Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

200. fundur
6. mars 2014 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Valdemar Einarsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir 2. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjanrarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 662
Málsnúmer 1402001F
Kristján spurði bæjartjóra hvort eitthvað hafi gerst í málefnum Jökulsárlóns síðustu vikur. Ásgerður greindi frá að hún hafi átt fundi með Einari Birni eiganda Jökulsárlóns ehf og Baldri Gíslasyni formanns stjórnar Sameigendafélags Fells þar sem leitað var leiða til lausna. Hreyfing er á málum en óvíst hverju þær muni skila.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 663
Málsnúmer 1402004F
Valdemar spurði um fyrsta lið, fundargerð atvinnu-og menningamálanefndar, styrk sem sveitarfélagið fékk til viðhalds á Miklagarði.
Ásgerður greindi frá fundi forstöðumanns Hornafjarðarsafna með Minjastofnun, greindi frá að sérfræðingur muni koma og taka út og meta Miklagarð.
Björn Ingi sagði það þyrfti að kostnaðarmeta allt viðhald á Miklagarði og greina verkferla.
Reynir tók undir orð Björns Inga sagðiað það yrði gerður samningur við Minjastofnun áður en frekari skref verða stigin.
Ásgerður greindi frá að þegar umræddur sérfræðingur hefur tekið verkið út sé hægt að taka næsta skref og kosnaðarmeta verkið.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 664
Málsnúmer 1402006F
Guðrún spurði um sjöunda lið, framvinda verkefna Matís, hver staða þess sé.
Björn Ingi sagði um fyrsta mál undir fundargerð félagsmálanefndar, þar sem er verið að fjalla um reglur fyrir leikskóla á Hornafirði og þvingað val kom upp umræða um biðlista á leikskólum miklar barnafæðingar á árinu 2013 og útlitið sé gott fyrir ár fyrir árið 2014 hvað fæðingar varðar. Björn Ingi telur nauðsynlegt að taka þetta upp hér og óska þess að þetta verði fært inni í fundargerð.
Björn Ingi taldi nauðsynlegt að fara ofan í barnafjölda í árgöngum sem eru að komast á leikskólaaldur og einnig þeim sem eru á leikskólum nú. Telur hann fulla ástæðu til að fara ofan í og reikna út kostnað við rekstur leikskóla hér í Sveitarfélaginu og einnig hvernig dæmið myndi líta út ef farið yrði í t.d. að breyta öðru leikskólahúsnæðinu í 6 deilda leikskóla og með því sameina allan rekstur undir sama þak.
Fyrir rúmlega ári síðan þegar tekin var ákvörðun um viðbyggingu við Krakkakot taldi hann það ótímabært að byggja við Krakkakot heldur ætti að skoða þetta betur og hugsanlega ráðast frekar í framkvæmdir þannig að til yrði einn 6 deilda leikskóli.
Valdemar spurði um lið tvö, umhverfis og skipulalgsnefnd hann hafi óskað eftir tölum um urðun svo hægt sé að meta hvort það sé minnkun á sorpi.
Ásgerður greindi frá að Matís er með rekstur matarsmiðju á Höfn en það sé ekki sérfræðingur til vöruþróunar á staðnum en það sé hægt að fá sérfræðinga frá Matís til að sinna þeim sem hafi áhuga. Sagði stefnt að kynningu á þjónustu Matís á Nýheimadegi sem mun vera síðar í mars. Kom einnig fram að Ásgerður hafi átt fund með eigenda Heppu Matarhafnar með það í huga að eiga samstarf við fyrirtækið um uppbyggingu á þróunareldhúsi ekki reyndis grundvöllur fyirr samstarfi.
Ásgerður svaraði spurningu um gögn varðandi þróun árganga þá er sú vinna komin af stað og bæta þarf spurnignum Björns Inga í þá vinnu.
Unnið er að samantekt í sorpmálum.
Valdemar spurði hvort það væri komin tími til að endurvekja Frumuna, Ásgerður sagði Frumuna enn vera til en Matís er að meta stöðuna. Ýmsar hugmyndir eru um framtíð matarsmiðjunnar ein hugmynd er að deila sérfræðistarfsmanni með Háskólafélagi Suðurlands.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 665
Málsnúmer 1402010F
Valdemar spurði um lið þrjú deiliskipulag HSSA, sagði að það væri skynsamlegt að taka tillit til eigenda Hótelsins.
Einnig spurði hann sjöunda lið, Skotveiðifélagið og fagnaði að málefni þess sé að komast í höfn.
Áttundi liður lögreglan á Höfn sagði nauðsynlegt að lögreglumál ættu að vera tengd suður eins og felst stjórnsýslumál eru í dag.
Guðrún spurði um lið eitt, atvinnu og menningarmálanefnd, lán á verkum Svavars Guðnasonar til Hollands.
