Bæjarstjórn Hornafjarðar
221. fundur
3. desember 2015
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Forseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 741
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 742
2. 1511004F - Hafnarstjórn Hornafjarðar
Ásgerður tók til máls undir þessum lið. Að hennar mati ætti Hornafjarðarhöfn að halda áfram þátttöku í Cruise Iceland. Vildi hún sérstaklega vekja athygli ferðaþjónustuaðila á þessu verkefni og vonast eftir þátttöku þeirra.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Ásgerður tók til máls undir þessum lið. Að hennar mati ætti Hornafjarðarhöfn að halda áfram þátttöku í Cruise Iceland. Vildi hún sérstaklega vekja athygli ferðaþjónustuaðila á þessu verkefni og vonast eftir þátttöku þeirra.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 743
1. Fundargerð Fræðslu- og tómstundanefndar.
Sæmundur ræddi um niðurstöður úr samræmdum prófum og úr Skólapúlsinum. Hann tekur undir áhyggjur starfsfólks skólans af sterkum vísbendingum mælinganna um einelti. Að hans mati gefur Skólapúlsinn til kynna að of mörgum nemendum líður illa, upplifa baktal og ljótt orðbragð, bæði innan og utan skólans.
Sæmundur bendir á að skólinn er ekki eyland í umræðu um einelti. Skólinn endurspeglar samfélagið sem við búum í. Hann varar við þöggun um málefnið einelti og skorar á samfélagið að taka þátt í vinnu með skólanum og opna á umræðu um einelti.
Ásgerður tók til máls undir þessum lið. Tekur hún undir orð Sæmundar varðandi eineltismálin. Fagnar hún viðbragðsaðgerðum skólans og hvetur samfélagið allt til að leggja sitt af mörkum í þessu málefni.
Ásgerður tók til máls um gjaldskrá sundlaugar. Að hennar mati skortir skýran rökstuðning nefndarinnar vegna stefnubreytingar hvað varðar frítt í sund fyrir öll börn. Einnig tók hún til máls um fundargerð velferðarteymis og óskar eftir umræðu um ákvörðunartöku í bæjarráði um heilsueflandi samfélag.
Björn Ingi svaraði því að gjaldskráin hafi ekki farið fyrir bæjarstjórn nema um verulegar breytingar sé að ræða. Einnig nefnir hann að skortur er á reglum um hvaða gjaldskrár þurfi að fara fyrir bæjarstjórn. Tekur hann fram að í ljósi þess hve þungur rekstur sundlaugarinnar er, eru ekki rök fyrir að veita börnum sem ekki búa í sveitarfélaginu frían aðgang að sundlauginni. Sagði hann það vilja meirihlutans að hlúa frekar að þörfum íbúa. Kristján tók til máls um leikskólamálin. Kallar hann eftir svörum um hvar málið er statt, þar sem hann upplifir misvísandi skilaboð um hvort byggja eigi nýtt húsnæði, byggja við annan hvorn leikskólann eða halda við núverandi fyrirkomulag. Einnig benti hann á mikilvægi þess að unnið sé að málinu í nánu samstarfi við það góða starfsfólk sem vinnur í þessum málaflokki.
Björn Ingi svaraði því að samkvæmt niðurstöðu könnunar þá væri ekki fýsilegur kostur að vera með leikskólann í tveimur byggingum eins og nú er og því er unnið út frá öðrum kostum, þ.e. viðbygging eða nýtt húsnæði.
8. Nauðasamningaumleitanir húsnæðissamvinnufélagsins Búmanna ehf
Ásgerður tók til máls undir þessum lið og kallar eftir því að bæjarstjóri komi á fundi með því fólki í sveitarfélaginu sem eiga hagsmuna að gæta í málinu. Björn Ingi tók undir ábendingu Ásgerðar um að koma á umræddum fundi með hagsmunaðilum.
9. Slökkvibifreið Ford F550
Ásgerður tók til máls. Fagnar í hvaða farveg málið er komið. Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Ásgerðar um mikilvægi nýrrar slökkvibifreiðar.
3. Fimleikadeild Sindra inn í Mánagarð
Gunnhildur tók til máls. Fagnar hún fyrirhuguðum flutningi deildarinnar inn í Mánagarð. Að hennar mati verður breytingin deildinni til framdráttar. Björn Ingi tók undir orð Gunnhildar.
4. Húsnæði Hirðingjanna
Gunnhildur tók til máls og fagnar framtaki Hirðingjanna í þágu samfélagsins.
10. Viðbragðshópur
Björn Ingi tók til máls um hugmyndir að láglendisvakt í sveitarfélaginu til að bregðast við auknum fjölda ferðamanna í sýslunni. Leitað hefur verið eftir þátttöku ríkisins í þessu verkefni.
11. Staða og þróun á húsnæðismarkaði
Björn Ingi tók til máls og greindi frá vinnu sveitarfélagsins ásamt KPMG við að finna mögilegar leiðir til lausna á húsnæðisvanda á svæðinu.
12.-14. Ályktanir frá Kvenfélaginu Ósk.
Ásgerður tók til máls og fagnar ályktunum frá kvenfélaginu.

