Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

210. fundur
6. desember 2014 kl. 17:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 695
Málsnúmer 1410012F
Þórhildur Magnúsdóttir tók til máls undir lið 1. og greindi frá því að Rannsóknasetur Háskóla Íslands hafi verið boðin þátttaka í fjölþjóðaverkefninu SAINT eða Slow Adventure In Northen Territories. Verkefnið er til þriggja ára og mun skapa til langs tíma, rannsóknarstöðu við setrið. Sagði bæjarráð hafa samþykkt að styrkja verkefnið um 2.5 milljónir á ári í þrjú ár. Styrkurinn er árangurstengdur og endurskoðaður að ári.
Kristján Guðnason tók til máls undir lið 11. Prófanir á ómönnuðu loftfari bað bæjarstjóra um að greina frá stöðu málsins. Björn Ingi Jónsson sagði verkefnið byrjað og gangi. vel. Prófanirnar hafa farið fram á Hornafjarðarflugvelli. Sagði tækifæri til að nýta flugvöllinn til slíkra verkefna.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 696
Málsnúmer 1410013F
Björn Ingi tók til máls undir lið 2. Greindi frá að flugrekstraraðili hefur kynnt áhuga sinn á að hefja flugrekstur í Hornafirði fyrir bæjarráði. Greindi einnig frá loftlagsverkefni sem sveitarfélagið hefur unnið að í samstarfi við Landvernd, búið er að taka stöðuna á öllum stofnunum sveitarfélagsins svo hægt sé að gera mælingar og samanburð á árangri næstu ár.
Ásgerður tók til máls undir lið 4. Um verðkönnun vegna fráveitu í Nesjum, verð sem komu inn voru langt yfir kostnaðaráætlun og átti að kanna aðrar leiðir, spurði hvar málið sé statt. Björn Ingi sagði starfsmann vera að vinna að málinu sem er ekki lokið.
Kristján tók til máls um lið 1. Lagði til að bæjarstjórn fari í heimsókn í Þjónustumiðstöð og fái kynningu á nýrri aðstöðu.
Björn Ingi tók undir orð Kristjáns og hvatti bæjarfulltrúa til að fara í heimsókn í Þjónustumiðstöð.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 697
Málsnúmer 1411004F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhjóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 698
Málsnúmer 1411008F
Gunnhildur Imsland tók til máls undir fundargerð hafnarstjórnar spurði um greinargerð vegna málþings um Höfnina og Grynnslin.
Björn Ingi sagði greinargerð um málþing vera í vinnslu en vandinn sé að fá skýrslu um Grynnslin frá Vegagerðinni, sagðist hafa óskað eftir fundi með Vegagerðinni.
Sæmundur tók til máls undir lið 11. um fundargerð SASS nr. 487. Fjármögnun nýrra lögreglustjóra og sýslumannsembætta. Sæmundur rifjaði upp hvernig málið er til komið og fór í gegnum forsögu málsins. Reglugerð dómsmálaráðherra um Lögregluumdæmi lögreglustjóra. Tilkynningin er birt á vef Innanríkisráðuneytis s.l. fimmtudag. 4. desember. Þar segir: "Samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra skal sveitarfélagið Hornafjörður teljast til umdæmis lögreglustjórans á Austurlandi þar til úttekt á rekstrarforsendum lögreglunnar á Austurlandi hefur farið fram."
Sagði að sá gjörningur sem nú hafi verið gerður sé 180° viðsnúningur um allt það sem farið var að stað með, gert án nokkurs samráðs við Sveitarstjórn Hornafjarðar. Án samtals við SASS og þingmenn kjördæmisins af því er virðist. Sagðist vona að allir bæjarfulltrúar geti skrifað undir það.
Sæmundur nefndi að skv. áreiðanlegum heimildum hafi ráðherrann hringt í valda aðila innan lögreglunnar í s.l. viku. Sæmundur spyr af hverju fékk enginn sem situr í Bæjarstjórn eða bæjarstjóri, hringingu?
Sæmundur benti á að málshefjandi málsins er Innanríkisráðuneytið. Afstaða Bæjarstjórnar í þessu máli er og mun alltaf vera sú að tryggja verði þá góðu þjónustu sem lögreglan og sýslumannsembættið sinnir íbúum sveitarfélagsins.
Lagði fram bókun bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Hornafjarðar skorar á dómsmálaráðherra að breyta nýútkominni reglugerð um Lögregluumdæmi lögreglustjóra sem birt var á vef Innanríkisráðuneytis s.l. fimmtudag. 4. desember á þann veg að Sveitarfélagið Hornafjörður heyri undir lögregluumdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi og fylgi þannig kjördæmamörkum. Haldið verði áfram með þá vinnu sem í gangi hefur verið undanfarna mánuði þess efnis.
Kristján tók til máls undir lið 1 um fundargerð atvinnu,- og menningamálanefndar sagði mikilvægt að halda áfram með uppbyggingu Miklagarðs sagði Gömlubúð vera til fyrirmyndar varðandi uppbyggingu á gömlum húsum.
