Bæjarstjórn Hornafjarðar
235. fundur
9. mars 2017
kl.
16:00
-
16:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson
Forseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 800
1 Umhverfisnefnd - 25
Sæmundur tók til máls og ræddi um Umferðaröryggisáætlun.
Hann benti á að hraðavaraskilti hafa verið sett upp á Kirkjubraut, Víkurbraut og Hafnarbraut, eins hefur verið sett upp stöðvunarskylda við gatnamót Kirkjubrautar og Víkurbrautar.
Næstu skref í vinnu við umferðaröryggisáætlun eru að kalla til hagsmunaaðila til ráðagerðar. Umferðaröryggisáætlun mun nýtast í skipulagsvinnu og fjárhagsáætlunargerð til framtíðar. Samkvæmt vinnuplani ætlar umhverfisnefnd að skila þessari vinnu af sér í nóvember 2017.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 801
1 Fræðslu- og tómstundanefnd - 29
Ragnheiður tók til máls um fundargerð ungmennaráðs. Ræddi hún hugmynda- og verkefnavinnu ungmenna á svæðinu. Forgangsverkefni að mati ungmenna er uppbygging Ungmennahúss. Sagði hún þá vinnu þegar byrjaða.
Gunnhildur tók til máls og spurði hvernig tilnefningu í Ungmennaráð Suðurlands verður háttað. Spurði hún einnig um skiptingu fjármagns til Fab Lab smiðju Hornafjarðar frá Nýsköpunarsmiðstöð og hvernig rekstri smiðjunnar væri háttað. Velti hún fyrir sér hvort sveitarfélagið væri að greiða meira til smiðjunnar og Nýsköpunarmiðstöð að leggja meiri kröfur á starfsmann hennar vegna niðurskurðar Nýsköpunarmiðstöðvar til verkefnisins.
Ræddi hún einnig Ungmennaþing sem áformað er halda í haust og hvatti kjörinna fulltrúa til þátttöku í því.
Sæmundur tók til máls og svaraði að erindisbréf muni berast um skipan fulltrúa í Ungmennaráð Suðurlands.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að erindisbréf vegna Ungmennaráðs Suðurlands hefur borist og er til umsagnar hjá ungmennaráði í samræmi við erindið.
Björn Ingi greindi frá að Fab Lab smiðjan var sett á fót með framlagi sveitarfélagsins og kláruð með styrk frá Nýsköpunarmiðstöð að fjárhæð 6 mkr. til að koma upp viðurkenndri smiðju. Smiðjan vinnur í samvinnu við marga aðila svo sem FAS, Grunnskóla Hornafjarðar, SASS og fleiri. Greindi hann frá viðræðum sem í gangi eru varðandi samning milli SASS og Nýsköpunarmiðstöðvar um ákveðin áhersluverkefni 2017. Samningur vegna þessa verður kynntur og lagður fyrir bæjarráð.
Kristján tók til máls um Fab Lab smiðjuna og sagði mikilvægt að hlúa að verkefninu og því góða starfi sem þar er unnið. Sagði hann að fæstir gerðu sér grein fyrir hvað mikið starf færi þar fram.
Spurði Kristján einnig hvenær til stendur að hafa íbúafundi út í sveitum.
Björn Ingi tók til máls. Tók hann undir með Kristjáni um mikilvægi Fab Lab smiðjunnar og það góða starf sem þar er unnið. Sagði hann mikil verðmæti liggja í þekkingu starfsmanns Fab Lab. Sagði hann að verið er að skoða hentugar tímasetningar fyrir fundi í sveitunum og verður það kynnt fljótlega.

3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 802
2 Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 24
Sæmundur tók til máls um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Sagði hann að unnið er að umsókn í framkvæmdasjóð aldraðra.
3 Atvinnumálanefnd - 26
Kristján tók til máls og spurði um stöðu mála varðandi starfsemi Matís á svæðinu. Spurði hann einnig hvort að þau gögn sem farið var með á fund fjárfesta vegna Jökulheima lægju fyrir þar sem þau hefðu ekki verið sett fyrir menningarmálanefnd.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að málefni Matís hefðu verið á bið um tíma en verið er að hefja vinnuna aftur. Markmiðið ætti að vera að Matarsmiðja Íslands verði byggð upp hér á Höfn.
Björn Ingi tók til máls um fund með fjárfestum vegna Jökulheima. Sagði hann sjálfsagt mál að taka þau gögn saman og setja fyrir menningarmálanefnd.
8 Frisbígolfvöllur - hugmyndir og áætlaður kostnaður
Sæmundur tók til máls um fyrirhugaða uppsetnigu frisbígolfvallar á Höfn og fagnaði því framtaki.

