Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

212. fundur
5. febrúar 2015 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 704
Málsnúmer 1501001F
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri tók til máls undir 6. lið, hringvegur við Hornafjarðarfljót, sagði mikilvægt að upplýsa íbúa um að hann átti fund með Vegagerðinni þar sem kom fram áform Vegagerðarinnar um að slá saman framkvæmd 1 og 3 áfanga framkvæmda við veginn. Framkvæmdin verður þá frá Hafnarnesi út undir Hólmsá en fyrirhuguð vegtengin frá Holti er slegin af sem getur haft í för með sér minni styttingu frá sumum bæjum á Mýrum.
Kristján Guðnason tók til máls undir fundargerð Menningamálarnefndar og spurði um kaup á Mjólkurstöðinni fyrir geymslur Hornafjarðarsafna.
Björn Ingi greindi frá að ekki hafi verið tekin ákvörðun um kaupin en leiga húsnæðisins er tryggð næstu mánuði og enn verið að skoða hvaða kostir eru ákjósanlegir við fjárfestingu á húsnæði fyrir söfnin.
Kristján spurði um 7. lið, um hvernig starf atvinnu og ferðamálafulltrúa, hvernig starfið tengist samstarfi við Ríki Vatnajökuls. Björn Ingi sagði að Ríki Vatnajökuls muni sjá um markaðssetningu en atvinnu og ferðamálafulltrúi muni sjá um stjórnsýslulega hluta þess sem fylgir málaflokknum, ræddi um mikilvægi þess að samfélagið þurfi að vera sátt við ferðaþjónustuna.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 705
Málsnúmer 1501005F
Björn Ingi tók til máls undir 6. lið, samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks. Nefndin hafi fjallað um umsókn sveitarfélagsins um áframhaldandi undanþágu vegna stærðar þjónustusvæðis og lagt til við ráðherra að svo verði áfram.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 706
Málsnúmer 1501010F
Sæmundur tók til máls undir fundargerð fræðslu og tómstundanefndar greindi frá að nefndin hafi hækkað tómstundastyrk um 100% úr 20 þúsund í 40 þús. þá hafi aldur þeirra sem hljóta styrkinn hækkað úr 16 í 18 ára.
Ræddi einnig um 7. lið, fundargerð SASS, greindi frá að Unnur Þormóðsdóttir, bæjarfulltrúi í Hveragerði hafi greint frá væntanlegri skýrslu eða stöðugreiningu á hjúkrunarrýmum á Suðurlandi. Undir hennar verkstjórn hefur SASS látið vinna skýrslu sem unnin hefur verið uppúr spurningarlistum sem beint var til allra hjúkrunarforstjóra og allra sveitarfélaga á svæðinu. Í skýrslunni mun vera tekið saman hver þörfin er á hjúkrunarrýmum á hverjum stað í kjördæminu. Þörfin á Hornafirði er mjög brýn. Svo virðist sem ekki liggi fyrir nein áætlun hjá Velferðarráðuneytinu um uppbyggingu hjúkrunarrýma. Hvenær má vænta þess að hafist verði handa? Hvar er sveitarfélagið Hornafjörður í röðinni?
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn bóki eftirfarandi:

Bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Hornafjarðar hvetur Velferðarráðherra til að hefja vinnu við nýja framkvæmdaráætlun á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur mikla áherslu á þörfina fyrir hjúkrunarrými hjá HSu á Hornafirði og bendir á fyrri bókanir í því samhengi. Við treystum á að vera framalega, ef ekki fremst, í framkvæmdaáætlun Velferðarráðuneytisins.

