Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

162. fundur
2. desember 2010 kl. 16:00 - 17:00
í Nýheimum
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
2.
Fundargerð bæjarráðs 520. fundur, 25. október 2010
Málsnúmer 201011066
Guðrún Ingimundardóttir fjallaði um úrgangsmál. Hvatti hún til þess að heimilum yrði kynnt þau úrræði sem þeim bjóðast í stærð sorpíláta.
Hjalti Þór fjallaði um yfirbreiðslu sundlaugar og um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs.
Björn Ingi ræddi um yfirbreiðslu sundlaugar. Sagði mikilvægt að leitað verði leiða til að draga úr kostnaði við rekstur sundlaugar. Þá fjallaði hann einnig um samstarf sveitarfélagsins við Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og mikilvægi þess að unnið verði markvist að uppbyggingu atvinnumála.
Hjalti fjallað um atvinnumál.
Reynir Arnarsson fjallaði um atvinnumál og um jákvæðar fréttir sem bárust í síðustu viku um uppbyggingu atvinnustarfsemi í fullvinnslu sjávarafurða.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð bæjarráðs 521. fundur, 15. nóvember 2010
Málsnúmer 201011067
Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð bæjarráðs 522. fundur, 22. nóvember 2010
Málsnúmer 201011068
Hjalti Þór fjallaði um deiliskipulag við Jökulárlón, fór yfir þá vinnu sem fram hefur farið í málinu og það ferli sem framundan er í málinu.
Björn Ingi fjallaði um deiliskipulag við Jökulsárlón. Þá fjallaði hann einnig um samstarf við Markaðsstofu Suðurlands.
Fundargerð samþykkt.
5.
Fundargerð bæjarráðs 523. fundur, 29. nóvember 2010.
Málsnúmer 201011069
Fundargerð samþykkt.
6.
Fundargerð bæjarstjórnar 161. fundur, fundargerð áður samþykkt.
Málsnúmer 201011074
Til kynningar.
7.
Ákvörðun um útsvarsprósentu 2011
Málsnúmer 201007005
Hjalti gerði grein fyrir málinu og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um að nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.

Forseti bar bókun upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.
8.
Atvinnumál - minnisblað HÞVog bókun um málið frá 521. fundi bæjarráðs
Málsnúmer 201011017
Haukur lagði fram minnisblað bæjarstjóra dags. 11/11 2010.Guðrún telur að allir styrkir sveitarfélagsins til atvinnumála verði að vera vel skilgreindir.Bæjarráð gerir það að tillögu sinni að endanleg úrfærsla á verkefnunum verði háð samþykki bæjarráðs.Björn Ingi telur að þetta mál eigi að fara fyrir bæjarstjórn og einnig sagði hann að það þurfi að fara vel yfir reglur og úthlutun Atvinnu- og rannsóknasjóðs.Bæjarráð samþykkir að efla Atvinnu- og rannsóknasjóð sveitarfélagsins um 14. m.kr. Samhliða fari fram endurskoðun á úthlutunarreglum sjósins. Að öðru leiti vísar bæjarráð minnisblaðinu til áframhaldandi vinnu.
Kristján Guðnason lagði fram eftirfarandi tillögu um ráðstöfun á 24 m.kr. af aukaframlagi jöfnunarsjóðs til atvinnutengdra verkefna:

?
14 m.kr. verður varið í að styrkja atvinnu- og rannsóknasjóð sveitarfélagsins.
?
3 m.kr.verði varið í markaðs- og kynningarstarf. Það verkefni verður mótað með Ríki Vatnajökuls og endanleg útfærsla á því háð samþykki bæjarráðs.
?
2 m.kr. verður varið í að efla handverkstæði í samvinn við handverksfólk, hönnuði, framhaldsskólann og grunnskólann.
?
2 m.kr. verði varið til kaupa á ýmsum búnaði til fjallaferða, s.s. brodda, ísaxa, lína, rötunarbúnaðar. Verkefnið verði unnið með Framhaldsskólanum og björgunarfélaginu.
?
2 m.kr. verði varið í rannsóknir á vegum Háskólasetursins á Hornafirði.
?
1 m.kr. í að setja upp gönguskilti við strandlengjuna.

Björn Ingi fjallaði um tillöguna og ræddi reglur atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
Guðrún Ingimundar fjallaði um tillöguna og sagði mikilvægt væri að ráðstafa fjármagninu með skýrum hætti þar sem verkáætlun liggi fyrir við úthlutun fjármagnsins.
Hjalti þakkaði þeim sem tóku til máls undir þessum lið og þeirri samstöðu sem var við vinnu tillögunnar.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.
9.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar borist.