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 744
1. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
Björn Ingi tók til máls um rekstrarvanda HSU Hornafirði og tregðu í að launabætur skili sér frá HSU Selfossi til HSU Hornafirði. Mikilvægt er að hans mati að koma á þjónustusamningi við HSU til framtíðar þannig að hægt sé að tryggja öruggan rekstur HSU á Hornafirði. Fagnar hann jafnframt breyttu nafni hjúkrunardeildar í Skjólgarð.
Ásgerður tók til máls og vildi minna á að stofna öldungaráð.
2. Fræðslu- og tómstundanefnd
Gunnhildur tók til máls um ungmennaráð. Tekur hún undir hugmyndir ráðsins um ungmennahús og ráðningu starfsmanns.
Kristján tók til máls um matarsmiðjuna. Að hans mati þarf að hlúa að framtíð hennar í sveitarfélaginu
5. Staða og þróun á húsnæðismarkaði.
Ásgerður tók til máls og fagnar vinnu við umrædda skýrslu í samstarfi við KPMG enda um þarft verkefni að ræða. Bendir hún á að ef komi til aðgerða sé það neyðarúrræði til að bregðast við fasteignamarkaði þar sem þetta er ekki lögbundið skylduverkefni sveitarfélagsins. Að hennar mati ætti að byggja litlar íbúðir.

5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 220
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Álagningareglur 2016
Álagningarreglur 2016
Björn Ingi kynnti tillögu að álagningarreglum 2016, eina breytingin á milli umræðna er á fasteignaskatti C á atvinnuhúsnæði hækkar úr 1,62% í 1,65%. Áætluð hækkun á tekjum sveitarfélagsins eru 1.400.000 kr.
Útsvar 14,52%
Fasteignaskattur A á íbúðahúsnæði 0,50% af fm ( hám. 0,625%)
Fasteignaskattur B á opinberar stofn. 1,32% af fm ( hám. 1,32% )
Fasteignaskattur C á atvinnuhúsnæði 1,65% af fm ( hám. 1,65%)
Lóðaleiga 1% af lóðamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Lagði til að bæjarstjórn samþykki álagningarreglur 2016.
Sæmundur gerði grein fyrir atkvæði sínu og sagðist leggja til að nýta þá tekjuaukningu sem skapast vegna hækkunar á álagningarreglum í C á atvinnuhúsnæði verði nýtt til styrkingar á Atvinnu- og rannsóknarsjóði.
Lovísa tók til máls og gerði grein fyrir afstöðu sinni um hækkun álagningar í C flokki. Að hennar mati er það ekki réttlætanlegt né tímabært að hækka álögur á fyrirtæki á svæðinu. En sagði hún sig hlynnta því að nýta umrædda tekjuhækkun til eflingar Atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
Ásgerður tók til máls. Sagði hún umrædda tekjuaukningu ekki háa en að hennar mati er um að ræða prinsipp mál í því að nýta tekjustofna sem sveitarfélaginu býðst, sérstaklega í ljósi þess að sveitarfélög kalla almennt eftir auknum tekjumöguleikum og því nærtækast að byrja á því að fullnýta núverandi tekjumöguleika.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

