Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

220. fundur
5. nóvember 2015 kl. 16:00 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 736
Málsnúmer 1509019F
2. liður - Staða og þróun á húsnæðismarkaði
BIJ tók til máls um skýrslu sem félagsmálastjóri tók saman um húsnæðismarkaðinn. Ljóst er að húsnæðisskortur er á svæðinu og staðan alvarleg. Aðgerðir sveitarfélagsins t.d. niðurfelling gatnagerðargjalda hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Í skoðun eru möguleikar á byggingu leiguíbúða. Er sú vinna hjá KPMG og vonast er eftir niðurstöðu fyrir lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins í desember.

3. liður - Ljósleiðaravæðing Íslands
BIJ tók til máls undir þessum lið. Ríkisstjórnin stefnir að því að koma ljósleiðaratengingu á hvert lögbýli í landinu í náinni framtíð. Sveitarfélagið hefur óskað eftir kostnaðarþátttöku ríkisins til að klára þessi mál í sínum sveitum.

9. liður - Sjávarþorpið Höfn
Þórhildur tók til máls um nýútkomna skýrslu um Sjávarþorpið Höfn. Hvetur hún alla til að kynna sér skýrsluna og að nefndir sveitarfélagsins noti hana við stefnumótun.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 737
Málsnúmer 1510003F
3. liður - Hafnarstjórn Hornafjarðar
Ásgerður tók til máls. Spurði hún hvernig staðan er á greiðslum fá ríkinu vegna Grynnslanna. BIJ svaraði að enn hafi ekki borist greiðslur frá ríkinu en málið er í vinnslu hjá ráðherra. Upphæðin sem um er að ræða er 32 mkr án vsk.

5. liður - Verkefnastjóri við skólaskrifstofu
BIJ tók til máls um að ákvörðun um að vísa málinu til bæjarstjórnar að tilmælum bæjarstjóra sé ekki í samræmi við gildandi samþykktir sveitarfélagsins. Ásgerður tók til máls og gerði grein fyrir atkvæði sínu í bæjarráði en að hennar mati á að auglýsa stöðuna.

4. liður - Almannavarnanefnd
Ásgerður tók til máls. Þakkaði hún öllum þeim sem komu að flugslysaæfingunni. Ræddi hún einnig flutning lögreglunnar á Höfn frá Austurlandi til Suðurlands. Að hennar mati var þetta rétt ákvörðun sem mun efla löggæslu á svæðinu. BIJ tók undir orð Ásgerðar um breytingar í löggæslumálum. Þakkaði hann einnig þátttakendum flugslysaæfingar.


Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 738
Málsnúmer 1510007F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 739
Málsnúmer 1510015F
1. liður - Atvinnumálanefnd
Ásgerður tók til máls og fagnar því hversu samtaka atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd eru í þróunarvinnunni um Jökulheima. Bindur hún vonir við að fjárfestar sýni verkefninu áhuga og að verkefnið verði að veruleika. Einnig ræddi hún mikilvægi þess að huga að framtíð Miklagarðs.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 740
Málsnúmer 1510017F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 219
Málsnúmer 1509016F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Álagningareglur 2016
Málsnúmer 201510086
Björn Ingi kynnti tillögu að álagningarreglum 2016:
Útsvar 14,52%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fm. (leyfilegt hámark 0,625%)
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,62% af fm. (leyfilegt hámark 1,65%)
Lóðaleiga 1% af lóðamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Ásgerður tók til máls og minnti á ósk sína frá síðasta bæjarráðsfundi um að skoðað verði hvort hækka eigi fasteignaskattsprósentu á atvinnuhúsnæði upp í leyfilegt hámark, þ.e. í 1,65%. BIJ greindi frá því að sú vinna er í gangi og verður væntanlega kynnt á næsta bæjarráðsfundi.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201509016
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri kynnti fjárhagsáætlun 2016.
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2016-2019 eru eftirfarandi.


2016
2017
2018 2019
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 159.019
186.801 188.335 186.789
Skuldir í hlutfalli af tekjum 62,80%
60,30% 62,73% 58,63%
Framkvæmdir (m.kr.)
350.000
245.000 300.000 225.000
Framlegð %
14,93%
16,02% 16,15% 16,15%
Veltufé frá rekstri (m.kr.) 323.261
354.189 357.707 359.038
Handbært fé í árslok (m.kr.) 148.827
160.687 239.017 250.152
Afborganir langtímalána
(131.473) (147.329) (129.377) (122.903)
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 120.000
50.000 150.000

