Bæjarstjórn Hornafjarðar
213. fundur
5. mars 2015
kl.
08:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Forseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 708
Ásgerður tók til máls undir lið 3. sorpmál, greindi frá að mikil vinna kostnaður hafi verið lagt í tveggjatunnu kerfið, hvatti til að sú vinna yrði nýtt áfram og núverndikerfi endurbætt. Sagði skilaboð um endurvinnslu ekki náð nógu vel til íbúa þrátt fyrir að mikil vinna hafi verið lögð í kynningu. Greindi frá að á fundi umhverfisnefndar hafi verið rætt um að stofna fésbókarsíðu um umhverfismál þar sem átti að koma enduvinnslumálum á framfæri, fagnaði hugmyndinni.
Sæmundur tók einnig til máls undir lið 3. sagði að ekki væru allir sammála um að tveggja tunnu kerfið væri réttasta leiðin því lífrænt sorp þurfi einnig að endurvinna í framtíðinni. Lagði áherslu á að halda áfram að hvetja íbúa til endurvinnslu sagði að með tilkomu Gárunnar hafi aðstæður til endurvinnslu verið stórbættar. Stóra spurningin í málaflokknum er hvernig við sjáum fyrir okkur framtíðarlausn á frágangi alls sorps.
Fundargerð samþykkt.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 709
Kristján Guðnason tók til máls undir lið 7. spurði hvernig mál fjarskipta á Mýrum og Suðursveit standi, sagði sambandið ekki nægjanlega gott á sumun stöðum sem geti hamlað atvinnustarfsemi. Einnig ræddi hann um ákveðin misskilning íbúa á svæðinu og lagði til að fundað yrði með þeim um stöðu mála.
Björn Ingi sagði að notendur á gamla kerfinu væru komnir yfir á nýtt dreifikerfi nema tveir bæir á Mýrunum. Vinna er komin í gang til útbóta á örbylgjusambandi við Suðursveit. Sambandið við Suðursveit hefur flutningsgetu sem ekki hamlar atvinnustarfssemi og getur boðið þá þjónustu sem um er rætt þar með talið sjónvarpsefni. Vodafone vinnur að lagfæringum á skilgreiningum í þjónustuveri svo notendaþjónusta verði skilvirkari.

3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 710
Sæmundur tók til máls undir lið 2. könnun um leikskólamál, sagði Félagsvísindastofnfun HÍ vinna könnunina sem verði lögð fyrir foreldra og starfsmenn. Hann sagði að skoðanakönnun er skoðanamyndandi í sjálfri sér. Pólitíkin mun á endanum þurfa að taka ákvörðun um ytri umgjörð leikskóla. Tók einnig til máls undir 4.lið greindi frá verkefni, lestur og leið til árangurs sagði að lestrarnám hafa verið skipulagt, lestrarömmur hafi komið að því starfi með sjálfboðavinnu og það væri sjáanlegur árangur af því starfi.
Gunnhildur tók til máls undir lið 2. las bókun nefndarinnar sagði að b listinn hafi ekki tekið undir bókunina þar sem þeir hafi ekki fengið svör við spurningum sínum um hvað ætti að gera við niðurstöðurnar. Einnig hafi komið fram á fundi með starfsmönnum að ekki lægi fyrir hvað ætti að gera við niðurstöðurnar.
Björn Ingi sagðist hafa setið fund með starfsfólki leikskólanna, þar hafi komið skýrt fram að niðurstöðurnar eigi að móta umgjörð leikskólanna í framtíðinni. Sagði að hlutlausir aðilar muni vinna skoðanakönnunina en ekki starfsmenn sveitarfélagsins til að tryggja eftir fremsta megni óháða niðurstöðu.