Ásgerður tók undir bókunina og fagnaði því að tómstundastyrkur hafi verið hækkaður sagði að Gunnhildur Imsland hafi lagt það til að hækka styrkinn á bæjarstjórnarfundi nr.207 einnig hafi hún lagt til að börn í sveitarfélaginu fái frítt í sund og upplýsti að verið sé að skoða kostnað við það. Ræddi einnig 5. lið í fundargerðinni sagði brýnt að efla leikskólakennaramenntun þar sem einungis sjö af þrátíu starfsmönnun leikskólanna séu menntaðir leikskólakennarar. En lög um leikskóla kveða á um að einn þriðji hluti starfsfólks hafi þá menntun. Greindi frá að framsóknarmenn hafa fundað með starfsmönnum leikskólans og rætt við þá um leiðir til náms, sagði starfsfólk ekki vera upplýst um þær leiðir sem eru í boði, sagði fulla þörf á að gera átak í menntun starfsfólks leikskóla.
Björn Ingi sagði misskilning í gangi hvaða möguleikar eru á að sækja sér menntun innan leikskólanna. Hugsanlega væri fimm ára kennaranám íþyngjandi með starfi og ekki metið að verðleikum. Sagði að sveitarfélagið hafi staðið sig vel í að styðja við starfsmenn til frekari menntunar. Mikilvægt væri að slíkur stuðningur nýttist öllum starfsmönnum sveitarfélagsins.
Sæmundur sagði fræðslu- og tómstundanefnd þurfa að skoða betur reglur um tómstundastyrk og það væri hægt að skoða hvort hægt væri að nýta hann í sundkort. Sagði einnig að skoða mætti hvað fimm ára kennaranám væri metið að verðleikum. Ásgerður tók undir að leikskólakennaranámið sé hugsanlega íþyngjandi og mikilvægt að kynna fyrir fólki að það geti útskrifast í þrepum, mikilvægt að vera sveigjanleg og styðja við starfsmenn til náms, sagði misbrest hafa verið á því. Sagði mikilvægt að taka þátt í þessu átaki og hvetja fólk til náms.
Forseti bar tillögu um bókun Sæmundar upp til atkvæða.
Bæjarstjórn samþykkti bókunina samhljóða.
Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 707
Málsnúmer 1501017F
Þórhildur Magnúsdóttir tók til máls undir 4.lið niðurstöður umhverfistofnunar um að setja útrás fráveitu við Stapaklett í stað Skarðsfjarðar. Greindi frá það það verði dýrara í framkvæmd en muni borga sig þegar frá líður því fráveita úr Óslandi muni vera með í þessum áfanga sem var ekki gert ráð fyrir í fyrri áætlunum, auk þess er Skarðsfjörðurinn á náttúruminjaskrá.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 211
Málsnúmer 1412008F
Lögð fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar 2015
Málsnúmer 201412015
Björn Ingi kynnti fjárhagsáætlun Heilbrigðistofnunar sem samþykkt var í heilbrigðis og öldrunarnefnd þann 27. janúar.
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 56 þús. kr. rekstrarafgangi.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að ríkistekjur hækki vegna launahækkana og jafnlaunaátaks: Jafnframt er er stefnt að úr ýmsum kostnaði eins og rannsóknarkostnaði.
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlun heilbrigðisstofnunar á Höfn fyrr árið 2015.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Gjaldskrá Sorphirðu 2014 -2015
Málsnúmer 201409093
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn samþykki að gjaldskrá sorphirðu hækki um 5% jafnframt að umsýslugjald hækki úr 14.000 í 20.000.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Deiliskipulag Fjallsárlón
Málsnúmer 201309050
Frestað.


9.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 201502003
Fræðslu- og tómstundanefnd: Lars Jóhann Andrésson varamaður í stað Þórhildar Ástu Magnúsdóttur Skipulagsnefnd: Sæmundur Helgason varamaður í stað Lars Jóhann Andréssonar
Fræðslu- og tómstundanefnd:
Lars Jóhann Andrésson (E) varamaður í stað Þórhildar Ástu Magnúsdóttur
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóoða.
Skipulagsnefnd:
Sæmundur Helgason (E) varamaður í stað Lars Jóhanns Andréssonar
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóoða.
10.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Björn Ingi greindi frá störfum sínum sl. mánuð.
11.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.