Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

204. fundur
10. júní 2014 kl. 17:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 675
Málsnúmer 1405009F
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 676
Málsnúmer 1405011F
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 677
Málsnúmer 1405013F
Ásgrímur tók til máls undir 1. lið og lýsti þeirri skoðun sinni að hefði átt að veita Ice Lagoon ehf stöðuleyfi á vesturbakka Jökulsárlóns.
Björn Ingi tók einnig til máls undir sama lið og sagði að farið hefði verið efitr settum reglum sveitarfélagsins um þjóðlendur við veitingu stöðuleyfis við Fjallsárlón og ýtrekaði mikilvægi þess að farið verði eftir lögum og reglum við alla meðferð skipulagsmála sveitarfélagins. Ásgrímur tók aftur til máls og sagðist vera sammála Birni Inga að mikilvægt að fara eftir lögum og reglum það hefði verið hægt að fara efitr sömu reglum við veitingu leyfis á vesturbakka Jökulsárlóns eins og notaðar voru á austurbakka Fjallsárlóns.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 202
Málsnúmer 1404007F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 203
Málsnúmer 1405014F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur HSSA
Málsnúmer 201405053
Ásgerður fylgdi málinu úr hlaði greindi frá að afkoma af rekstri stofnunarinnar á árinu 2013 hefði verið jákvæð um 4.5. millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Veltufjármunir eru samtals 57.7 milj.kr. skammtímaskuldir 60.3 millj. kr. ójafnað tap 2.6. millj. sem var 7.1 millj. 2012 og hefur því lækkað sem nemur jákvæðri stöðu rekstarinns.
Ásgerður lagði til að bæjarstjórn samþykki ársreikning HSSA.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Umsóknir um stöðu Framkvæmda- og umhverfisstjóra
Málsnúmer 201405025
Ásgerður greindi frá ráðningu framkvæmda-og umhverfisstjóra sem samþykkt hafi veirð af bæjarráði óskaði hún eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnanda er að ræða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Staðgengill bæjarstjóra.
Málsnúmer 201406019
Ásgerður gerði grein fyrir að erindi hafi borist frá oddvita Sjálfstæðisflokksins þar sem hann óskar eftir að bæjarstjórn veiti honum heimild til að taka við stöðu staðgengils bæjarstjóra. Einnig greindi hún frá að Sjálfstæðisflokkurinn og 3. framboðið séu að ljúka viðræðum um myndun nýs meirihluta. Einnig óskaði oddviti eftir heimild til að auglýsa stöðu bæjarstjóra fyrir 15. júní. Ásgerður lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagt erindi og gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Ásgrímur gerði grein fyir atkvæði sínu sagðist myndu samþykkja að Björn Ingi tæki við stöðu staðgengils bæjarstjóra en velti því upp hvort yfirlýsing lægi fyrir frá 3. framboðinu hvort eitthver styðji málið. Ásgrímur þakkaði kjörnum fulltrúm og starfsmönnum samstarfið á kjörtímabilinu. Ásgerður sagðist ekki hafa fengið formlegt erindi frá 3. Framboðinu en sagðist túlka fréttatilkynningu á hornafjordur.is sem yfirlýsingu 3. Framboðsins sem staðfestingu um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Björn Ingi greindi frá að fréttatilkynning Sjálfstæðisflokks og 3. Framboðs er sönn og leggur drengsskap sinn við því.
9.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar kvaddi sér hljóðs og sagðist hafa haft góða reynslu af þátttöku sinni í starfi sínu fyrir sveitarfélagið. Fullyrti frá að sveitarfélagið standi vel og rifjaði upp ýmis stórverkefni sem hann tók þátt í að vinna fyrir sveitarfélagið. Þakkaði samstarfsfólki sínu í gegn um tíðina og kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélagsins sem hafa starfað með honum. Reynir óskaði nýkjörnum bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið.

Guðrún Ingimundardóttir kvaddi sér hljóðs, þakkaði Reyni hlý orð og þakkaði starfsfólki og öðrum bæjarfulltrúm fyrir samveruna, sagðist reynslunni ríkari af starfi sínu fyrir sveitarfélagið. Guðrún óskaði nýkjörinni bæjarstjórn alls hins besta.

Ásgerður þakkaði starfsmönnum og bæjarfulltrúm sveitarfélagsins fyrir samstarfið á meðan hún gengdi starfi bæjarstjóra og bæjarfulltrúa. Ásgerður þakkaði Reyni fyrir samstarfið og störf hans fyrir sveitarfélagið.

Björn Ingi tók undir þakklæti þeirra sem á undan hafa tekið til máls. Sagðist hafa átt gott samstarf við fráfarandi meirihluta og sagðist vona að það yrði jafn gott áfram.