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 711
Björn Ingi tók til máls undir lið 1. greindi frá fundi 12. mars í Nýheimum þar sem fjallað verður um Sjávarþorpið Höfn, þar á að fá fólk til að móta næstu skref um hvað áfangastaðurinn Höfn geti gert fyrir ferðamenn.
Ásgerður tók til máls undir lið 11. samningur um Nýsköpunarmiðstöð, fagnaði að Nýsköpunarmiðstöð hafi tengst inn í Fablab smiðjuna eftir að starfsmaður þeirra hafi hætt á Höfn.
Björn Ingi sagði að Nýsköpunarmiðstöð hafi lagt 6. milljónir með samningnum. Sagði Ungmennaráð hafa fundað með bæjarráði greindi frá að Ungmennaþing verði haldið 16. mars og fagnaði starfi ráðsins.
Kristján tók undir orð Björns og sagði frá áhugaverðum hugmyndum ráðsins þar sem þau hafa áhuga á að stofna Ungmennahús og mikilvægt að styðja við bakið á þeim og sagði starfsmann ráðsins vinna gott starf.

5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 212
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Deiliskipulag Fjallsárlón
Sæmundur tók til máls og sagði deiliskipulagstillögu við Fjallsárlón hafa fengið lögformlega kynningu skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Forsætisráðuneytið og óskaði eftir samráði við útfærslu deiliskipulagsins, sem var gert.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að;
Lagning stíga og markvissar framkvæmdir á áningastöðum.
Stýra umferð um svæðið bæði gangandi og akandi.
Koma upp nauðsynlegri þjónustu aðstöðu fyrir ferðamenn.
Engar athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag við Fjallsárlón.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

7.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Sæmundur tók til máls og sagði að lýsing að deiliskipulagi fyrir Höfnina/Ósland hefur verið unnin af Alta skipulagsráðgjöfum.
Helstu markmið með deiliskipulagsgerðinni eru:
Að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.
Að styrkja hafnsækna starfsemi með því að bjóða upp á lóðir nálægt viðlegukanti og skoða möguleika á breytingum á syðri hafnarkanti sem auðvelda vinnufyrirkomulag í höfninni.
Að gera grein fyrir legu fráveitu og áhrifum hennar á umhverfi og lífríki.
Að stuðla að aðlaðandi ásýnd svæðisins sem næsta nágrenni friðlands við Ósland.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsinguna skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

8.
Umsókn um framkvæmdaleyfi, Sjóvarnagarður. Suðurfjörutanga
Umsókn frá Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi vegna sjóvarnargarðs á Suðurfjörum.
Framkvæmdin felst í lagfæringu og lengingu á sjóvörn innan á Suðurfjörutanga.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
Framkvæmdin felst í lagfæringu og lengingu á sjóvörn innan á Suðurfjörutanga.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku - Stigá
Umsókn um efnistöku við Stígá barst frá Hótel Vatnajökli. Efnið verður nýtt vegna framkvæmda við byggingu hótels að Hnappavöllum. Gerður hefur verið samningur við landeigendur um efnistökuna.
Áætluð efnistaka er allt að 10.000 m3, gert er ráð fyrir efnistöku á svæðinu skv. á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
Áætluð efnistaka er allt að 10.000 m3, gert er ráð fyrir efnistöku á svæðinu skv. á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Kosning stjórnar Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs
Heilbrigðis-og öldrunarnefnd leggur til að eftirfarandi verði í stjórn Skjólgarðs.
Halldóra B. Jónsdóttir(D)
Fjóla Hrafnkelsdóttir(E)
Sigurlaug Gissurardóttir (B)
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
Halldóra B. Jónsdóttir(D)
Fjóla Hrafnkelsdóttir(E)
Sigurlaug Gissurardóttir (B)
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Erindisbréf atvinnumálanefndar 2015
Björn Ingi gerði grein fyrir vinnu við gerð á nýjum erindisbréfum.
Við gerð allra erindisbréfa var ákveðið að samræma þau og taka út þau ákvæði sem nú þegar eru í samþykktum sveitarfélagsins sem allar fasta nefndir starfa eftir.
Nefndirnar og bæjarráð hafa fengið erindisbréfin til efnislegrar umfjöllunar og vísuðu þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréfið.
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.

12.
Erindisbréf fræðslu- og tómstundanefndar 2015
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
13.
Erindisbréf menningarmálanefndar 2015
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
14.
Erindisbréf umhverfisnefndar 2015
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
15.
Erindisbréf skipulagsnefndar 2015
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
16.
Erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar 2015
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Björn Ingi fór yfir störf sín frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
18.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar fyrirspurnir hafa borist.