Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

223. fundur
11. febrúar 2016 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf Ingunn Björnsdóttir Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 750
Málsnúmer 1601007F
2 Umhverfisnefnd
Sæmundur tók til máls undir 1. lið í 12. fundargerð umhverfisnefndar og 13. fundargerð umhverfisnefndar. Fyrsta mál á dagskrá 12. fundar umhverfisnefndar var umræða um Stöðu í sorpi og endurvinnslu.
Umgengni um endurvinnslutunnurnar var léleg um og yfir jólin. Starfsmaður umhverfisnefndar, Bryndís Bjarnason skrifaði 3 greinar í Eystrahorn í anda umræðunnar frá fundinum. Þar er farið í það hvernig sorpflokkunin er hugsuð og til hvers við eiginlega erum að þessu.
Málaflokkurinn kostar okkur um 67,5 milljónir á ári. Tekjurnar sem við innheimtum á móti eru tæpar 45 milljónir, eða um 60%. Samkvæmt lögum þá mætti og ætti sveitarfélagið að innheimta kosnaðinn allann. Þetta myndi valda auknum álögum á íbúanna. En með því að flokka og flokka betur þá getum við selt stóran hluta af sorpinu eða búið það þannig úr garði að fyrirferðin verður lítil sem enginn og urðunarkostnaðurinn þ.a.l. minni. Urðunin er mjög kostnaðarsöm og urðunargryfjan er ekki eilíf. Nýr urðunarstaður, með öllum þeim kröfum sem til hans er gerður, gæti kostað sveitarfélagið 500-600 milljónir.
Allir íbúar hafa fengið sent heim sorpdagatal og leiðbeiningar (á 3 tungumálum) um flokkun í endurvinnslutunnuna. Umhverfisnefnd samþykkti að heimila gjaldtöku á endurvinnslutunnur þar sem flokkun er ábótavant.
Sæmundur sagði frá því að grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Lóni hefur verið gefið út í fyrsta sinn, og verður til umjöllunar undir 11. lið síðar á fundinum.
Sagði Sæmundur einnig sveitarfélagið vera það fyrsta til að taka þátt í loftlagsverkefni Landverndar og Sambands íslenskra sveitarfélaga og beðið er eftir góðri heimsókn umhverfisráðherra til að undirrita þann fína samning.
Ásgerður tók til máls og tók undir orð Sæmundar en vildi jafnframt benda á mikilvægi þess að byrja strax að huga að lífrænum úrgangi í ljósi laga þar um. Sveitarfélagið þarf því að fara undirbúa sig fyrir þá gildingu.

Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 751
Málsnúmer 1601011F
4 Verkferli umsagna um rekstrarleyfi
Ásgerður tók til máls og fagnar settum verkreglum. Vildi hún einnig minna fólk á að huga að leyfum og mikilvægi þess að allt slíkt sé tilbúið áður en starfsemi hefst.
8 Staða og þróun á húsnæðismarkaði
Kristján spurði um stöðu málsins.
Björn Ingi sagði frá því að óskað hefur verið eftir tilboðum frá hönnuðum húsa með það að markmiði að byggingakostnaður verði á bilinu 210-230 þúsund fermeterinn. Markmiðið er að einhverjar íbúðir verði tilbúnar í lok árs.

Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 752
Málsnúmer 1601016F
2 Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
Lovísa tók til máls og vildi koma á framfæri leiðréttingu í fundargerðinni þar sem sagt er að útrýma eigi einbýlum en þar á að sjálfsögðu að standa að útrýma eigi fjölbýlum.
3 Atvinnumálanefnd
Kristján tók til máls og lagði til að framlög í Atvinnu- og rannsókarsjóð verði aukin þar sem mikil eftirspurn er til staðar. Björn Ingi tók undir orð Kristjáns um mikilvægi þess að stækka sjóðinn í ljósi áhugans í samfélaginu og fjölda umsókna.

Fundargerð samþykkt.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 753
Málsnúmer 1602001F
Fundargerð samþykkt.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 222
Málsnúmer 1601001F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201504035
Björn Ingi kynnti endurskoðaðar reglur og gjaldskrá á útleigu húsnæðis í eigu sveitarfélagsins. Benti hann á nýjan lið í reglunum er varðar útleigu sundlaugar.
