Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

218. fundur
3. september 2015 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Ásgrímur Ingólfsson 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 729
Málsnúmer 1508002F
Ásgrímur setti fram fyrirspurn undir 1. lið. Hver er framtíðarsýn sveitarfélagsins í sorpmálum og sorpurðun?

4. liður - Kristján setti fram fyrirspurn um staðsetningu félagsmiðstöðvar í Vöruhúsinu.

Björn Ingi svaraði að framtíðarsýn í sorpmálum er að nýta betur sorpurðunarstað í Lóni. Haldið verður áfram með það sem lagt var upp með í byrjun. Unnið er að því að meta hvernig hægt er að lengja endingartíma gryfjunnar þar, t.d. með þjöppun annars vegar og hins vegar að geyma sorpið lengur hér á Höfn til að fækka ferðum á urðunarstað.

BIJ svaraði fyrirspurn Kristjáns - búið er að endurhanna kjallarann og efstu hæðina en verið er að vinna áfram með miðhæðina. Tekin hefur verið ákvörðun um að færa Þrykkjuna í kjallarann.

Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 730
Málsnúmer 1508004F
Gunnhildur Imsland tók til máls undir lið 2. Gagnrýndi hún verklag við gerð aðgerðaáætlunar um breytingar á leikskólamálum ásamt skort á samvinnu og gögnum til að byggja frekari ákvarðanir á. Að hennar mati er mörgum spurningum enn ósvarað. Jafnframt var að hennar mati þátttakan í könnuninni ekki næg og svarhlutfallið ekki nógu mikið svo hægt verði að byggja á þeim svörum við framtíðarskipulag leikskólamála.

BIJ svararði og benti á með áherslu að um var að ræða drög sem lögð voru til umræðu inn í fræðslu- og tómstundaráð. Þarna var því ekki um að ræða lokaeintak aðgerðaáætlunar. Hvetur hann bæjarstjórnarmenn að kynna sér betur framlögð gögn í málinu. Sagði hann að framtíðarplön í leikskólamálum muni taka mið af framtíðarþörfum sveitarfélagsins. Varðandi könnunina svaraði hann að aldrei áður hafi breytingar í sveitarfélaginu byggt á könnun með jafn mikilli þátttöku.

Ásgrímur tók til máls undir lið 2 um leikskólamálin. Benti hann á óhæfi sitt í því máli en vildi koma eftirfarandi á framfæri. Að hans mati var könnunin bæði góð og slæm. Gagnrýndi hann orðalag spurninga í könnuninni sem gæti hafa haft áhrif á svör þátttakenda. Að hans mati er um mjög kostnaðarsama aðgerð að ræða miðað við smæð málaflokksins.

BIJ svaraði Ásgrími - sagði sjálfsagt að menn hafi ólíkar skoðanir á orðalagi spurninga. Fór hann yfir hvernig ákvörðun um úrtak könnunar var tekin, en það var gert með aðstoð Félagsvísindastofnunar sem hafði umsjón með könnuninni.

Kristján tók til máls um drög að aðgerðaáætlun og sagði hann vinnubrögðin þar klaufaleg í ljósi þeirrar óvissu sem vinnulagið hafði á starfsmenn.

BIJ tók undir orð Kristjáns um að menn þurfi að vanda sig. Nefndi hann að fulltrúar meirihlutans í bæjarráði hafi beðist velvirðingar á umræddu orðalagi.

Kristján tók til máls um skoðanakannanir almennt í sveitarfélaginu og óskaði eftir slíkri könnun um íþróttamannvirki. Að hans mati er sveitarfélagið að dragast aftur úr í þeim málum.

BIJ svaraði Kristjáni og tók undir með að gera megi betur í íþróttamálum en var ekki sammála um að sveitarfélagið væri að dragast afturúr. Ljóst er að íbúar kalla á nýtt íþróttahús. Einnig er kallað eftir byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Er þetta allt spurning um forgangsröðun. Að hans mati er ekki þörf á skoðanakönnun í þessum málaflokki þar sem viljinn sé ljós.

Kristján tók til máls og harmar að bæjarstjórinn skyldi ekki nefna málefni Miklagarðs.

Ásgrímur tók til máls um skoðanakannanir og er hann þar ekki sammála kollegum sínum um þörf á fleiri könnunum. Kjörnir fulltrúar hafa umboð til að taka slíkar ákvarðanir.
Ásgrímur spurði einnig um stöðu hafnarinnar.

BIJ svaraði að samningar vegna viðhaldsdýpkunar klárist á morgun.

Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 731
Málsnúmer 1508010F
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 217
Málsnúmer 1507006F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
5.
Breyting á aðalskipulagi, útrás fráveitu.
Málsnúmer 201505001
Páll Róbert tók til máls:
Kynningarferli á tillögu vegna breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030 er lokið.
Ekki eru gerðar efnislegar athugasemdir við breytingartillöguna, en almennar athugasemdir og ábendingar um aðgát við framkvæmdir.
Fyrirhuguðum úrbótum á fráveitu frá Höfn er fagnað og talið sýnt að þær muni hafa jákvæð umhverfisáhrif
Breytingin felur í sér:
A Fráveita og nýtt iðnaðarsvæði í Óslandi, ný útrás fráveitu sunnan hafnarsvæðis og afmarkað nýtt iðnarðarsvæði I6 inna hafnarsvæðis í Óslandi fyrir skólphreinsivirki.
B. Nýtt verslunar- og þjónustusvæði við nýjan Óslandsveg, V 34 er skilgreint við nýjan Óslandsveg sunnan Ásgarðs. Markmið er að auka gistiþjónustu á Höfn með ákveðnum takmörkunum. Forsendur breytingarinnar eru stóraukinn ferðamannastraumur til Hafnar. Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 og hún verði auglýst og send til Skipulagstofnunar til staðfestingar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Málsnúmer 201409090
Páll Róbert tók til máls:
Deiliskipulag Höfnin Ósland var í kynningu frá 21. júlí til 2. september samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030. Auglýst var að nýju þar sem Skipulagsstofnun gerði athugasemd við deiliskipulagstillöguna þar sem stofnunin samþykkti ekki að um óverulega breytingu á aðalskipulagi væri að ræða. Deiliskipulagið er háð framangreindri breytingu á aðalskipulagi, þurfti að auglýsa deiliskipulagstillöguna að nýju samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sem var gert.
Leitað var umsagna hjá stofnunum og lóðarhöfum. Athugasemdir bárust frá Náttúrustofu Suðausturlands. Ákveðið var að koma til móts við athugasemdir með því að fella út lóðir Miðóss 1, 2, og 2a og lóðir Ófeigstanga 2 og 4 og breyta í opið grænt svæði til samræmis við svæðið umhverfis Ferjukletta. Með þessu móti megi komast hjá ónauðsynlegu raski á varplandi fugla, sem samkvæmt athugasemd er að mestu vestan Ferjukletta.
Markmið og skilmálar deiliskiplagstillögunnar eru ma.:
Að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.
Að styrkja hafnsækna starfsemi með því að bjóða upp á lóðir nálægt viðlegukanti.
Að gera grein fyrir legu fráveitu og áhrifum hennar á umhverfi og lífríki.
Að stuðla að aðlaðandi ásýnd svæðisins sem næsta nágrenni friðlands við Ósland.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ásgrímur tók til máls og benti á mistök í skipulaginu við Ósland. Lagði hann fram svo hljóðandi bókun:
Framsóknarmenn í bæjarstjórn Hornafjarðar leggja til að deiliskipulag sem heitir í fundargerð höfnin/Ósland verði sent aftur til hafnarstjórnar og þeirra nefnda sem hafa haft aðkomu að vinnu þess. Þar sem augljóst þykir að orðið hafa mistök við vinnu þess og sá mikilvægi þáttur hefur gleymst að hafa viðlegukant fyrir þá hafnsæknu starfsemi sem gert er ráð fyrir í deiliskipulaginu.

BIJ tók til máls. Sagði hann að framkvæmdir sem um ræðir væru ekki á áætlun á næstu árum. Tók hann undir athugasemdir minnihlutans varðandi skipulagið. Óskaði hann eftir að deiliskipulagið yrði samþykkt en jafnframt að hafnarnefnd yrði falið að skoða hvernig tryggja megi umræddan viðlegukant.

Forseti gerði hlé á fundi.

Ásgrímur tók til máls. Dró hann fyrri bókun til baka og lagði fram eftirfarandi tillögu í staðin:
Framsóknarmenn í bæjarstjórn leggja til að eftirtalin ábending verði tekin til skoðunar í Hafnarstjórn: Í deiliskipulaginu höfnin/Ósland er ekki gert ráð fyrir viðlegukanti við suðurhlið hafnarinnar fyrir þá hafnsæknu starfemi sem gert er ráð fyrir í deiliskipulaginu.

Forseti bar tillögu Framsóknarmanna í bæjarstjórn upp til atkvæða.
Tillaga samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti bar deiliskipulagstillögu upp til atkvæða.
Tillaga samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Málsnúmer 201010059
Páll Róbert tók til máls:
Deiliskipulagstillaga fyrir Hof í Öræfum lögð fram. Helstu markmið tillögunar eru:
Að byggja upp ferðaþjónustu, fjölgun, stækkun og endurbætur á íbúðarhúsum og landbúnaðarbyggingum og stækkun á annars konar atvinnustarfsemi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga. Auglýsa skal tillöguna samhliða breytingartillögu á aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Breyting á landnotkun að Hofi í Öræfum
Málsnúmer 201508008
Páll Róbert tók til máls:
Erindi dags. 1. júlí frá landeigendum að Hofi í Öræfum, þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið samþykki breytta landnotkun að Hofi. Um er að ræða tvær landspildur sem verði færðar úr landbúnaðarnotkun skv. 6. gr. jarðalaga.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytta landbúnaðarnotkun að Hofi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, göngubrú yfir Kolgrafardalsá.
Málsnúmer 201508049
Páll Róbert tók til máls:
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir göngubrú yfir Kolgrafardalsá sem er hluti Jöklaleið, gönguleið meðfram Vatnajökli í sveitarfélaginu. Ekki hefur tekist ná í alla landeigendur að svæðinu til samþykktar. Lagði til að bæjarstjórn samþykkir framkvæmdarleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga með fyrirvara um samþykki landeigenda.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Framkvæmdir við Náttúrustíg árið 2015
Málsnúmer 201409081
Páll Róbert tók til máls:
Umsókn frá Náttúrústofu Suðausturlands um framkvæmdarleyfi við náttúrustíg áætlað er að gera steinagarð við Náttúrustíg á Höfn á túninu vestan við Nýheima.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdleyfi á túninu vestan Nýheima skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum. Sæmundur Helgason sat hjá.
11.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku, Laxá við Meðalfell
Málsnúmer 201508050
Fjallað var um umsóknina í umhverfisnefnd og skipulagsnefnd og gerðu nefndirnar athugasemdir við að sótt hefði verið um leyfið eftir að framkvæmdir hófust.
Páll Róbert tók til máls:
Skipulagsnefnd óskar eftir að leyfisumsækjandi skili inn upplýsingum um frágang námunar eftir að efnistöku er lokið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga, með þeim skilyrðum að upplýsingum um frágang verði unnar.

Ásgrímur tók til máls. Minnir hann á títtrædda lensku í sveitarfélaginu um að framkvæma fyrst og spyrja svo. Spurði hann hvort halda eigi áfram slíku vinnulagi?
Ræddi hann uppskiptingu umhverfis- og skipulagsnefndar og spurði hvort verkaskipting núverandi nefnda annars vegar skipulagsnefnar og hins vegar umhverfisnefndar sé skýr?

BIJ svaraði og tók undir að þetta vinnulag heði tíðkast innan sveitarfélagsins og að erfitt væri að snúa því við. En með uppskiptingu nefnda væri verið að reyna að gefa umhverfismálunum meira vægi.


Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samhljóða samþykkt.
12.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu verkefnum sínum frá síðasta fundi.
13.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.