Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

198. fundur
12. desember 2013 kl. 16:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir 1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Gunnhildur Imsland 2. varamaður
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 650
Málsnúmer 1311001F
Guðrún tók til máls undir þriðja lið, ólögleg efnistaka á Breiðamerkursandi og spurði um hvernig málið stendur.
Kristján tók til máls undir áttunda lið lausaganga hreindýra í sveitarfélaginu.
Ásgerður upplýsti um að samband hafi verið haft við hlutaðeigandi aðila sem tók efnið og upplýsti að starfsmaður nefndarinnar hafi fundað með fulltrúum forsætisráðuneytisins og óbyggðarnefndar.
Upplýsti einnig að rannsókn á lögreglumáli meðferð hreindýra, lögregla hætti rannsókn.

Björn Ingi tók til máls undir sjötta lið, uppbygging á Jökulsárlóni, spurði hvort málið væri að leysast, einnig ræddi hann um ágang hreindýra sagði málið vera komið í erfiða umfjöllun fjölmiðla og hvernig væri hægt að koma að þessum málaflokki í framtíðinni.
Ásgerður greindi frá að ekkert hafi gerst en rétt væri að bæjarráð tæki málið upp á nýju ári. Sagðist hafa rætt hreindýramál við forstjóra Náttúrustofu Suðausturlands.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 651
Málsnúmer 1311005F
Lovísa Rósa tók til máls undir fimmta lið lýsti yfir áhyggjum vegna þeirra starfa sem hafa verið lögð niður eftir að fyrirtæki hafi lokað, það mun hafa áhrif á margar fjölskyldur og spurði um vinnu sem er hafin í samstarfi við SASS.
Ásgerður greindi frá að atvinnustefna er í mótun og ráðgjafi frá SASS var vann að málinu á Höfn í gær og sendir frá sér drög í næstu viku.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 652
Málsnúmer 1311009F
Fundargerð samþykkt samhlóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 653
Málsnúmer 1311014F
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 654
Málsnúmer 1312001F
Björn Ingi tók til máls undir fyrsta lið styrkumsóknir, sagði nauðsynlegt að ræða hvort Atvinnu og rannsóknarsjóð sveitarfélagisns í ljósi inngöngu í AÞS.
Ásgrímur tók undir orð Björns Inga og ræddi um sjötta lið og spurði hvernig gangi með uppbyggingu Gagnaveitu í sveitum.
Kristján tók einnig undir orð Björns Inga, taldi samt gott gott að hafa atvinnu-og rannsóknarsjóð á Hornafirði þar sem fólk sæki um í sjóðinn sem fyrsta skref og fari síðan í stóru sjóðina.
Björn Ingi greindi frá vinnu við gagnaveitu sagði það ganga þokkalega en veturinn hafi verið erfiður og tafið fyrir verkinu.
Ásgerður greindi frá reglum Atvinnu-og rannsókarsjóðs og sagði gott að fara í endurskoðun á sjóðnum þegar úthlutun fyrir árið 2014 hefur farið fram.
Lovísa Rósa tók til máls undir sjötta lið, Gagnaveita spurði um næstu skref fyrir Nes og Lón. Ásgerður sagði það ekki hafa verið ákveðið en samkvæmt Búnaðarstefnu sveitarfélagsins er stefnan að bæta fjarskipti í dreifbýli.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 197
Málsnúmer 1310006F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Álagningareglur 2014
Málsnúmer 201310062
Bæjarstjóri lagði til hækkun útsvarshlutfalls í 14,52% með fyrirvara um að frumvarp innanríkisráðherra um hækkun hámarksútsvars verði að lögum. Útsvar hækkar þá um 0,04%, úr 14,48% í 14,52%. Gert er ráð fyrir að álagningarhlutfall tekjuskatts lækki um samsvarandi hlutfall þannig að ekki verði um heildarhækkun tekjuskatts og útsvars að ræða. Þessar breytingar eru í samræmi við efni viðauka sem gerður hefur verið við samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 23. nóvember 2010 um tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.
Álagningarreglur 2014.
Útsvar verður 14,52 % í stað 14,48%.
Forseti bar álagningareglur upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Fjárhagsáætlun 2014 - síðari umræða
Málsnúmer 201309012
Ásgerður fór yfir og kynnti fjárhagsáætlun 2014.
Ásgerður las upp bókun meirihlutans:
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur verið unnin í góðri samvinnu kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja og bæta þjónustu við íbúa sveitarfélagins og halda álögum í jafnvægi eins og kostur er. Helsta breyting sem gerð verður á gjaldskrá sveitarfélagsins er vegna sorphirðu og sorpeyðingar. Þar sem tveggja tunnu kerfi hefur verið tekið upp í þéttbýli breytist samsetning gjaldaliða; sorpeyðingargjald lækkar en á móti kemur hreinsigjald fyrir flokkað sorp og flutningsgjald. Stefnt er að innleiðingu tveggja tunnu kerfis í dreifbýli árið 2014. Í framkvæmdum er áhersla lögð á framkvæmdir við fráveitu og önnur umhverfismál ss. götur og gangstéttir,bætta aðstöðu og tæki í þjónustumiðstöð meðal annars vegna breytinga á sorphirðu. Lögð er til fjárfesting í húsnæði sem nú hýsir list- og verkgreinakennslu auk annars starfs í skapandi greinum. Á milli umræðna var hækkuð fjárhæð í fjárfestingu í gagnaveitu til að ljúka áföngum sem komnir eru til framkvæmda í bættu fjarskiptasambandi í sveitum.