Langtímalán við lánastofnanir 683.714
624.247 669.895 629.695


Lagði til að fjárhagsáætlun 2016 yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Þriggja ára áætlun 2017-2019
Málsnúmer 201510087
Björn Ingi kynnti þriggja ára áætlun 2017-2019. Vísað er til fyrri bókunar undir liðnum fjárhagsáætlun 2016 fyrri umræða.
Lagði til að þriggja ára ætlun yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Samþykkt um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201507034
Björn Ingi kynnti tillögu að nýrri samþykkt um fráveitu, sagði nauðsynlegt að sveitarfélagið eigi samþykktir um fráveitu þar sem ný fráveita á Höfn er í vinnslu og nýlokið er við gerð nýrrar hreinsistöðvar í Nesjum. Fráveitusamþykkt þarf að hafa að leiðarljósi stefnu málaflokksins í sveitarfélaginu. Samþykktirnar voru unnar í samstarfi við HAUST og lög nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu höfð til hliðsjónar.
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn samþykki samþykkt um fráveitu og vísi henni til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201505076
Björn Ingi kynnti tillögu að nýrri samþykkt um meðhöndlun úrgangs, sagði nauðsynlegt að sveitarfélagið eigi samþykktir um meðhöndlun úrgangs sem hafa að leiðarljósi stefnu þess málaflokks í sveitarfélaginu. Samþykktirnar voru unnar með lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 til hliðsjónar.
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn samþykki samþykkt um meðhöndlun úrgangs og vísi henni til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Málsnúmer 201112005
Sæmundur greindi frá lýsingu sem hefur verið unnin að deiliskipulagi Holts á Mýrum.
Markmið deiliskipulagsins er tvíþætt.
Annarsvegar að þróa áfram þá hugmynd að útbúa lóðir undir íbúðarhús í samræmi við þá byggð sem er þar í dag.
Hinsvegar að útbúa aðstöðu í og við Félagsheimilið Holt sem verði nýtt í framtíðinni sem aðstaða fyrir minni uppákomur.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að kynna lýsinguna skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag Miðbæjarsvæði
Málsnúmer 201511008
Sæmundur greindi frá að skipulagsnefnd óskaði á fundi sínum þann 7. október eftir heimild til að endurskoða deiliskipulag miðbæjar, þar sem ekki hefur verið unnið samkvæmt eldra skipulagi.
Lagði til að bæjarstjórn heimili breytingu á deiliskipulagi á Miðbæjarsvæði skv. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, langning vegar og bygging brúar yfir Morsá.
Málsnúmer 201511004
Erindi frá Vegagerðinni dags. 2. nóvember 2015 þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi á nýrri brú yfir Morsá í stað gömlu Skeiðarárbrúar.
Sæmundur gerði grein fyrir framkvæmdinni sem er á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030. Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, Fjallsárlón
Málsnúmer 201510081
Sæmundur gerði grein fyrir verkinu sem felst í því að byggja upp og endurgera veg frá þjóðvegi 1 að væntanlegu bílastæði. Leggja á bílaplan og viðeigandi frárennsli og lagnir vegna þjónustubygginga. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á svæðinu á deiliskipulagi sem samþykkt var 9. maí 2015.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

16.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, smávirkjun. Setbergsheiði
Málsnúmer 201509112
Sæmundur greindi frá að Skipulagsstofnun staðfesti að framkvæmdin fellur undir ákvæði laga nr. 109/2000 um mat á umhverfisáhrifum C-flokk og er því ekki matskyld.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið en bendir framkvæmdaaðila á að vinna framkvæmdina með sem minnstu óafturkræfu jarðraski.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, Dalbraut 2
Málsnúmer 201510082
Sæmundur greindi frá framkvæmdum vegna fráveitu við Dalbraut 2 og lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdarleyfið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið.
Samþykkt samhljóða.
18.
Ósk um framkvæmdaleyfi Sameigendafélagið Fell
Málsnúmer 201509025
Erindi frá Sameigendafélaginu Fell dags. 2. september 2015 þar sem óskað er eftir að gera veg og bílastæði.
Sæmundur sagði að sveitarfélagið geti ekki tekið afstöðu til umsóknar Sameigendafélags Fells fyrr en samþykki allra sameigenda jarðarinnar Fells liggur fyrir. Þörf er á samþykki allra sameigenda fyrir framkvæmdum á landareign sem þeir eiga í óskiptri sameign.
Lagði til að óskað verði eftir skriflegu samþykki allra sameigenda Fells svo hægt sé að taka afstöðu til umsóknarinnar, sbr. 3. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. lið 2. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Lagði til að bæjarstjórn hafni erindinu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum að hafna erindinu.


19.
Umsókn um byggingarleyfi, Íbúðarhús. Dilksnesi
Málsnúmer 201509130
Sæmundur greindi frá að grenndarkynning hefur farið fram fyrir þá nágranna sem geta átt hagsmuna að gæta, engar athugasemdir voru gerðar við byggingaleyfið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki byggingaleyfið skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
20.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðast liðinn mánuð.
21.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.