Ásgerður sagði að athugasemdarfrestur hafi verið lengdur varðandi deiliskipulag HSSA og gott að fá öll sjónarmið.
Skotveiðifélagið hafi handsalað land í Nesjum.
Sagðist hafa verið í samskiptum við Innanríkisráðuneytið varðandi rökstuðning fyrir breytingu á aðalvarðstjórastöðu á Höfn en ekki fengið skýr svör ennþá. Kom fram að ekkert er í hendi varðandi hvaða landshluta lögreglan tilheyrir í framtíðinni.
Sagði forstöðumann Hornafjarðarsafna vinna í að finna gögn um lán á verkum Svavars Guðnasonar.
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn fagni viððurkenningu Hornafjarðarsafna sem ábyrgðasafns.
Bæjarstjórn óskar Hornafjarðarsöfnum til hamingju með viðurkenningu ábyrgðarsafna.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 666
Málsnúmer 1402015F
Björn Ingi tók til máls undi lið tvö Hafnarstjórn, skoraði á ferðaþjónustuaðila að koma inn í starf með Höfninni í vinnu við markaðsetningu á Höfninni við fjölgun skemmtiferðarskipa.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 198
Málsnúmer 1311003F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 199
Málsnúmer 1401013F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
8.
Endurskoðun á aðalskipulagi
Málsnúmer 200709059
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og greindi frá vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030 sem hefur staðið yfir frá árinu 2007. Á þeim tíma var starfshópur skipaður um verkefnið og vann grunnvinnu endurskoðunarinnar. Tvær bæjarstjórnir hafa komið að málinu og það verið rætt í nefndarkerfi sveitarfélagsins. Einnig var haldinn íbúafundur með það að markmiði að afla upplýsinga og öðlast skilning á sjónarmiðum, hugmyndum og væntingum íbúa um stöðu og framtíðarþróun sveitarfélagsins.
Á 161. fundi sínum í lok árs 2010 samþykkti bæjarstjórn formlega að fara í vinnu við endurskoðun aðalskipulags og í framhaldinu hefur umhverfis-og skipulagsnefnd haldið utan um verkefnið ásamt skipulagsráðgjöfum hjá Glámu-Kím.
Megin markmið og áherslur með endurskoðun aðalskipulagsins voru:
Að efla byggð og landnotkun með áherslu á heilbrigði og öryggi þar sem efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar þarfir eru hafðar að leiðarljósi.
Skynsamleg og hagkvæm nýting lands og landsgæða, að tryggja vernd landslags, náttúru og menningarverðmæta og koma í veg fyrir spjöll og ofnýtingu.
Að almannahagsmunir ráði för við opinberar ákvarðanir.
Að stuðla að gegnsærri og opinni stjórnsýslu þar sem allir íbúar eigi kost á að koma skoðun sinni á framfæri.
Faglegan undirbúning mannvirkjagerðar.
Í auglýsingaferlinu bárust athugasemdir, brugðist hefur verið við þeim.
Eftirfarandi breytingar voru gerðar á tillögunni í umhverfis- og skipulagsnefnd í kjölfar athugasemda sem bárust eftir auglýsingu:
Mörk hafnarsvæðis og athafnasvæðis í Álaugarey breytast. Mörkum austan Álaugarvegar hnikað að Krosseyjarvegi. Austast í Álaugarey er skilgreint verslunar- og þjónustusvæði þar sem heimil verður verslun og ferðaþjónusta.
Mörkum íbúðarsvæðis á Júllatúni og svæðis fyrir þjónustustofnanir innan við það er hnikað lítillega.
Skilgreint verður íbúðasvæði við Holt á Mýrum í stað verslunar- og þjónustusvæðis í auglýstri tillögu og íbúðum fjölgað, það samrýmist betur áformum sveitarfélagsins um aðallandnotkun þar.
Viðmiðunarmörk fyrir fjölda gistirýma á Breiðabólstaðartorfu, í Hofi og í Svínafelli leiðrétt.
Heimild til uppbyggingar gistirýma á svæðum fyrir verslun og þjónustu á Fagurhólsmýri felld út.
Tveimur svæðum fyrir frístundabyggð bætt við; á Reyðará og Reynivöllum.
Verslunar og þjónustusvæði skilgreint á Uppsölum og heimild fyrir starfsemi ferðaþjónustu. Verslunar og þjónustusvæði á Breiðabólstað og Reynivöllum stækkuð og viðmið fyrir gistirýmafjölda hækkuð. Skv. athugasemd Vegagerðarinnar verður gerð grein fyrir nýrri brú á Skeiðará við hlið núverandi brúar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur í samvinnu við skipulagsráðgjafa unnið svör við athugasemdunum og verða þau send þeim sem gerðu athugasemdirnar. Einnig verða athugasemdir og svör aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri lagið til að bæjarstjórn geri svör umhverfis-og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt með fjórum atkvæðum þrír sátu hjá.