7.
Fjárhagsáætlun 2016
Björn Ingi fór yfir og kynnti fjárhagsáætlun 2016.
Fjárhagsáætlun er það verkfæri bæjarstjórnar sem stýrir rekstri sveitarfélagsins og í henni koma fram áherslur bæjarstjórnar.
Breytingar á rekstri milli umræðna.
Tekjur:
Fasteignaskattur: Hækkun um 1.400.000 kr. vegna hækkunar á álagningu í flokki C, atvinnuhúsnæði, úr 1,62% í 1,65%.
Gjöld:
Launaáætlun: Endurreiknuð út frá þeim kjarasamningum sem hafa verið samþykktir. Enn er ósamið fyrir stóran hluta starfsmanna og í ljósi óvissunnar hefur áætluð launahækkun verið tekin út af deildum og sett á miðlægan launabreytingalið, að undanskildum þeim starfsmönnum sem samið hefur verið fyrir (kennarar og skólastjórar).
Akstur nemenda hækkar um 1,5 m.kr. vegna skólaaksturs milli Öræfa og Hafnar og vegna aksturs fimleikaiðkenda þar sem fimleikadeildin mun flytja út í Mánagarð á næstu vikum.
Hækkun á framlagi til SASS, um 681 þ.kr., vegna sóknaráætlunar 2016.
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árið 2016:
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
175.051
Skuldir í hlutfalli af tekjum
62,44%
Framkvæmdir (m.kr.)
350.000
Framlegð %
15,24%
Veltufé frá rekstri (m.kr.)
330.748
Handbært fé í árslok (m.kr.) 157.763
Afborganir langtímalána (m.kr.)
130.024
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 120.000
Langtímalán við lánastofnanir (m.kr.) 678.045
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlun 2016.
Sæmundur lagði fram breytingartillögu við fjárhagsáætlun 2016:
Lagt er til að sú tekjuaukning, sem verður til við hækkun fasteignaskattsprósentu á atvinnuhúsnæði verði nýtt til styrkingar á Atvinnu- og rannsóknarsjóðs sveitarfélagsins til næstu þriggja ára.
Ásgerður tók til máls.Velti hún því upp hvort ekki sé rétt að ganga alla leið og bjóða uppá almennar íbúakosningar um forgangsröðun framkvæmda sveitarfélagsins?
Fjölmörg verkefni eru framundan, skylduverkefni og önnur sem geta auðgað atvinnulíf, mannlíf og lífsgæði íbúa. Leggur hún til að bæjarstjórn íhugi þennan kost alvarlega og taki afstöðu til hans fyrir undirbúning fjárhagsáætlunar ársins 2017.
Hún sagði að hér liggi fyrir fjárhagsáætlun sem unnin hefur verið í ágætri samvinnu kjörinna fulltrúa og starfsmanna. Óvissa er, bæði varðandi útgjöld og framkvæmdir. Áætluð rekstarniðurstaða er þó þannig að við getum vel við unað. Skuldastaða sveitarfélagsins er góð og sagði hún að margir sveitarstjórnarmenn víða um landið myndu gjarnan vilja skila fjárhagsáætlun með þessum tölum sem við sjáum hér.
Forseti bar tillögu um nýtingu tekjuaukningar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillögu bæjarstjóra um fjárhagsáætlun 2016 upp til atkvæða.

8.
Þriggja ára áætlun 2017-2019
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2017 - 2019 eru eftirfarandi:
2017
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
199.148
Skuldir í hlutfalli af tekjum 59,85%
Framkvæmdir (m.kr.)
245.000
Framlegð %
16,41%
Veltufé frá rekstri (m.kr.)
363.892
Handbært fé í árslok (m.kr.) 181.100
Afborganir langtímalána (m.kr.) 145.555
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 50.000
Langtímalán við lánastofnanir (m.kr.) 17.925
2018
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
199.769
Skuldir í hlutfalli af tekjum
62,27%
Framkvæmdir (m.kr.)
300.000
Framlegð %
16,55%
Veltufé frá rekstri (m.kr.)
367.703
Handbært fé í árslok (m.kr.)
270.720
Afborganir langtímalána (m.kr.)
128.082
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)
150.000
Langtímalán við lánastofnanir (m.kr.) 663.517
2019
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
196.974
Skuldir í hlutfalli af tekjum
58,22%
Framkvæmdir (m.kr.)
25.000
Framlegð %
16,55%
Veltufé frá rekstri (m.kr.)
369.013
Handbært fé í árslok (m.kr.)
293.016
Afborganir langtímalána (m.kr.)
121.717
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)
Langtímalán við lánastofnanir (m.kr.) 623.560
Forseti bar tillögu bæjarstjóra um þriggja ára áætlun upp til atkvæða.

