Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

199. fundur
6. febrúar 2014 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 655
Málsnúmer 1312008F
Valdemar spurði um 11 lið lóðir undir atvinnuhúsnæði, spurði hvort sveitarfélagið sé tilbúð með deiliskipulag undir lóðir fyrir atvinnurekstur. Ásgerður greindi frá að til eru skipulagstillögur en þar er ekki gert ráð fyrir stórum lóðum en það er verið að vinna að málinu svo hægt sé að úthluta lóðum.
Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 656
Málsnúmer 1312010F
Guðrún spurði um 11 lið hvort staða aðalvarstjóra hefur verið lögð niður, hvernig fyrirkomulagið sé í dag og hvernig stefnan sé um embættið á Hornafirði hvort það eigi að tilheyra Autsur eða Suðurlandi.
Björn Ingi spurði um 1 lið fundargerð Hafnarstjórnar, aðgerðir vegna landbrots og veg út í Hvanney, hvar málið sé statt. Sagði mikilvægt að vegur út í Hvanney og út á suðurfjörur sé í lagi vegna öryggismála sjófarenda. Reynir upplýsti að hafnarstjórn hafi fundað 4. febrúar og ályktaði um að Siglingastofnun flýti aðgerðum.
Ásgerður upplýsti að fundur um frumvörp til breytinga á lögreglustjóra og sýslumannsembættum hafi verið á haldinn fyrr í vikunni á Hvolsvelli. Þar voru málin kynnt, ekki hafi verð gerð grein fyrir framhaldinu. Varðandi aðalvarðstjórastöðuna hafi hún ekki upplýsingar um breytingar á stöðunni þó hafi komið upplýsingar frá þingmanni nefndarinnar um eflingu löggæslu í dreifbýli að það gæti gerst.
Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 657
Málsnúmer 1312014F
Valdemar spurði um lið 11 styrkur frá Forsætisráðuneytinu v. endurbóta við Miklagarð hvort það væru verklagsreglur um hvernig fjármunum skuli varið.
Ásgrímur sagði að þakka mætti styrk til menningamála frá Forsætisráðuneytinu. Þá fagnaði hann að vinna að vegstæði við Hornafjarðarfljót er hafin.
Björn Ingi spurði um lið 2 um endurgreiðslu vegna minnkaveiðar og tók undir þakkir að vegastæði fyrir Hornafjarðarfljót er komið í vinnslu.
Guðrún spurði um lið 1 Akurey öryggismál, hver staðan á málinu sé.
Ásgerður greindi frá að starfsmaður eigi fund með Minjavernd á morgun vegna styrks sem ráðuneytið úthlutaði í desember v. Miklagarðs.
Ásgerður sagði ríkið greiða 50% af viðmiðunartaxta um minnkaveiðar en hún hafi ekki heildar upphæð í kollinum. Sagði starfsmenn vera að skoða kostnað við að bæta öryggismál við Akurey.
Fundargerð samþykkt.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 658
Málsnúmer 1401001F
Fundargerð samþykkt.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 659
Málsnúmer 1401004F
Fundargerð samþykkt.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 660
Málsnúmer 1401007F
Ásgerður benti á lið 2 nemendur Grunnskólans í Hofgarði fengu 1. verðlaun í verkefni Landsbyggðarvina og sendi þeim hamingjuóskir bæjarstjórnar.
Fundargerð samþykkt.
7.
Bæjarráð Hornafjarðar - 661
Málsnúmer 1401011F
Valdemar spurði um lið 9 urðun í Lóni, vort það væru komnar tölur um magntölur á sorpi eftir að Hornfirðingar byrjuðu að flokka.
Ásgrímur sagði ekki komnar tölur en í upphafi hafi verið of mikið af rusli í flokkaða efninu, en nú gangi vel að flokka og íbúar búnir að læra að flokka.
Fundargerð samþykkt.
8.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.