9.
Stefna í hafnarmálum 2014-
Málsnúmer 201307048
Reynir fyldi málinu úr hlaði sagði ákveðið hefði verið að búa til stefnu fyrir Hornafjarðarhöfn sem hefur ekki verið gert áður. Greindi frá að Stefán Ólafsson var ráðin til að stýra verkefninu. boðað var til opins fundar í Nýheimum þar sem grunnvinna að stefnu var mótuð í framhaldinu var stefnan unnin og hefur verið samþykkt í Hafnarstjórn og fjallað um hana í bæjarráði. lagði til að bæjarstjórn samþykki stefnu í hafnarmálum.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
10.
Fjárhagsáætlun HSSA 2014
Málsnúmer 201312018
Bæjarstjóri kynnti fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands sem samþykkt var í Stjórn HSSA þann 17.12.13.
Þar er fjárhagsáætlun samþykkt með 33.þúsund króna halla. Þann 30. janúar sl. var gefin út daggjaldareglugerð fyrir árið 2014 þar sem daggjöld fyrir hjúkrunar og dvalarrými hækka vegna hærri RAI stuðuls fyrir árið 2013. Þannig að tekjur stofnunarinnar verða hærri en gert er ráð fyrir í samþykktri fjárhagsáætlun að því gefnu að full nýting sé á rýmum.
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlun HSSA 2014.
Björn Ingi sagði það mætti fagna viðsnúningi á afkomu rekstrar frá fyrri drögum en fjárhagsáætlunin væru full seint til umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar upp tillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun HSSA samhljóða.
11.
Reglur um leikskóla Hornafjarðar 2014
Málsnúmer 201401021
Arna Ósk Harðardóttir fylgdi breytingum á reglum um leikskóla Hornafjarðar úr hlaði og gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á reglunum. Helstu breytingar á reglum um leikskóla Hornafjarðar eru:
Ef ekki er laust pláss á þeim leikskóla sem sótt er um sem fyrsta val býðst umsækjanda pláss á hinum leikskólanum sé laust þar, jafnframt mun barnið halda sæti sínu á biðlista sé þess óskað. Einnig er möguleiki fyrir foreldra að fá niðurfellingu á fæðisgjödlum ef barn er frá meira en tvær vikur.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um leikskóla Hornafjarðar.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
12.
Gjaldskrá embættis byggingar-og skipulagsfulltrúa
Málsnúmer 201312003
Bæjarstjóri sagði gjaldskrá embættis byggingar-og skipulagsfulltrúa hefur verið endurskoðuð hjá umhverfis-og skipulagsnefnd lögð er til breyting á útreikningum gatnagerðargjalda úr rúmmetrum í fermetra og breyta prósentum í samræmi við það. Töluverð lækkun verður á gatnagerðargjöldum á atvinnuhúsnæði frá núgildandi gjaldskrá sem var samþykkt í bæjarstjórn 7. mars 2013. Lagði er til að vegna galla í þeirri gjaldskrá gildi sú sem í dag er samþykkt fyrir þær framkvæmdir sem hófust frá 7. mars 2013.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
13.
Deiliskipulag í Krossey
Málsnúmer 201304024
Reynir vék af fundi undir þessum lið. Snæfríður sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarstóri fylgdi málinu úr hlaði sagði að umhverfis- og skipulagsnefnd hafi vísað tillögunni til samþykktar bæjarstjórnar.
Markmið með nýju deiliskipulagi er að skilgreina umferð og atvinnusvæði skýrar, skapa forsendur til stækkunar lóða og tryggja öryggi vegfarenda.
Lagði til að skipulagið yrði samþykkt.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
14.
Yfirlandskiptagerð á Skógeyjarsvæði í Hornafirði
Málsnúmer 201312006
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði sagði að umhverfis- og skipulagsnefnd hafi fjallað um erindið á fundi sínum og ekki gert athugasemd við skiptingu á landinu.
Lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við skiptingu á landinu og samþykki yfirlandskipti á Skógeyjarsvæði.
Björn Ingi benti á að ágreiningur er á milli ábúenda og jarðareigenda, lagði áherslu á að landeigandi gangi frá samningum við ábúanda.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
15.
Deiliskipulag við Drápskletta
Málsnúmer 201309020
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði sagði umhverfis-og skipulagsnefnd hafa fjallað um málið og vísað lýsingunni til bæjarstjórnar.
Greindi frá markmiðum með gerð lýsingar deiliskipulagsins:
Skilgreina og þróa opin svæði og útivistarsvæði, landbúnaðarsvæði, íþróttasvæði.
Skilgreina byggingareit og byggingamagn á óbyggðu athafnarsvæði.
Lagi til að bæjarstjórn samþykki framkomna lýsingu að deiliskipulagi.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
16.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar borist.