9.
Lántaka 2015-2016
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarstjórn Sveitarfélags Hornafjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að 300.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við minnisblað fjármálastjóra og lánstilboð Lánasjóðsins sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að standa undir fjárfestingum í fráveitu á vegum sveitarfélagsins.
Jafnframt er Birni Inga Jónssyni kt. 260468-3409, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélags Hornafjarðar, sbr. 5. mgr. 55. gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

10.
Breyting á aðalskipulagi, Hof Öræfum
Sæmundur greindi frá að breyting á aðalskipulagi 2012-2030 Hofi hefur verið í kynningu og er henni lokið.
Fyrirhugaðar breytingar ná yfir landsvæði Hofs í Öræfum.
Breytingin felst í að stækka atvinnusvæði sunnan Hringvegar
og afmarka íbúðarsvæði norðan Hringvegar.
Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Fyrirhugaðar breytingar ná yfir landsvæði Hofs í Öræfum.
Breytingin felst í að stækka atvinnusvæði sunnan Hringvegar
og afmarka íbúðarsvæði norðan Hringvegar.
Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Málinu frestað þar sem umsögn Minjastofnunar hefur ekki borist.
12.
Deiliskipulag Útbæ Höfn
Sæmundur kynnti deiliskipulagsatillögu fyrir útbæ Höfn. Sagði markmið með gerð deiliskipulagsins að skilgreina ramma utan heilsteypta byggð sem nýtir kosti umhverfis og styrkir bæjarmynd Hafnar. Nyrst á miðsvæðinu er gert ráð fyrir tveggja hæða byggð. Á opna svæðinu miðar skipulagið við að auka kosti svæðisins til útivistar. Í fólkvanginum í Óslandi er gengið út frá óbreyttri skipan göngustíga og við útsýnisstað og minnisvarða. Fallið verður frá gerð lýsingar þar sem meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi 2012-2030. Kynningarfundur var haldinn 3. desember.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Samþykkt um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Þórhildur greindi frá að samþykktin hafi fengið umræðu bæjarstjónar og er lögð fram óbreytt til síðari umræðu.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki samþykkt um fráveitu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki samþykkt um fráveitu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði
Þórhildur greindi frá að samþykktin hafi fengið umræðu bæjarstjónar og er lögð fram óbreytt til síðari umræðu.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki samþykkt um meðhöndlun úrgangs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki samþykkt um meðhöndlun úrgangs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Reglur Atvinnu- og rannsóknarjóðs
Björn Ingi greindi frá að breytingar á reglum Atvinnu- og rannsóknarsjóðs hafa verið í vinnslu hjá atvinnumálanefnd. Reglurnar voru gerðar skilmerkilegri með því að samhæfa texta og greinar og gefa þeim heiti. Í forsendum við styrkúthlutun var bætt við, að verkefni sem skekkja ekki samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem fyrir eru starfandi í Sveitarfélaginu, komi til greina við úthlutun.
Þá var útbúinn matsrammi til að nota við mat á umsóknum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á reglum Atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Þá var útbúinn matsrammi til að nota við mat á umsóknum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á reglum Atvinnu- og rannsóknarsjóðs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna vegtengingar og efnistöku frágangs bílastæðis.
Sæmundur gerði grein fyrir umsókn Minjastofnunar um framkvæmdaleyfi vegna vegtengingar og bílastæðis vegna áningarstaðar við Klif í Lónsfirði. Efnistaka í fyllingu og burðarlag er í námu við Þorgeirstaðará. Náman er í 2,8 km fjarlægð frá áningarstaðnum, efnismagn er áætlað um 870 m³ jafna á efnistökusvæðið í verklok í samráð við eftirlit.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagningu á ljósleiðra milli Hrollaugsstaða og Kálfafellsstaðra.
Sæmundur gerði grein fyrir umsókn Orkufjarskipta um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara á milli Breiðabólstaðar og Hrollaugsstaða í Suðursveit og rafmagns frá Steinavötnum að Hrollaugstað sömu leið.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Kosningar í nefndir
í Fræðslu og tómstundanefnd.
Varamaður D-lista Þóra Björg Gísladóttir í stað Önnu Maríu Kristjánsdóttur.
Forseti bar kosningu upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Í Félagsmálanefnd:
Aðalmaður, Páll Guðmundsson fyrir D- lista í stað Karls Sigurðar Guðmundssonar og Þorbjörg Helgadóttir verður varaformaður nefndarinnar í stað Karls Sigurðar Guðmundssonar.

19.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.
20.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar fyrirspurnir hafa borist.