Ásgerður tók til máls undir lið 11 tók undir bókun sem Sæmundur lagði fram, sagði mjög slæmt þegar unnið er að máli sem þessu og traust brotið. Ræddi um að traust þurfi að ríkja milli samstarfsaðila almennt. Vitnaði í áfrahald af bókun bæjarráðs um málið þar sem lögð var áhersla þjónustugetu lögreglu á Höfn. Sagði mikilvægt að traust sé á milli stofnanna ríkis og sveitarfélaga, sama á hvaða vettvangi menn eru á það þarf að ríkja traust á milli þeirra.
Þórhildur tók til máls undir lið 1 las upp úr málefnasamningi meirihlutans þar sem greint er frá að stefna sé að byggja Miklagarð upp það sé mikilvægt að vera með áætlun og fjármagn til uppbyggingarinnar.
Sæmundur tók aftur til máls undir lið 11 sagði undarlegt að bæjarfulltrúar eða aðrir sem kom að málinu hafi ekki fengið að koma að málinu, þessi gjörningur sé ekki opin stjórnsýsla að hálfu ríkisins.
Björn Ingi tók undir orð Sæmundar og Ásgerðar sagði bæjarfulltrúar vera í góðum samskiptum við þingmenn og það sé meiri aðgangur að þingmönnum suðurkjördæmis sem vinna að hagsmunum sveitarfélaga í kjördæminu, það eigi að tryggja fjóra lögreglumenn og yfirlögregluþjón á Hornafirði.
Ásgerður sagði mikilvægt að vinna að opinni stjórnsýslu og fólk þurfi að geta borið traust til samstarfsaðila með nefndi dæmi um að Vegagerðina varðandi Grynnslin.
Björn Ingi spurði Ásgerði hvort hún væri að lýsa yfir vantrausti á Björn Inga vegna símtals við Vegagerðina.
Ásgerður sagðist ekki vera að lýsa yfir vantrausti á Björn Inga.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki bókunina.
Samþykkt samhljóða.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 699
Málsnúmer 1411010F
Björn Ingi tók til máls undir lið 1 tilkynning frá Jöfnunarsjóði um skert framlag til sveitarfélagsins upp á 54 millj. eftir að fyrsta umræða um fjárhagsáætlun hafði farið fram. Sagði að mikil vinna hafi farið fram og endurskoðun á niðurskurði í rekstri. Sagði ástæðu skerðingu framlagsins hafa verið vegna sameiningu skólana, en misskilningur hafi verið hjá Jöfnunarsjóði um rekstur skólanna, þar var talið að skólarnir væru reknir í einu húsi en ekki tveimur á Höfn. Jöfnunarsjóður hafi því gefið sveitarfélaginu vilyrði um að lækkunin myndi fara í 21 milljón.
Kristján tók til máls undir lið 7 styrkir SASS, benti á að engir styrkir hafi borist til Hornafjarðar, spurði Sæmund hvort SASS hefði málið enn opið og hvort önnur úthlutun eigi eftir að fara fram. Sæmundur greindi frá að þessi úthlutun hafi verið fyrsta úthlutun þar hafi helmingur fjárins verið úthlutað og síðari úthlutun fari fram í byrjun næsta árs.
Forseti benti á að á fundi bæjarráðs hafi verið samþykkt að endurgreiða hluta tónskólagjalda vegna verkfalls tónlistakennara.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 209
Málsnúmer 1410009F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Álagningareglur 2015
Málsnúmer 201410074
Björn Ingi gerði grein fyrir að röng prósentutala var í álagningareglum sem samþykktar voru í bæjarstjórn 30. október 2014 misritað var að útsvarsprósenta upp á 14,48% en á að vera 14,52% ekki er um hækkun að ræða frá fyrra ári.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki útsvarsprósentu 14,52%.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Málsnúmer 201403050
Björn Ingi fór yfir og kynnti fjárhagsáætlun 2015
Björn Ingi sagði að fyrsta fjárhagsáætlun nýrrar bæjarstórnar lagða fram. Greindi frá að mikil og góð vinna hefur verið unnin undanfarnar vikur. Tilkynningar frá Jöfnunarsjóði um skerðingu á framlagi til grunnskóla uppá 54 milljónir gerðu það að verkum að vinna þurfti hluta af vinnunni aftur ásamt því að senda inn erindi til Jöfnunarsjóðs þar sem óskað var skýringa á þessum niðurskurði. Skýringin tengis því að hætt var að kenna í Nesjaskóla. Jöfnunarsjóður taldi sveitarfélagið hafa hætt rekstri á Heppuskóla sem var leiðrétt í erindi til þeirra. Niðurstaðan er skerðing á grunnskólaframlagi upp á 21.6 milljón króna. Fjárhagsáætlun hefur verið unnin í góðri samvinnu kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins. Fjárhagsáætlun er það verkfæri bæjarstjórnar sem stýrir rekstri sveitarfélagsins og í henni koma fram áherslur bæjarstjórnar.
Breytingar á rekstri milli umræðna.
Tekjur:



Fyrri umræða

Seinni umræða

Mismunur
Breyting á skatttekjum

Almennt grunnskólaframlag

-134.000
-112.400

21.600
Staðgreiðsla


-928.900
-941.000

-12.100
Samtals








9.500
Gjöld:
Stofnbúnaður deilda


10.000

11.000


1.000
Sérfræðiþjónusta v. skólamála



2.740


2.740
Framlög til SASS


6.680

3.600


-3.080
Stjórnendanám


4.050

2.500


-1.550
Launaáætlun grunnskóli Hornafjarðar





-2.000
Launaáætlun málefni fatlaðra






-5.000
Nýjar nefndir








1.500
Breyting á vöxtum v. verðbóta






1.771
Samtals:








-4.619
Mismunur








4.881
Framkvæmdarammi hækkar um 37 m.kr í A-hluta samtals eru því fjárfestingar 300 m.kr
Helstu framkvæmdir eru:
Sindrabær 44.000.000 kr.
Ráðhús 35.000.000 kr.
Vöruhús 5.000.000 kr.
Mikligarður 5.000.000 kr.
Íþróttarhús 2.000.000 kr.
endurvinnslu sorp flokkun 15.000.000 kr.
Bílar 13.000.000 kr.
Heimasíðuna 3.000.000 kr.
Reiðskemma 2.000.000 kr.
Leiksvæði 5.000.000 kr.

Frárennsli 120.000.000 kr.
Höfnin grjótvörn 15.000.000 kr.
Frárennsli í Nesjum 26.000.000 kr.
Vatnsveitan 10.000.000 kr.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlun 2015.