Björn Ingi las upp bókun sjálfstæðismanna:
Bókun við afgreiðslu á fjárhagsáætlun fyrir árið 2014
Fjárhagsáætlun er mikilvægasta stýritæki við rekstur sveitarfélagsins. Hún endurspeglar þá framtíðarsýn sem forysta sveitarfélagsins hefur.
Líkt og kom fram í fyrri umræðu um fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 er það skoðun okkar að sú framsetning sem fram kemur í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og þriggja ára áætlun sem henni fylgir gefi ekki rétta mynd af þeim raunveruleika sem búast megi við.
200 milljónir í varanlegar fjárfestingar áranna 2015 og 2016 er rangt í ljósi fjárfestinga síðustu tveggja kjörtímabila og gefi því ekki rétta mynd af fjárþörf sveitarfélagsins til næstu ára. Ef miðað er við fjárfestingar síðustu tveggja kjörtímabila má ætla að þörf sá á lántöku allt að 200 milljóna næstu árin til biðbótar við 200 milljónir sem fjárhagsáætlun áranna 2013 og 2014 gerir ráð fyrir. Handbært fé í árslok 2014 hefur ekki verð minna á síðustu 2 kjörtímabil og er í raun komið niður fyrir það sem verður að teljast ásættanlegt.
25 milljónir í handbært fé í árslok sem hefur ekki verið minna síðustu 2 kjörtímabil og fjárhagsáætlun sem gerir ráð fyrir föstum mánaðarlegum kostnaði upp á um 138 milljónir. Sú rýrnunar á sjóð sveitarfélagsins sem hér er nefnd má ætla að þörf verði á yfirdráttarláni einhver mánaðarmótin til fjármögnunar fasta kostnaðar. Yfirdráttur er dýrasta fjármögnun sem völ er á.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Umræður um framkvæmdir 2014-2016.´
Guðrún greindi frá atkvæði sínu, situr hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar.
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2014 sjá töflu undir lið 9.
Forseti bar fjárhagsáætlun upp til atkvæða samþykkt með fimm atkvæðum tveir sátu hjá.
9.
Þriggja ára áætlun 2015-2017 - síðari umræða
Málsnúmer 201310084
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2014 - 2017 eru eftirfarandi:



2014
2015
2016 2017
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
179.284
196.794
201.586
201.708
Skuldir í hlutfalli af tekjum
65,00%
61,74%
58,08%
54,01%
Framkvæmdir (m.kr.)
358.000
200.000
200.000
325.000
Framlegð (EBIDTAR) %
17,87%
18,81%
18,99%
18,99%
Veltufé frá rekstri (m.kr.)
346.002
371.212
378.665
382.713
Handbært fé í árslok (m.kr.)
24.736
86.674
151.569
90.825
Afborganir langtímalána (102.820)
(109.274)(113.770)(118.458)
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 100.000



Langtímalán við lánastofnanir 665.963
582.435
491.139
415.902
Langtímalán á hvern íbúa
305.487
267.172
225.293
190.780
Skatttekjur hvern íbúa
729.183
729.183
729.183
729.183

