skipta máli hvaðan peningarnir koma heldur hvernig farið sé með þá.
Forseti þakkar bæjarstjórn, bæjarstjóra og starfsfólki fyrir góðan ársreikning. Forseti bar upp tillögu um að vísa ársreikningum til síðari umræðu. Samþykkt samhljóða.
4.
Fjölskyldustefna Hornafjarðar
Málsnúmer 200709065
Elín Magnúsdóttir fylgdi stefnunni úr hlaði, gerði grein fyrir störfum hennar og helstu niðurstöðum. Sagði hún meðal annars að stefnan væri hugsuð sem verkfæri fyrir sveitarstjórn til að móta stefnu í málefnum fjölskyldunnar reglulega og setja af stað verkefni hvort sem litið er til lengri eða skemmri tíma. Stefnan var mótuð og unnin með þátttöku allra framboða í sveitarstjórn. Óskað var eftir áliti íbúa, stofnanna sveitarfélagsins og ýmissa hagsmunaaðila. Stefnan inniheldur fjölbreytt verkefni sem við koma fjölskyldunni. Hverju verkefni er síðan falin ábyrgðaraðili í formi nefndar eða ráðs sem tengist viðkomandi málaflokki beint. Bæjarráð Hornafjarðar ber þó ávallt ábyrgð á stefnunni og innihaldi hennar. Stefnunni verður síðan fylgt eftir og haldið lifandi með endurskoðun og endurútgáfu þegar við á. Skipaður verður starfshópur sem sér til þess að stefnunni sé fylgt eftir og hún uppfærð eftir þörfum.
Matthildur Ásmundardóttir ræddi fjölskyldustefnu og gerði m.a. grein fyrir samráði við gerð hennar og efnisatriðum.
Halldóra Bergljót sagði að stefnan væri ágætt yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu en taldi að ekki væru margt nýtt sem þar kæmi fram. Ræddi hún einnig skilgreiningu á hugtakinu fjölskylda. Taldi hún mikilvægt að skilgreina einn ábyrgðaraðila um framkvæmd einstakra aðila en ekki marga. Einnig spurði hún um kostnað við einstakar framkvæmdir. Ræddi um að eftirlit og viðhald væri ábótavant á leikvöllum sveitarfélagsins sem og forvarnir. Matthildur benti á að fjölskylduráð félagsmálaráðuneytisins skilgreinir fjölskyldunni eins og kemur fram í stefunni ekki stýrihópurinn, benti hún á að öll framboð tóku þátt í vinnunni og engar athugasemdir voru við framlagningu hennar. Björn Ingi ræddi um hvað er hlutverk sveitarfélagsins og hvað ekki. Árni Rúnar tóku til máls um stefnuna og sagði að þessi stefna væri fyrst og fremst leiðarljós til bæjarstjórnar. Sigurlaug þakkar stýrihópnum fyrir vinnuna og sagði að stefnan muni nýtast inn í aðrar stefnur sveitarfélagsins. Hjalti Þór tekur undir með Sigurlaugu og ræddi um forvarnir, hann telur að stefnan sé gott innlegg og þakkar hann starfshópnum fyrir vel unnin störf. Halldóra Bergljót ræddi um að mikilvægt væri að kostnaðarmeta stefnuna. Taldi hún mikilvægt að einn aðili bæri ábyrgð á hverju verkefni en ekki margir. Árni Rúnar vænti þess að þeim áherslum sem komu fram í máli Halldóru Bergljótu hafi verið komið á framfæri við fulltrúa sjálfstæðisflokksins í stýrihópnum.
Forseti bar stefnuna upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða. Halldóra Bergljót gerir grein fyrir atkvæði sínu.