Gunnhildur tók til máls um útleigu sundlaugar og spurði hvort ekki þurfi að skerpa á hvort allur kostnaður sé innifalinn í leiguverði, þar með talið starfsmenn. Björn Ingi svaraði að svo skuli vera. Var hann sammála að gott væri að skerpa á orðalagi í reglunum.
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur og gjaldskrá á húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Deiliskipulag Útbæ Höfn
Málsnúmer 201309051
Sæmundur greindi frá að deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 11. des.´15 til 23. jan.´16. Athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd í samráði við skipulagsráðgjafa hafa unnið svör við athugasemdum og verða þau send þeim sem gerðu athugasemdirnar. Einnig verða svörin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina ramma um heilsteypta byggð sem nýti kosti umhverfisins og styrki bæjarmynd. Hafnar í samræmi við ákvæði aðalskipulags og auglýsingar um fólkvang í Óslandi.
Lagði til að bæjarstjórn geri svör skipulagsnefndar að sínum og samþykki nýtt deiliskipulag útbæ Höfn skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Breyting á deiliskipulagi við Skaftafell
Málsnúmer 201506007
Sæmundur greindi frá að markmið með deiliskipulagsbreytingunni er að bregðast við aukinni aðsókn akandi ferðamanna með því að fjölga bílastæðum á svæðinu og auka umferðarstýringu. Aðlaga staðsetningu byggingarreita að breyttri staðsetningu bílastæða. Einnig að aðgreina tjaldsvæðisumferð frá annarri umferð á svæðinu.
Lagði til að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og henni vísað í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Aðalskipulag / deiliskipulag, skipulagsáform 2016.
Málsnúmer 201510078
Sæmundur tók til máls. Greindi hann frá því að skipulagsnefnd fjallaði um fyrirliggjandi þörf á breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins á fundi sínum þann 3. febrúar sl. Nefndin óskar eftir heimild bæjarstjórnar til að fara í vinnu við breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fara í breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201501018
Erindi barst frá Vegagerðinni 26. janúar 2016. Tilv.2011050012. Í erindi er vitnað í fund vegamálastjóra og bænda á Seljavöllum. Óskað er eftir svörum um hvort afstaða sveitarstjórnar til þeirra valkosta sem uppi hafa verið um legu vegarins er breytt frá því sem áður var.
Sæmundur tók við fundarstjórn.
Björn Ingi tók til máls. Lagði hann fram eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn geri hana að sinni: "Frá samþykktu aðalskipulagi sem gilti 1998 til 2018 hefur lína þjóðvegar yfir Hornafjarðarfljót verið dregin á svipuðum stað og nú er í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Markmið með þessari legu vegar hefur verið að ná sem mestri styttingu vegar innan sveitarfélagsins án þess að kalla á lengingu þjóðvegar nr.1.
Núverandi veglína leið 3b var staðfest með aðalskipulagsbreytingu árið 2009.
Í niðurstöðum skýrslu um umhverfismat kemur eftirfarandi fram:
1.1 Niðurstaða
Aflað hefur verið allra nauðsynlegra upplýsinga um afleiðingar Hringvegar um Hornafjörð á umhverfið. Það er því skoðun framkvæmdaraðila að Hringvegur um Hornafjörð sé mikilvæg framkvæmd til að bæta samgöngur og umferðaröryggi og komi, skv. framlögðum leiðum, ekki til með að hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér í skilningi laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Jafnframt kemur fram í niðurstöðum að leið 3b. hefur veruleg jákvæð áhrif á samgöngur og umferðaröryggi.
Bæjarstjórn hefur í samskiptum sínum við framkvæmdaraðila bent á mikilvægi þess að fyllingar og brýr verði þannig úr garði gerðar að breyting á vatnafari innan við nýja veglínu verði óveruleg.
Engin breyting er á afstöðu sveitarfélagsins til þeirra valkosta sem uppi hafa verið og hvetur bæjarstjórn Vegagerðina til að hefja samningaviðræður við landeigendur."
