Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

206. fundur
14. ágúst 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 678
Málsnúmer 1406001F
Björn Ingi tók til máls og fagnaði úthlutun styrkja vegna gönguleiða annars vegar milli Fláajökuls og Haukafells og milli Skálafells og göngubrúar yfir Hólmsá.
Þórhildur tók til máls undir ellefta lið um þurrsalerni við Hrollaugshóla sagði bagalegt að engin salerni vera við þjóðveg 1 í sveitarfélaginu sem er landlægt vandamál.
Ásgerður tók undir með Birni Inga fagnaði styrkjum sem hafa borist í jöklaleiðina, einnig tók hún undir orð Þórhildar um aðstæður í salernismálum í sveitarfélaginu. Ásgerður benti á að ferðaþjónustan er orðin fyrirferðamikil í sveitarfélaginu eins og sjá má á þessari fundargerð.
Þá óskaði hún Náttúrustofu Sðausturlands util hamingju með Náttúrustígin sem var vígður í dag.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 679
Málsnúmer 1406004F
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 680
Málsnúmer 1406007F
Gunnhildur tók til máls undir áttunda lið, fagnaði að Vegagerðin hafi veitt styrk til úrbóta á veginum inn Stafafellsfjöll og spurði hvernig staðan væri með samráðshópinn.
Kristján tók til máls undir tólfta lið sagði mikilvægt að hefja framkvæmdir við Miklagarð og spurði hvernig staðan væri á framkvæmdunum.
Björn Ingi greindi frá að Vegagerðin hafi breytt fyrirkomulagi á úthlutun til styrkvega. Greindi frá fundi með Vegagerðinni og þar hafi komið fram að ekki væri ráðlegt að stofna til samráðshóps heldur væri hyggilegra að nýta þekkingu Vegagerðarinnar.
Björn Ingi tók undir mikilvægi að fara í endurbætur á Miklagarði og sagði verkatakan hafa hafið vinnu samkvæmt tilboði.

Björn Ingi lagði fram bókun frá bæjarstórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bókun vegna Lónsheiðargangna
Bæjarstjórn Hornafjarðar hvetur Vegagerðina til að fara af fullum krafti í að undirbúa jarðgöng undir Lónsheiði, þau myndu leysa vegkaflann um Hvalnesskriður af hólmi. Lengd Lónsheiðargangna yrði um 3 km. Út frá kostnaði Vegagerðarinnar við aðrar gangnaframkvæmdir sem nú eru í gangi má gróflega áætla að kostnaður við Lónsheiðargöng ásamt vegtengingum geti orðið 3,5 milljarðar króna. Göng undir Lónsheiði stytta hringveginn um 12 km og eru mikil samgöngubót. Þessu til viðbótar má nefna að viðhaldskostnaður á núverandi vegi er mikill, grjóthrun og fok veldur eignatjóni og slysahættu vegfarenda.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða, samþykkt samhljóða.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 681
Málsnúmer 1406015F
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 682
Málsnúmer 1407005F
Ásgerður tók til máls undir sjöunda lið sagði ánægjuefni að búið væri að senda bréf til landeigenda við Jökulsárlón, þar sem þeir eru hvattir til að ná saman um framkvæmdir á deiliskipulagssvæðinu. Sagðist vona að landeigendur taki sig saman og vinni að uppbyggingu á svæðinu, sagði mjög bagalegt að þurfa að neita fyrirtækjum um stöðuleyfi við Jökulsárlón og hefta atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu því þörf sé á aukinni þjónustu á svæðinu.
Sæmundur tók undir orð Ásgerðar og ræddi um lið eitt árangursmódel menntastefnu, sagði markmið með menntastefnu að bæta námsárangur nemenda, módelið kemur frá Reykjanesbæ þar sem það hefur reynst mjög vel. Sagði nýtt við þetta módel að allir sem koma að uppeldi barna þurfa að taka þátt í verkefninu, nemendur, foreldrar, kennarar og stjórnendur.
Á hliðarlínunni er velviljuð bæjarstjórn sem styður við verkefnið með ráðum og dáð.
Gunnhildur tók einng til máls undið lið eitt og lýsti yfir ánægu sinni með að þeirri vinnu sem ákveðið var að fara í vetur sé haldið áfram að fullum krafti.
Björn Ingi sagði það hefði mátt vera öllum ljóst að haldið yrði áfram með það árangursmódel sem tekið er að fyrirmynd Reykjanesbæjar. Ræddi málefni Jökulsárlóns sagði mikilvægt að fariði yrði í uppbyggingu við lónið í ljósi mikillar aukningar ferðamanna.
Einnig greindi hann frá að vinna við ljósleiðara í Suðursveit muni brátt vera lokið.
Ásgerður fagnaði að ljósleiðaravæðing í suðursveit sé að ljúka en margir staðir eru eftir í sveitarfélaginu. Tók til máls undir sjöunda lið, ráðning bæjarstjóra, vildi láta koma fram við bókun bæjarráðs að hennar samningur hafi verið sambærilegur samningi núverandi bæjarstóra að undanskildu biðlaunaákvæði, þar sem um tímabundna ráðningu hafi verið að ræða.
Björn Ingi greindi hann frá því að á stað sé komin umræða um að ljósleiðaravæðing í dreifbýli eigi heima í samgönguáætlun ríkisins þar í því felist mikil aukning á lífsgæðum.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 205
Málsnúmer 1406005F
Gunnhildur vildi leiðrétta lið tvö þar sem bókað er eftir forseta að konur séu í meirihluta bæjarstjórnar í fyrsta sinn greindi frá að það hafi gerst áður á kjörtímabilinu 2006-2010.
Lögð fram til kynningar.
7.
Deiliskipulag við Hnappavelli
Málsnúmer 201310035
Sæmundur fagnaði uppbyggingu á Hnappavölldum og að það væri von hans að hótelstarfsemi á Hnappavöllum og hvar sem annarstaðar í sveitarfélaginu leið af sér heilsársstörf með tilheyrandi fjölgun íbúa með fasta búsetu.
Greindi frá að deiliskipulag við Hnappavelli hefur verið í kynningu og engar athugasemdir borist sagði að umhverfis-og skipulagsnefnd hafi fjallað um deiliskipulagið og samþykkt að senda það til annarar umræðu bæjarstjórnar.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að byggja hótel á deiliskipulagssvæðinu.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag við Hnappavelli skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Kosning fulltrúa á aðalfund SASS
Málsnúmer 201408014
Að í stað Sæmundar Helgasonar (E) sem aðalmanns verð Ásgerðu K. Gylfadóttir (B) aðalmaður
Varamenn B-lista verða þá Gunnhildur Imsland og Ásgrímur Ingólfsson
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Enga fyrirspurnir hafa borist