5.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp - fyrri umræða
Málsnúmer 200806025
Árni Rúnar fylgdi breytingum á samþykktum um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp úr hlaði. Sagði að helstu efnislegu breytingarnar vörðuðu breytingar á ræðutíma, upptökur á fundum bæjarstjórnar, ný grein væru sett um hvernig starfsmenn skulu viðhafa samráð við undirbúning ákvarðanatöku hjá nefndum sveitarfélagsins og gerð er tillaga að breyttri nefndaskipan. Breytingar á ræðutíma fela í sér að umræður um fundargerðir er ræðutími takmarkaður við fimmtán mínútur í fyrri ræðu og tíu mínútur í síðari ræðu en við umræður um mál sem eru sérstakur liður á dagskrá bæjarstjórnar má ræðutími vera allt að 30 mínútur. Ræðutími í síðari ræðu má vera allt að 10 mínútur, hið sama gildir um þriðju ræðu framsögumanns og síðari ræður bæjarstjóra. Við umræður undir liðnum fyrirspurnir má ræða standa yfir í allt að tvær mínútur. Við síðari umræðu um fjárhagsáætlun og aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar skal ræðutími vera óbundinn. Hin nýja grein um samráð við ákvarðanatöku undirstrikar að í störfum skulu starfsmenn leitast við að viðhafa opna og gegnsæja stjórnsýsluhætti og leita eftir samráði við almenning og hagsmunaaðila þegar aðstæður leyfa. Sömuleiðis skulu nefndir sveitarfélagsins leita eftir víðtæku samráði við almenning og hagsmunaaðila áður en stefnumótun er breytt, ákvarðanir um veigamikil mál eru tekin eða annað er varðað getur hag almennings og hagsmunaaðila í veigamiklum atriðum. Þetta samráð getur eftir atvikum verið í forma óska um umsagnir um mál, borgarafundi, skoðanakannanir eða ósk um að aðilar mæti á fundi nefndar. nefndaskipa breytist talsvert. Þá er gerð tillaga um að nefndaskipan breytist þannig að umhverfisnefnd og byggingar- og skipulagsnefnd eru sameinaðar í eina nefnd undir heitinu umhverfis- og skipulagsnefnd, skólanefnd heitir eftirleiðis skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og tekur þar með yfir æskulýðs- og tómstundamál í heild sinni en til skamms tíma voru tómstundamálin vistuð undir hatti menningar- og tómstundamála, atvinnu- og menningarmál eru sameinuð undir heiti atvinnu- og menningarmálanefndar, félagsmálaráð tekur yfir hlutverk húsnæðisnefndar, þá er heiti Heilbrigðis- og öldrunnaráðs breytt í stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands í samræmi við hafnarstjórn og Hafnarstjórn verður óbreytt. Þakkar hann bæjarstjóra, bæjarráði og öðrum sem koma að þessu mál fyrir starfið.
Forseti lagði til að samþykktum um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp sveitarfélagsins verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða
6.
Samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu Hornafirði - síðari umræða
Málsnúmer 200705034
Bæjarstjóri gerði grein fyrir athugasemdum sem borist hafa og þeim breytingum sem gerðar eru á milli umræðna.
Forseti bar samþykktina undir atkvæði.
Samþykkt samhljóða.
7.
SAMÞYKKT um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands
Málsnúmer 200905043
Sigurlaug Gissurardóttir fylgdi málinu úr hlaði og sagði um mikilvæga samþykkt væri að ræða. Í samþykktinni segir m.a. að óheimilt er að skilja eftir á víðavangi, flytja, dreifa eða geyma lausamuni á þann hátt að valdið geti slysum, mengun eða lýti í umhverfinu. Tæki og hluti sem ekki eru í almennri eða stöðugri notkun skal geyma þannig að nágrannar og vegfarendur hafi ekki ama af. Í samþykktum er jafnframt kveðið á um hverju sé heimilt að fjarlæga lausamuni á kostnað og ábyrgð eigenda og hvernig aðdragandi að slíkri aðgerð þurfi að vera.
Björn Ingi kom með ábendingu um nafn sveitarfélagsins.
Forseti bar samþykktina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum - aðalskipulag - seinn umræða
Málsnúmer 200912034
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði, engar athugasemdir bárust og hefur byggingar- og skipulagsnefnd samþykkt að aðalskipulagið öðlist gildi óbreytt frá auglýsingu.
Aðalskipulag fyrir Lambleiksstaði samþykkt samhljóða
9.
Fyrirspurnir
Málsnúmer 200901107
Engar.