Bókun bæjarfulltrúa Framsóknar um fjárhagsáætlun 2015.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 liggur fyrir. Það er eitt og annað í þeirri áætlun sem við bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins hefðum viljað sjá á annan veg. Til dæmis hefðum við viljað sjá hærra hlutfall framkvæmdafés fara í uppbyggingu Miklagarðs. En fögnum þó að hönnunar- og greiningarvinna fari fram 2015 svo að hægt sé að ráðast í verkefnið af fullum krafti frá og með árinu 2016. Við teljum brýnt fyrir Hornafjarðarsöfn og samfélagið allt að húsið komist í virkni sem fyrst fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins.
Þá erum við enn ekki sannfærð um að fjölgun nefnda sé nauðsynleg, teljum það útgjaldaaukningu sem megi sleppa. Einnig höfum við enn áhyggjur af áhrifum nýs starfs atvinnu- og ferðamálafulltrúa á starfsemi Ríkis Vatnajökuls, en vonum að þær áhyggjur séu óþarfar og enn fleiri aðilar muni ganga til liðs við klasann og styrkja með því stoðir undir markaðssetningu ferðaþjónustu í sýslunni.
Varðandi tekjuhlið fjárhagsáætlunarinnar þá er lækkun grunnskólaframlagsins frá Jöfnunarsjóði óneitanlega skellur sem kallar á viðbrögð. Fara þarf vel í gegnum rekstur grunnskólanna og skoða hvernig við höldum best á spilunum til framtíðar þar sem lækkunin núna er komin til að vera, en útgjöld til fræðslumála hækka töluvert milli ára.
Að lokum fögnum við því að tillaga Framsóknarmanna um tvöföldun á tómstundastyrk hefur skilað sér inní fjárhagsáætlunina. Í heildina eru þeir þættir sem við getum stutt fleiri en þeir sem við erum mótfallin og munum því samþyggja fyrirliggjandi fjárhagsáætlun.
Björn Ingi tók undir nauðsyn þess að fara yfir restur grunnskólans og upplýsti að hann hefur rætt við starfsmenn á fræðslusviði um málið.
Sæmundur sagði rekstur sveitarfélagsins í góðum málum sagði að fjárhagsáætlunin taki mið af málefnasamningi meirihlutans. Sagði mikilvægt að þrýsta á Jöfnunarsjóð um að koma fyrr með niðurstöður sínar.
Forseti bar tillögu bæjarstjóra um fjárhagsáætlun 2015 upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Þriggja ára áætlun 2016-2018
Málsnúmer 201410075
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2016 - 2018 eru eftirfarandi:






2016

2017

2018
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)


187.051
181.781 175.094
Framkvæmdir (m.kr.)


300.000
300.000
225.000
Veltufé frá rekstri (m.kr.)


331.041
303.839
304.167
Handbært fé í árslok (m.kr.)


94.148
169.102
102.400
Afborganir langtímalána


(132.125)
(138.885)
(145.868)
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)


50.000
210.000



Langtímalán við lánastofnanir


706.519
799.124
694.884
Langtímalán á hvern íbúa


267.172
225.293
190.780
Skatttekjur hvern íbúa



768.000
768.000
768.000
10.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2014
Málsnúmer 201410006
Björn Ingi gerði grein fyrir breytingum á samþykktum sveitarfélagsins. Bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykki breytingar á samþykktum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Siðareglur kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 201411059
Björn Ingi greindi frá að bæjarráð hafi endurskoðað siðareglur kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins. Bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykki breytingar á siðarreglum kjörinna fulltrúa.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Málsnúmer 201409090
Sæmundur gerði grein fyrir hugmyndum að nýju deiliskipulagi við Hornafjarðarhöfn og Ósland. Sagði deiliskipulagið hafa fengið umfjöllun í hafnarstjórn.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fara í gerð deiliskipulagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Deiliskipulag Reynivöllum 3.
Málsnúmer 201412001
Sæmundur gerði grein fyrir erindi frá Reynivalla ehf., ósk um að hefja vinnu að deiliskipulagi fyrir landið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki ósk Reynivalla ehf..
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Landskipti, Skarðshólar
Málsnúmer 201408040
Sæmundur greindi frá erindi frá eigendum jarðanna, Hóla, Sauðaness og Hjarðaness þar sem óskað eftir landskiptum samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti, ný jörð verður Skarðshólar sem áður voru í Hólalandi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkir landskiptin með með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samljóða.
15.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum fá síðasta bæjarstjórnarfundi. .
16.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.