Bæjarstjórn Hornafjarðar
216. fundur
4. júní 2015
kl.
16:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Forseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Ottó Marvin Gunnarsson
2. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 720
Ásgerður ræddi framkvæmdaáætlun í umhverfismálum. Bendir á þörf á umhverfisfræðslu í samfélaginu t.d. í gegnum vef sveitarfélagsins. Einnig kallar hún eftir skýringum á fyrirhugaðri ráðstöfun fjármagns sem samþykkt var í viðauka I við fjárhagsáætlun 2015. ÁKG ræddi lið 14 um lausar lóðir og kallar eftir aðgerðum í málinu. ÁKG fór einnig yfir og rökstudddi hugsun bæjarráðs í máli Reykjavíkurflugvallar.
Björn Ingi bendir á að í farvatninu er verkefni í umhverfismálum hjá Nýheimum sem kynnt verður fyrir umhverfisnefnd. BI ræddi samning við Landvernd og tafir á auglýsingu á lausum lóðum. BI ræddi málefni Reykjavíkurflugvallar og óeðlilegt inngrip ríkisins varðandi skipulagsvald sveitarfélaga.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 721
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 722
Ottó Marvin ræddi málefni ungmenna í sveitarfélaginu, sbr. 10 lið fundargerðar fræðslu og tómstundarnefndar, og niðurstöðu ungmennaþingsins. Tekur undir þörf á innleiðingu verkefna í samræmi við þær niðurstöður. Jafnframt lagði hann áherslu á hve Ungmennaráð er mikilvægur vetvangur fyrir framgang ungmenna í sveitarfélaginu. Vöruhúsið er góður vetvangur fyrir ungmennahús.
Þórhildur ræddi eflingu byggðar í sveitum og mikilvægi þess að leysa dagvistunarmál þar. Benti á skort á starfsfólki á leikskólastiginu þar sem mikil ásókn er í ferðaþjónustustörf. Jafnframt ræddi hún skort á húsnæði í sveitarfélaginu og þörfina á að leysa þau mál fljótt og vel. Koma þarf á hvetjandi aðgerðum til íbúðaframboðs. Kallar hún á samvinnu allra í sveitarfélaginu til að koma þessum málum í betra horf.
Ásgerður tekur til máls. Bendir á að mönnun á HSU Hornafirði hefur batnað. Málefni ungmenna eru að hennar mati í góðum farvegi og þróunin jákvæð. Mikilvægt að svo verði áfram. ÁKG tekur undir með Þórhildi varðandi þörfina á uppbyggingu þjónustu í sveitunum og fagnar auknum umsvifum í ferðaþjónustu. Hún nefnir leikskólamálin og misjafnar skoðanir á fyrirkomulagi. Leikskólakönnunin ætti að gefa skýrari mynd varðandi skoðanir fólks á málinu. ÁKG kallar eftir endalegri útfærslu á átaki til eflingar menntunar starfsfólks á leiksólasviði.
BI bendir á að staða mála í kjarasamningaviðræðum tefji fyirr endanlegri útfærslu átaksins.

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 723
Kristján Guðnason tekur til máls fagnar því að skriður er kominn á vinnu við atvinnustefnuna. Bendir á mikilvægi þess að stefnan taki til alls atvinnulífsins en einskorðist ekki við ferðaþjónustu. Jafnframt að ekki verði um að ræða óskýrt skrautplagg.
BI tekur til máls um atvinnustefnuna. Bendir á að á fyrirhuguðum vinnufundi verður mótuð skýr aðgerðaáætlun með fjölbreytileika atvinnulífsins að leiðarljósi.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
BI tekur til máls um atvinnustefnuna. Bendir á að á fyrirhuguðum vinnufundi verður mótuð skýr aðgerðaáætlun með fjölbreytileika atvinnulífsins að leiðarljósi.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 215
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Starfsmannastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Björn Ingi kynnti starfsmannastefnu sveitarfélagsins sem hefur verið í endurskoðun. Helstu breytingar sem gerðar voru á henni eru: skerpt var á reglum og markmið sett fram við hvern kafla ásamt kafla um upplýsingamiðlun. Verklagsreglur um áminningar í starfi og reglur um ráðningar starfsmanna voru felldar út.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki starfsmannastefnuna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

7.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Björn Ingi bæjarstjóri fór yfir ferli málsins undanfarin misseri,
fundi með þingmönnum og bréfaskriftir milli þingmanna og Vegagerðarinnar.
Nú í dag á að auglýsa útboð á dýpkun á Grynnslum sem verða opnuð um miðjan júní og verklok um miðjan júlí.
Kostnaðarskipting verksins er ekki komin á hreint og er unnið að niðurstöðu í því þessa dagana.
KG tekur til máls og spyr um stöðu málsins eftir síðasta fund með þinmönnum Suðurkjördæmis og hvort til sé skip til verksins. BI segjir verkið fari í auglýsingu í dag og áætluð verklok eru í lok júlí, skip í verkið á að vera tiltækt
ÁKG tekur til máls og að hennar mati á sveitarfélagið ekki að greiða fyrir þetta verkefni. Leggur til að sveitarfélagið leggi harðar að ríkinu og gefi ekki eftir þá kröfu að ríkið greiði framkvæmdina.
Bókun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hvetur innanríkisráðherra til að staðfesta að kostnaður vegna dýpkunar á Grynnslum verði á greiddur alfarið af ríkissjóð. Við ákvörðunartöku er eðlilegt að horft verði til að mörk hafnarsvæðis til suðurs markast af línu sem dregin er á milli Hvanneyjar yfir í Þinganesskerin. Grynnslin eru fyrir utan þessa línu og geta því ekki talist sem hluti af hafnarsvæði Hornafjarðarhafnar.
Grynnslin geta því ekki annað en talist hluti af Atlantshafinu.
Bókun samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