Forseti bar upp þriggja ára áætlun til atvkæða samþykkt með fjórum atkvæðum þrír sitja hjá.
10.
Endurskoðun á aðalskipulagi
Málsnúmer 200709059
Ásgrímur kynnti drög að endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við tillögu að nýju aðalskipulagi 2012-2030 athugasemdir Skipulagsstofnunar voru meðal annars:
Mælikvarðar sveitarfélagsuppdráttar, stærð, staðsetning og afmörkun svæða verði að vera skýrari. Ákvæði um yfirbragð byggða og uppbygging á bújörðum og ferðaþjónustu var æskilegt að skýra betur. Einnig voru gerðar smávægilegar athugasemdir við íbúðarsvæði, Faxeyrarhöfn, efnistöku, mat á áhrif Lónsheiðarganga, ásamt fleiri athugasemdum varðandi orðalag.
Breytingar á greinargerð voru gerðar í samræmi við fund umhverfis-og skipulagsnefndar nr. 55 þar sem umsögn Skipulagstofnunar var tekin fyrir.
Helstu breytingar á tillögu að nýju aðalskipulagi 2012-2030 eru: Bætt hefur verið við sveitarfélagsuppdráttum í stærri mælikvörðum sem sýna meginhluta sveitarfélagsins. Gerð hefur verið nánari grein fyrir stærð og afmörkun svæða. Kafli um yfirbragð byggðar endurskoðaður með tilliti til athugasemda Skipulagstofnunar.
Brugðist hefur verið við öðrum athugasemdum Skipulagstofnunar og leiðréttingar gerðar í samræmi við þær.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki aðalskipulagstillöguna með áorðnum breytingum og sendi hana í auglýsingaferli skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísi henni til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Árnanes 5. Deiliskipulag
Málsnúmer 201309014
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði greindi frá að skipulagstillagan hafi verið kynnt lögformlega skv. 40.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Engar athugasemdir bárust. Skipulagstofnun hefur fjallað um skipulagið og gerði ekki athugasemd við það.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Deiliskipulag Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 201311071
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði kynnti tillögu að nýju deiliskipulagi.
Sagði að markmið með gerð deiliskipulags frístundasvæðis er m.a. að þróa byggð sumarhúsa fremur á undirlendi þar sem hús falla vel að landi, skapa sem bestar aðstæður til útivistar.
Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögu að deiliskipulagi til bæjarstjórnar til fyrri umræðu, með fyrirvara um að í greinargerð verði bætt við:
Áður en farið verði í lokun á vegi milli lóða nr. 30 og 37 verði gerður varanlegur vegur að bústöðum innst á frístundarsvæðinu einnig verði tryggð aðgengileg gönguleið á sama stað.
Greinargerð hefur verið breytt að tilmælum umhverfis-og skipulagsnefndar. Kynningarfundur var haldinn 4. desember sl..
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og hún fari í lögformlegan ferli skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Lovísa Rósa vék af fundi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða með sex atkvæðum.
13.
Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Málsnúmer 201112005
Ásgrímur kynnti lýsingu að deiliskipulagi fyrir Holt á Mýrum. Kom fram að markmið með gerð deiliskipulags er að þróa byggð í samræmi við þær byggingar sem fyrir eru á skipulagssvæðinu, gert er ráð fyrir að útbúnar verði lóðir undir sex einbýlishús og tvö raðhús og bættri aðstöðu við félagsheimilið Holt.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsinguna og hún fari í lögformlegan ferli skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Deiliskipulag í Krossey
Málsnúmer 201304024
Ásgrímur og Reynir viku af fundi Arna Ósk Harðardóttir og Gunnhildur Imsland tóku sæti undir þessum lið. Kristján Guðnason tók við fundarstjórn.
Ásgerður kynnti tillögu deiliskipulagi Krossey. Kom fram að markmið með gerð deiliskipulags er að skilgreina umferð og atvinnusvæði skýrar, skapa forsendur til stækkunar lóða og tryggja öryggi vegfarenda. Skapa þarf umgjörð sem hæfir starfsemi á hafnarsvæði og tryggja öryggi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og hún fari í lögformlegan ferli skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Deiliskipulag Nónhamar á Hofi
Málsnúmer 201310088
Ásgrímur kynnti lýsingu að nýju deiliskipulagi. Kom fram að markmið með gerð deiliskipulagsins er að byggja upp ferðaþjónustu á svæðinu.
Umhverfis-og skipulagsnefnd vísaði lýsingu að deiliskipulagi til bæjarstjórnar til fyrri umræðu með fyrirvara um að texti í greinargerð verði lagfærður í samræmi við endurskoðun á aðalskipulagi sem er í vinnslu.
Kom fram að skipulagsráðgjafi hefur lagfært texta í greinargerð.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsinguna og hún fari í lögformlegan ferli skv. 1. mg. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
16.
Ósk um deiliskipulag vegna fyrirhugaðrar byggingar að Reynivöllum
Málsnúmer 201302014
Ásgrímur kynnti ósk um gerð deiliskipulags á svæðinu sagði umhverfis-og skipulagsnefnd hafa fjallað um erindið og benti. umsækjendum á að vinna að undirbúningi deiliskipulags á svæðinu í samræmi við endurskoðun aðalskipulags, byggingar þurfi að falli vel að landslagi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fara í gerð deiliskipulags á Reynivöllum en umsækjendum fari eftir tilmælum umhverfis og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
17.
Beiðni um staðfestingu á samningi og afsali um skipti sameignar Krossbæ
Málsnúmer 201310089
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemd við skipti sameignar Krossbæ og staðfestir samning og afsal sameignar Krossbæ Nesjum.sbr. samning þinglýstra eigenda dags. 2/10 12013.
Samþykkt samhljóða.
18.
Yfirlandskiptagerð á Skógeyjarsvæði í Hornafirði
Málsnúmer 201312006
Reynir lagði til að málinu yrði vísað til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
19.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201010079
Stjórn HSSA.
tephen Robert Johnson tekur sæti aðalmanns í stað Guðrúnar Ingimundardóttur.
Atvinnu-og menningarmálanefnd.
Guðrún Ingimundardóttir verður aðalmaður í stað Stephen Robert Jhonson.
Stephen Robert Johnson verður varamaður í stað Guðrúnar Ingimundardóttur.
20.
Frestun bæjarstjónarfundar fram í febrúar
Málsnúmer 201312014
Forseti bar upp tillögu um frestun bæjarstjórnarfunda fram í febrúar.
Samþykkt.
21.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir bárust.