Bæjarstjórn Hornafjarðar
173. fundur
3. nóvember 2011
kl.
16:15
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Forseti
Reynir Arnarson
1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir
aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 561
Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
2.
bæjarráð Hornafjarðar - 562
Árni Rúnar ræddi liði 6 og 7. Las hann upp eftirfarandi bókun:
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar ítrekar bókun sína undir 6. lið fundargerðar bæjarráðs frá 17. október 2011. Ótækt er að bæjarstjórn Hornafjarðar samþykki framkvæmdir við húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar á næsta fjárhagsári án þess að fyrir liggi hversu margir árgangar verða staðsettir í húsnæðinu þar sem framkvæmdirnar eru fyrirhugaðar. Einnig harmar bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar að meirihluti bæjarstjórnar Hornafjarðar hefur engan áhuga á að nýta þetta tækifæri til að leita hagræðingar í rekstri grunnskólans.
Ásgerður ræddi lið 6. og las upp eftirfarandi bókun meirihlutans er varðar samráð um framkvæmdir við Heppuskóla.
Meirihluti bæjarstjórnar leggur áherslu á að við undirbúnings vinnu við endurbætur í Heppuskóla var haft viðamikið samráð. skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fór með málið en þar eiga fulltrúar allra framboða sæti auk þess eiga foreldrar, stjórnendur og kennarar áheyrnarfulltrúa. Málið hefur auk þess verið rætt í skólasamfélaginu, í skólaráði þar sem bæði nemendur og foreldrar eiga fulltrúa. Foreldrum gafst tækifæri á að koma með ábendingar og tillögur í byrjun ferlisins sl. haust og hafa áheyrnarfulltrúar þeirra í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd komið að vinnunni með okkur. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun byggist á markmiði meirihlutans í bæjarstjórn að dreifa valdi og hafa samráð um þau verkefni sem ráðist er í.
Ásgerður las upp bókun meirihlutans um bekkjadeildir innan skólans.
Meirihluti bæjarstjórnar bendir á að ekki er pláss í Hafnarskóla skólaárið 2012-2013 fyrir 7. bekk. Þar af leiðandi er málið ekki á dagskrá skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Hins vegar útilokar bæjarstjórn Hornafjarðar ekki breytingar á skipulagi Grunnskóla Hornafjarðar í framtíðinni ef aðstæður kalla á og rök hnígi að breytingum.
Ásgerður las upp eftirfarandi bókun meirihlutans um endurbætur á Heppuskóla
Meirihluti bæjarstjórnar lagði frá upphafi kjörtímabilsins mikla áherslu á gagngerar endurbætur í Heppuskóla. Þessu til marks var á fyrstu fundum skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar strax hafist handa við undirbúning framkvæmdanna og meðal annars farið í skoðunarferð um húsið. Það ætti öllum að vera ljóst að framkvæmdir innan hús í Heppuskóla eru löngu tímabærar. Þær framkvæmdir munu þjóna tilgangi sínum til lengri framtíðar því Heppuskóli mun vera annað af tveimur húsum sem mynda kjarnann í starfi barna á aldrinum 6-16 ára í sveitarfélaginu.
Árni ræddi skólamál og las upp eftirfarandi bókun.
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar harmar þá staðreyndafölsun sem fram kemur í bókun meirihluta bæjarstjórnar um 7. bekk. Ljóst er að nú þegar er nægjanlegt pláss í Hafnarskóla fyrir 7. bekk ef vilji væri til staðar af hálfu meirihlutans til að skoða málið. Af einhverjum ástæðum er sá vilji ekki fyrir hendi.

3.
bæjarráð Hornafjarðar - 563
Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
4.
bæjarráð Hornafjarðar - 564
Hjalti ræddi málefni hreindýra og landeigenda. Lagði hann til eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á að málefni hreindýra verði bæði nálgast út frá velferð þeirra og hagsmunum bænda. Mikill ágangur hefur verið á ræktað land og álag á girðingar því mikið. Ljóst er að hlutaðeigandi stofnanir verði að vinna með bændum að úrlausn þessara mála, til að koma í veg fyrir tjón bænda og tryggja um leið velferð dýranna. Þá harmar bæjarstjórn Hornafjarðar þá yfirborðskenndu og einhliða umfjöllun sem málið hefur fengið.
Hjalti ræddi einnig um HSSA
Árni Rúnar ræddi málefni hreindýra og landeigenda og sagðist styðja bókunina. Árni Rúnar ræddi einnig málefni HSSA út frá þjónustusamningi.
Reynir ræddi málefni HSSA.
Hjalti ræddi málefni HSSA.
Árni Rúnar ræddi málefni HSSA.
Reynir ræddi málefni HSSA.
Árni Rúnar ræddi málefni HSSA.
Hjalti ræddi málefni HSSA.
Árni Rúnar ræddi málefni HSSA.
Forseti bar bókun bæjarstjóra upp til atkvæðis. Samþykkt samhljóða