8.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Björn Ingi greindi frá vinnu við tillögu að deiliskipulagi Höfnin / Ósland sem var í kynningu frá 13. apríl til 25. maí einnig var hún kynnt fyrir almenningi þann 7. apríl. Ein athugasemd barst frá Náttúrustofu Suðausturlands.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki svar skipulagsnefndar og fyrirliggjandi nýtt deiliskipulag Höfnin / Ósland skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki svar skipulagsnefndar og fyrirliggjandi nýtt deiliskipulag Höfnin / Ósland skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Breyting á deiliskipulagi við Skaftafell
Björn Ingi greindi frá erindi Vatnajökulsþjóðgarðs ósk um breytingu á gildandi deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og leggur til að ekki þurfi að vinna lýsingu þar sem tillagan er ekki svo frábrugðin fyrir deiliskipulagstillögu.
Lagði til að bæjarstjórn heimili að farið verði í breytingu á deiliskipulagi við Skaftafell skv. 40. og 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og leggur til að ekki þurfi að vinna lýsingu þar sem tillagan er ekki svo frábrugðin fyrir deiliskipulagstillögu.
Lagði til að bæjarstjórn heimili að farið verði í breytingu á deiliskipulagi við Skaftafell skv. 40. og 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag Dilknes / Hjarðarnes
Lovísa vék af fundi undir þessum lið.
Ásgerður K.Gylfadóttir 2.forseti tók við stjórn fundar.
Björn Ingi greindi frá erindi jarðareigenda Dilksnesi og Hjarðarnesi, ósk um að fara í gerð deiliskipulags.
Lagði til að bæjarstjórn heimili eigendum jarðanna að fara í gerð deiliskipulags samkv. 38. og 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.

11.
Deiliskipulag HSSA
Björn Ingi greindi frá að deiliskipulagstillagan hafi fengið lögformlegt ferli og var í kynningu frá 22. janúar - 6. mars 2015.
Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag við HSSA skv. 40. gr. skipulagslaga.
Lovís Rósa forseti tók aftur við stjórn fundarins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag við HSSA skv. 40. gr. skipulagslaga.
Lovís Rósa forseti tók aftur við stjórn fundarins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Breyting á aðalskipulagi, útrás fráveitu.
Afgreiðslu málsins frestað verður afgreitt með deiliskipulagi útbæjar.
13.
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna fráveitu á Höfn
Björn Ingi greindi frá umsókn um framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins fyrir fráveitu á Höfn. Um er að ræða 800 mm. svera stofnlögn sem liggur að og frá fyrirhugaðri hreinsistöð við Miðós 4. Mun lögnin síðan verða leidd fram fyrir Óslandstangann í Hornafjarðarfljótið og verður aðalútrás milli Óslandstanga og Stapakletts. Fráveitan fellur ekki undir lög um mat á umhverfisáhrifum. Ekki verður farið í ramkvæmd við útrás út að Stapakletti fyrr en á næsta ári.
Hann lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Hann lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Breyting á aðalskipulagi, Hof Öræfum
Björn Ingi greindi frá lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012 - 2030 sem nær yfir landsvæði við Hof.
Helstu breytingar felast í að stækka atvinnusvæði sunnan hringvegar og hins vegar að afmarka íbúðarsvæði norðar Hringvegar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lýsingu skv. 30. og 31.gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Helstu breytingar felast í að stækka atvinnusvæði sunnan hringvegar og hins vegar að afmarka íbúðarsvæði norðar Hringvegar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lýsingu skv. 30. og 31.gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Björn Ingi greindi frá að lýsing að deiliskipulagi fyrir Hof hefur verið unnið af Eflu verkfræðistofu fyrir landeigendur.
Helstu markmið með deiliskipulagsgerðinni eru:
Að byggja upp ferðaþjónustu, fjölgun, stækkun og endurbætur á íbúðarhúsum og landbúnaðarbyggingum og stækkun á annars konar atvinnustarfsemi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagslýsinguna skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsa skal lýsingu samhliða breytingu á aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Helstu markmið með deiliskipulagsgerðinni eru:
Að byggja upp ferðaþjónustu, fjölgun, stækkun og endurbætur á íbúðarhúsum og landbúnaðarbyggingum og stækkun á annars konar atvinnustarfsemi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagslýsinguna skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsa skal lýsingu samhliða breytingu á aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag við Drápskletta
Björn Ingi greindi frá að lýsing að deiliskipulagi fyrir Drápskletta hefur verið unnin af ASK arkitektum.
Markmið deiliskipulagsins er eftirfarandi: Að skilgreina og þróa opin svæði og útivistarsvæði. Að skilgreina landbúnaðarsvæði og skilgreina byggingareit og byggingarmagn á óbyggðu athafnasvæði.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lýsingu skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Markmið deiliskipulagsins er eftirfarandi: Að skilgreina og þróa opin svæði og útivistarsvæði. Að skilgreina landbúnaðarsvæði og skilgreina byggingareit og byggingarmagn á óbyggðu athafnasvæði.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lýsingu skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumar 2015
Forseti bar upp tillögu þess að bæjarstjórn verði í sumarleyfi í júlí. Lagt er til að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Samstarfsyfirlýsing um samvinnu gegn heimilisofbeldi. Lögreglan og sveitarfélagið
Forseti bar upp Samstarfsyfirlýsingu milli sveitarfélaga á Suðurlandi og lögreglunnar á Suðurlandi vegna átaks gegn heimilisofbeldi.
Forseti bar yfirlýsinguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar yfirlýsinguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.
20.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar fyrirspurnir hafa borist.