Lovísa tók til máls og sagði bændur á svæðinu hafa áhyggjur af veglínunni. Benti hún á að jákvætt er að allar leiðir útrými þremur einbreiðum brúm. Sagðist hún deila áhyggjum landeigenda varðandi leið þrjú í ljósi umhverfisáhrifa. Sagði hún hinar leiðirnar stytta hringveginn einnig umtalsvert og að aðeins muni 400 metrum á leið 1 og 3 á hringveginum. Að hennar mati eru leið 1 og 2 einnig ásættanlegar með tilliti til öryggis. Vegagerðin mælti með leið 1 sem er ódýrust í framkvæmd. Sagði hún umrætt bréf Vegagerðarinnar byggja á því að landeigendur á Seljavöllum áttu fund með Vegagerðinni þar sem þeir komu á framfæri sínum skoðunum á málinu. Áhyggjuefni kartöflubænda er m.a. breyting á grunnvatnsstöðu og sagði hún mikilvægt að mögulegar afleiðingar verði skoðaðar og samkvæmt hennar upplýsingum hefur breyting á leið ekki áhrif á tímasetningar framkvæmdarinnar. Lagði hún áherslu á að koma á samningum við landeigendur á svæðinu.
Björn Ingi tók til máls. Ef valin er önnur leið þurfi að endurvinna ferlið sem unnið hefur verið undanfarið ár sem mun valda töfum. Jafnframt benti hann á að verði valin önnur leið verði aðrir landeigendur ósáttir. Þannig væri í raun verið að færa til vandann en ekki verið að leysa hann.
Lovísa tók til máls. Vildi hún ítreka að frá því að byrjað var að ræða þetta rétt fyrir aldamót hefur framleiðsla kartöflubænda margfaldast og því miklir hagsmunir í húfi. Er það hennar skoðun að velja þurfi þá leið sem komi til móts við hagsmuni sem flestra aðila málsins.
Ásgerður tók til máls og sagði sig ekki hafa skipt um skoðun í málinu. Sagði mikilvægt að gengið verði frá samningum sem fyrst. Telur hún vilja hjá Vegagerðinni að aðlaga vinnuna til að leysa ágreiningsatriði.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum. Lovísa Rósa Bjarnadóttir sat hjá.
11.
Grænt bókhald fyrir urðunarstað í Lóni 2014
Málsnúmer 201601087
Lovísa tók við fundarstjórn.
Sæmundur tók til máls og greindi frá vinnu við gerð á grænu bókhaldi sem er skylda skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. KPMG hefur staðfest að þær upplýsingar og tölur sem sveitarfélagið hefur unnið eru réttar og gerðar samkvæmt kröfum í lögum.
Bæjarstórn undirritar skjalið sem verður sent til umhverfisstofnunar til samþykktar.
12.
Umsókn um framkvæmdarleyfi, Olíuskilja
Málsnúmer 201510083
Sæmundur greindi frá umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir olíuskilju fyrir Olís við Hafnarbraut. Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið, að uppfylltum skilyrðum HAUST.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Umsókn um byggingarleyfi, endurbætur á Víkurbraut 2
Málsnúmer 201512031
Sæmundur tók til máls og greindi frá að grenndarkynning hefur farið fram skv. 3 mgr. 44. gr. skipulagslaga. Búið er að safna yfirlýsingum frá grennd og engar athugasemdir voru gerðar við fyrirhugaða framkvæmd.
Bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Fyrirspurn um byggingarleyfi, Reynivöllum 2
Málsnúmer 201509047
Sæmundur tók til máls og greindi frá að grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust. Minjastofnun gaf undanþágu á framkvæmdinni vegna minja á lóðinni. Bar upp tillögu, að bæjarstjórn gefi byggingaleyfi að uppfylltum skilyrðum Minjastofnunar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um byggingarleyfi, Bugðuleiru 4
Málsnúmer 201512001
Frestað.
16.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.
17.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Málsnúmer 201602023
Engar fyrirspurnir hafa borist.