5.
Fjárhagsáætlun 2012 - fyrri umræða
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og 10 ára áætlun. Björn Ingi ræddi fjárhagsáætlun 2012 og las upp eftirfarandi bókun.
Nýjar reglur um fjármál sveitarfélaga voru settar til að gera fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna markvissari. Það verður að teljast til bóta að breyta hugsun og framkvæmd í fjármálum Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem áætlanir hafa ekki verið nógu nákvæmar undanfarin ár. Með nýjum fjármálareglum er ekki gert ráð fyrir endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Þrátt fyrir að fjárhagsáætlun síðasta árs hafi tekið mið af þessum nýju reglum var nauðsynlegt að endurskoða fjárhagsáætlun ársins 2011 og bæta við gjaldaliði málaflokka sem nam 72,7 milljónum króna, á móti kom hækkun tekna uppá 59 milljónir króna sem lagaði heildar niðurstöðu aðalsjóði svo nettórekstaraaukning varð einungis um 23 milljónir.
Í þeim drögum sem hér eru til umræðu er lagt til að farið verði í framkvæmdir uppá 334 milljónir. Þetta er 60 til 70 milljónum króna hærri upphæð en flest undanfarin ár og teljum við að hér sé verið að spenna bogann of hátt, því til að standa undir þessum framkvæmdum þarf að taka ný lán að upphæð 220 milljónir króna. Þrátt fyrir góð lánakjör þá hefur það sýnt sig að á þessum óvissutímum getur verið varasamt að auka við skuldir.
Nauðsynlegt er endurskoða stærsta málaflokk sveitarfélagsins, fræðslumál, því vart getur talist eðlilegt að hann taki ekki mið af þeirri íbúaþróun sem hér hefur verið. Fækkun barna í samfélaginu okkar er því miður staðreynd og ekkert sem styður að sú þróun breytist á næstunni. Við eigum að reyna eftir bestu getu að sníða okkur stakk eftir vexti.
Árni Rúnar ræddi fjárhagsáætlun 2012 og las upp eftirfarandi bókun.
Milli umræðna í bæjarstjórn Hornafjarðar um fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 leggur bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar áherslu á að skoðað verði hvort sveitarfélagið sé að spenna bogann of hátt í framkvæmdaáætlun. Það er mikilvægt í ljósi þeirra óvissutíma sem við lifum á. Einnig er mikilvægt að sérstaklega verði skoðað hvernig hagræða megi í fræðslumálum sveitarfélagsins. Það er stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og því mikilvægt að bæjarstjórn haldi vöku sinni í þeim málaflokki og leiti allra leiða til hagræðingar. Í þeim efnum ber fyrst að kanna hvort mögulegt er að hagræða í stjórnunarkostnaði leik - og grunnskóla án þess að það komi niður á þjónustu við nemendur
Reynir ræddi fjárhagsáætlun 2012, lagði hann til að fjárhagsáætluninni verði vísað til frekari vinnslu og síðari umræðu bæjarstjórnar.
Hjalti ræddi fjárhagsáætlun 2012.
Árni Rúnar ræddi fjárhagsáætlun 2012.
Björn Ingi ræddi fjárhagsáætlun 2012.
Forseti bæjarstjórnar leggur til að fjárhagsáætlun 2012 verði vísað til seinni umræðu, bæjarstjórn samþykkti samhljóða.

6.
Grenndarkynning vegna lóðarinnar Hagatún 16
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:
Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um afstaðna grenndarkynningu, breytingar á deiliskipulagi Hagatúni 16, þann 7. September. Tillagan er unnin af Erling Grosen Pedersen arkitekt. Grenndarkynningin var kynnt þann 20. júní og var umsagnarfrestur fjórar vikur, á þeim tíma bárust engar athugasendir. Tillaga var til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd 7. september 2011, og var vísað í lögformlegan feril. Grenndarkynningin var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd þann 5 október 2011. Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða

7.
Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:
Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um umsókn Gísla Gíslasonar Landslagsarkitekt á fundi sýnum þann 5. október, breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðis, Stafafellsfjöllum fyrirhönd landeiganda Brekku og Stafafells. Áður en að málið var tekið fyrir, höfðu Eldvarnareftirliti Austur- skaftafellssýslu, Heilbrigðiseftirliti Austurlands og yfirmaður umhverfis- og skipulags farið yfir skipulag svæðisins og gert athugasendir við nokkur atriði er varða fráveitur, aðkomu slökkviliðs og við almenn atriði. Að loknum breytingum til samræmis við athugasendir tók umhverfis- og skipulagsnefnd málið til umfjöllunar og afgreiðslu. Umsókn var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd þann 5 október 2011. Lagt er til að breyting á deiliskipulaginu fari formlegt ferli
Bæjarstjórn vísar málinu til seinni umræðu

8.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar