Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

219. fundur
1. október 2015 kl. 16:00 - 17:36
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 732
Málsnúmer 1509001F
Þórhildur tók til máls undir lið 4 í fundargerð Menningarmálanefndar - Mikligarður. Að hennar mati er mikilvægt að halda áfram viðhaldi og uppbyggingu Miklagarðs.

Kristján tók til máls. Hann tók undir með Þórhildi varðandi mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar á Miklagarði.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 733
Málsnúmer 1509006F
Þórhildur tók til máls undir 7. lið - öldrunarráð. Upplýsti hún að vinna við stofnun öldrunarráðs er hafin og mun félagsmálastjóri verða starfsmaður ráðsins.

Sæmundur tók til máls um göngustíga í sveitarfélaginu. Greindi hann frá vinnu umhverfisnefndar er varðar skipulag göngustíga. Benti hann á að um langtímaverkefni er að ræða sem mun koma öllum íbúum sveitarfélagsins til góða.

Sæmundur tók til máls undir lið 15 - fundargerð SASS - almenningssamgöngur. Sæmundur gerði grein fyrir síðasta fundi SASS og bágri stöðu almenningssamgangna á Suðurland. Sæmundur tók undir þakkir SASS til Fanneuar Bjargar Sveinsdóttur fyrir vel unnin störf.

Ásgerður tók til máls undir lið 7 lýsti ánægju með fund eldri Hornfirðinga 7. september og lýsir hún yfir mikilli ánægju með framtakið og sagði ánægjulegt hve fjölmennt var á fundinum.

Ásgerður tók til máls undir 2. lið fundargerðar Umhverfisnefndar. Að hennar mati er tímasetning umhverfisverðlaunanna í ár er ekki góð, betra væri að hafa þetta að hausti eins og í fyrra.


Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 734
Málsnúmer 1509007F
Ásgerður tók til máls um fundargerð Fræðslu- og tómstundanefndar, 2. liður. leikskólamál í Öræfum hún hefði bundið vonir við að hægt væri að reka leikskóla og grunnskóla sama húsnæði í Hofgarði Öræfum. Benti hún jafnframt á fækkandi nemendafjölda í grunnskólanum því væri æskilegt að efla starfsemina með leikskólaeiningu.

Ásgerður tók til máls undir lið 6. Óskaði hún eftir frekari skýringum á stuðningnum. Einnig spurði hún hvort bæjarstjóri hefði séð framlengdan leigusamning Sporthallarinnar. Að hennar mati er þetta mikilvæg þjónusta í bæjarfélaginu.

Ásgerður lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs um eflingur embættis lögreglustjóra á Suðurlandi að sinni.

Bæjastjórn Hornafjarðar telur ótækt að niðurskurður skuli eiga sér stað í fjármunum til embættis lögreglustjóra á Suðurlandi í drögum að fjárlögum ríkisins fyrir árið 2016. Fjöldi íbúa á bak við hvern lögreglumann á Suðurlandi er 601. Til samanburðar er hann á landinu öllu 500 íbúar. Þess fyrir utan er ferðamannafjöldinn langmestur um Suðurland. Fjöldi ferðamanna er tvöfalt meiri en fyrir tveimur árum. Fjölgunin er um 500.000 ferðamenn.

Björn Ingi tók til máls um leikskóla í dreifbýli. Að hans mati er þetta þarft málefni. Komið hefur í ljós að framkvæmdin er kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir sökum þess lagaumhverfis sem við búum við. Bendir hann á að auðveldara væri að opna daggæslu. Að hans mati er mikilvægt að vinna áfram að lausn þessara mála.

Björn Ingi svaraði fyrirspurn Ásgerðar um stuðning við Sporthöllina. Greindi hann frá því að Sporthöllin lagði fram skjal með efniskostnaði og vinnu, í framhaldi af afgreiðslu bæjarráð tekur sveitarfélagið þátt í efniskostnaði. Varðandi leigusamninginn sagðist Björn hafa heimildir fyrir því að leigusamningur sé til staðar með 3-6 mánaða uppsagnarákvæði. Tekur hann undir með Ásgerði um mikilvægi starfseminnar í sveitarfélaginu en bendir á að ekki er æskilegt að sveitarfélagið styrki almenn fyrirtæki á markaði.

Björn Ingi tók undir orð Ásgerðar með embætti lögreglustjóra á Suðurlandi.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.


Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 735
Málsnúmer 1509013F
Björn Ingi tók til máls undir fundargerð Atvinnumálanefndar liður 4 Fjallskil. Bendir á að sveitarfélagið þurfi að endurskoða og bæta þessi málefni í sveitarfélaginu. Bæjarstjóri og starfsmanni atvinnumálanefndar hefur verið falið að vinna að málinu. Greindi hann frá því að á næstu misserum verður haft samband við bændur og óskar hann eftir góðu samstarfi.

Lovísa tók til máls um stöðu HSU Hornafirði. Reksturinn er erfiður um þessar mundir vegna aukins launakostnaðar. Jafnframt benti hún á mikinn kostnaðarmun milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar vegna sjúkraflutninga, en þjónustan er mun þyngri í rekstri fyrir landsbyggðina.

Lovísa lagði fram eftirfarandi bókun.

Bæjarstjórn Hornafjarðar er sannfærð um að mikill árangur hafi náðst á þeim 19 árum sem sveitarfélagið hefur séð um rekstur heilbrigðisstofnunnar. Töluverð samþætting á þjónustu til íbúa svo sem í heimaþjónustu og teymisvinnu sem gerir reksturinn hagkvæmari en ella. Íbúum hefur verið gert kleift að búa lengur heima sem hefur leitt af sér fækkun hjúkrunarrýma, sem var m.a. tilgangur þessa tilraunaverkefnis sem þjónustusamningur um rekstur heilbrigðisstofnana var 1996.
Það er skýr vilji Bæjarstjórnar Hornafjarðar að þjónustusamningurinn verði endurnýjaður áður en núverandi samningur rennur út í lok árs 2016.

Ásgerður tók til máls og tók heilshugar undir orð Lovísu.

Ásgerður tók til máls um ýmis atriði í fundargerðum bæjarráðs og fagnar kraftinum í vinnu nefndanna og þeirri miklu grósku sem ríkir í sveitarfélaginu. Ræddi hún einnig fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2016. Ljóst er að mikil óvissa er í rekstri sveitarfélaga þá einna helst vegna launaþróunar. Einnig bendir hún á óvissu vegna innflutningsbanns Rússa sem þegar hefur haft áhrif í sveitarfélaginu. Ásgerður bendir á að forgangsröðun skiptir mjög miklu máli í slíku árferði.

Björn Ingi tók til máls um forgangsröðun verkefna á næstu misserum. Lagði hann áherslu á áframhaldandi aga í rekstri sveitarfélagsins þannig að reksturinn skili áfram tekjum til móts við framkvæmdir og afborganir.

Ásgerður tók til máls og vill að sveitarfélagið haldi áfram að vaxa og dafna en ávallt þurfi að gæta ákveðinnar varfærni, ekki síst vegna ríkjandi óvissu.

Forseti bar bókun upp til atkvæða samþykkt með sjö atkvæðum.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 218
Málsnúmer 1508008F
Lögð fram til kynningar.
6.
Starfsreglur Gjafa- og minninga
Málsnúmer 201506009
Björn Ingi gerði grein fyrir helstu breytingum á starfsreglum sem voru vegna nafnabreytinga á stofnuninni og nú heyrir sjóðurinn undir bæjarráð.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki starfsreglurnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Siðareglur starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201509040
Björn Ingi greindi frá að siðareglur hafi áður verið hluti af starfsmannastefnu sveitarfélagsins en voru teknar út úr henni við endurskoðun stefnunnar.
Með skráningu siðareglna sveitarfélagsins eru helstu þættir þeirrar siðferðilegu ábyrgðar sem er hluti af störfum allra starfsmanna sveitarfélagsins fest í sessi, í þeim tilgangi að hvetja og aðstoða starfsmenn við að sinna störfum sínum á vandaðan og árangursríkan hátt.
Siðareglurnar voru endurskoðaðar af þriggja manna teymi og lögfræðingi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki siðareglur starfsmanna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Málsnúmer 201501051
Sæmundur tók til máls. Benti hann á að sameining leikskólanna væri hluti af málefnasamningi meirihlutans. Fór hann jafnframt yfir þróun verkefnisins frá kosningum 2014.

Lögð er fram eftirfarandi tillaga:
Í ljósi niðurstöðu úr skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og rekstrarniðurstöðu KPMG verði leikskólarnir Krakkakot og Lönguhólar sameinaðir undir eitt þak. Einn leikskóli fyrir börn á leikskólaaldri taki til starfa eigi síðar en í ágúst 2017.
Til að halda utan um þessar breytingar verði stofnaður starfshópur sem verði fræðslu- og tómstundarnefnd, bæjarráði og bæjarstjórn til ráðgjafar um framgang málsins. Starfshópurinn vinni eftir aðgerðaráætlun um breytingar á ytri umgjörð leikskóla á Höfn.

Ásgerður tók til máls. Áréttaði hún að á sínum tíma lagði hún fram fyrirspurnir um skoðanakönnunina og fékk hún þá þau svör að best væri að láta fagmennina um þetta og meira gat hún ekki komið að málinu.

Fór hún yfir tillögur um nýtingu húsnæðis leikskólans Lönguhóla eftir sameiningu leikskólanna og mögulega nýtingu fyrir málefni fatlaðra. Spurði hún um atriði úr skýrslu KPMG vegna byggina og breytinga á húsnæði vegna málefna fatlaðra. Hvort hafi farið fram formlegt mat á húsnæðiþörf málefna fatlaðra.

Björn Ingi svaraði því til farið hefði verið yfir núverandi húsnæðismál málaflokksins með forstöðumanni og niðurstða þess hefði veirð að um 250fm húsnæði myndi rýma þjónustuna næstu árin.

Ásgerður tók til máls og að hennar mati er þjónustan á Silfurbraut mikilvæg ekki síst vegna staðsetningar.
Greindi hún frá að hún muni sitja hjá í atkvæðagreiðslu tillögunnar.

Björn Ingi tók til máls og benti á að ekki væri fyrirhugað að leggja starfsemina á Silfurbraut niður.

Forseti bar tillögu upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján Sigurður Guðnason og Gunnhildur Imsland sátu hjá.
9.
Starfshópur um breytingar á ytri umgjörð leikskólanna á Höfn
Málsnúmer 201507026
Björn Ingi greindi frá að ákveðið var að koma á fót starfshópi um breytingar á ytri umgjörð leikskólanna á Höfn. Erindisbréf og aðgerðaráætlun liggur fyrir og hafa fengið umfjöllun í fræðslu- og tómstundanefnd og í bæjarráði.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréf og aðgerðaráætlun fyrir starfshóp um ytri umgjörð leikskóla.

Kristján tók til máls og að hans mati er stofnun starfshóps gott skref. En telur það vera nóg og óþarfi að leggja aðgerðaáætlun fyrir hópinn.

Ásgerður tók til máls og fagnar stofnun starfshópsins og sagðist hún jafnframt ekki setja aðgerðaáætlunina fyrir sig í þessum efnum.

Björn Ingi tók til máls og benti á að við erum ekki fyrsta sveitarfélagið sem fer í gegnum sameiningu skólastofnana og samkvæmt því sem meirihlutinn hefur kynnt sér koma stýrihópar eða starfshópar ætíð að máli. Sagðist hann ekki efast um að menn gætu unnið að þessu máli í sameiningu og komist að ásættanlegri niðurstöðu.

Kristján tók til máls og benti á að ekki væru allir sáttir um fyrirhugaðar breytingar í leikskólamálum.

Björn Ingi tók til máls. Greindi hann frá því að fræðslustjóri hefur unnið að aðgerðaáætluninni með starfsfólki og viðkomandi hagsmunaaðilum.

Forseti bar tillögu að erindisbréfi upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

Forseti bar tillögu að aðgerðaráætlun upp til atkvæða.
Samþykkt með 6 atkvæðum. Kristján Sigurður Guðnason sat hjá.

Lovísa greindi frá eftirfarandi tilnefningum í starfshópinn,
Sæmundur Helgason fulltrúi E lista sem verður jafnfram formaður hópsins
Bergþóra Ágústdóttir fulltrúi D lista
Gunnhildur Imsland fulltrúi B lista
Leikskólastjórar beggja leikskólanna.
jafnframt eiga sæti í stýrihópnum fulltrúar foreldra beggja leikskóla og fulltrúar starfsmanna beggja leikskólanna.
Bar tilnefninguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, fráveita Höfn
Málsnúmer 201509073
Sæmundur greindi frá ósk sveitarfélagsins um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda fyrir nýja útrás skolps fyrir fráveitu og nýtt vegstæði fyrir Óslandsveg. Framkvæmdirnar samræmast aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Ráðning Skipulagsstjóra
Málsnúmer 201509019
Björn Ingi greindi frá ráðningu skipulagsstjóra Gunnlaugs Róbertssonar, ráðning hans var samþykkt í bæjarráði. Fjórir umsækjendur sóttu um stöðuna.
Bæjarstjóri óskaði eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnanda er að ræða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201501002
Forseti bar upp tillögu að breytingu í fræðslu- og tómstundanefnd.
Lars Jóhann Andrésson hættir sem varamaður E lista.
Ottó Marvin Gunnarsson kemur inn sem varamaður E lista í hans stað.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

13.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.
14.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.