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 803
8 Samgönguáætlun 2015-2018 - skortur á fjármagni
Ragnheiður tók til máls og lagði til að bæjarstjórn bókaði eftirfarandi:
"Bæjarstjórn Hornafjarðar furðar sig á þeirri ákvörðun samgönguráðherra og ríkisstjórnar Íslands að fara ekki eftir samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti samhljóða í október 2016.
Í nýjum stjórnarsáttmála ríkisstjórnar, frá 10. janúar 2017 segir: Álag á samgöngukerfið hefur vaxið mikið undanfarin ár, einkum vegna fjölgunar ferðamanna. Í því ljósi verður aukinn kraftur lagður í uppbyggingu í samgöngumálum á öllum sviðum... Bæjarstjórn Hornafjarðar getur ekki með nokkru móti séð hvernig þessi orð í stjórnarsáttmálanum ríma við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ætla sér að setja 0 krónur í nýjan veg um Hornafjörð.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 gerir ráð fyrir því að 1 milljarði verði varið í framkvæmdir árið 2017 við styttingu hringvegarins um Hornafjörð, um 12 km. Framkvæmdin mun leysa af hólmi þrjár einbreiðar brýr sem komnar eru til ára sinna. Vegur nr. 99 sem liggur frá þjóðvegi nr.1 að þéttbýli Hafnar er einn hættulegasti vegakafli þjóðvegakerfisins samkvæmt úttekt Eurorap á árinu 2016. Nýr vegur um Hornafjörð mun draga verulega úr umferð um þennan vegakafla. Undirbúningur nýs vegar um Hornafjörð hefur átt langan og kostnaðarsaman aðdraganda og sveitarfélagið hefur þegar afgreitt framkvæmdarleyfi til Vegagerðarinnar vegna framkvæmdarinnar.
Samþykkt samgönguáætlunar í október 2016 byggði upp eðlilegar væntingar til úrbóta og uppbyggingar í samgöngumálum. Það hlýtur því að vera eðlileg krafa að fjárlög taki mið af samgönguáætlun sem alþingi hefur samþykkt.
Það er mat bæjarstjórnar Hornafjarðar að ráðherra og ríkisstjórn fari fram í fullkomnu heimildarleysi með breytingu á forgangsröðun samgönguáætlunar án þinglegrar meðferðar. Við þetta munu Hornfirðingar ekki una."
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Ragnheiður lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.
"Bæjarstjórn tekur undir ábendingar Landlæknis og fjölmargra annarra aðila sem vinna að heilsueflingu og velferðarmálum sem vara við þeirri breytingu sem felst í frumvarpinu. Auk þess benda rannsóknir á að aukið aðgengi að áfengi leiði til aukinnar neyslu, meðal annars meðal barna og ungmenna. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er andvígur frumvarpinu.
Bæjarstjórn hvetur alþingismenn til þess að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum um verslun með áfengi."

5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 234
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Breyting á deiliskipulagi Leiran
Forseti greindi frá að óveruleg breyting á deiliskipulagi við Leiru var í grenndarkynningu frá 12. janúar til 13. febrúar. Helstu breytingar á skipulaginu eru:
Mænisstefna er gefin frjáls.
Lóðanúmer á Hagaleiru og Álaleiru uppfærist og verður án bókstafa endingar.
Hagaleira 2 og 4 verður að þrem lóðum.
Ein athugasemd barst, skipulagsnefnd hefur brugðist við henni.
Lagði til að bæjarstjórn geri bókun og svör skipulagsnefndar að sinni og samþykki grenndarkynninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Mænisstefna er gefin frjáls.
Lóðanúmer á Hagaleiru og Álaleiru uppfærist og verður án bókstafa endingar.
Hagaleira 2 og 4 verður að þrem lóðum.
Ein athugasemd barst, skipulagsnefnd hefur brugðist við henni.
Lagði til að bæjarstjórn geri bókun og svör skipulagsnefndar að sinni og samþykki grenndarkynninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu Flatey
Erindi frá Skinney Þinganes dags. 7. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi við Flatey og heimild til deiliskipulagsgerðar.
Forseti greindi frá að skipulagsnefnd fjallaði um erindið á fundi sínum og lagði til að farið verði í aðalskipulagsbreytingar skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga og að gefinn verði heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag samhliða aðalskipulagsbreytingunni skv. 39. og 40. gr. skipulagslaga.
Lagði til að bæjarstjórn heimili breytingu á aðalskipulagi og að hafin verði vinna að gerð deiliskipulags.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn heimili breytingu á aðalskipulagi og að hafin verði vinna að gerð deiliskipulags.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Fyrirspurn um skipulag Hafnarvík Heppa
Erindi frá Skinney Þinganes dags. 1. febrúar þar sem óskað er eftir heimild til að reka veitinga- og skemmtistað í Kartöfluhúsinu sem er á Heppunni.
Lóðin tilheyrir deiliskipulagi miðsvæðis Hafnarvík Heppa, markmið deiliskipulagsins er að stuðla að varðveislu húsa sem enn standa í elsta byggðarkjarnanum og að endurreisa hann í fyllingu tímans.
Samkvæmt deiliskipulaginu er heimilt að nýta húsið fyrir
atvinnustarfsemi/þjónustu/menningarstarfsemi/safnastarfsemi sem hæfir staðsetningunni og styrkir heildina.
Leitað var til skipulagsstofnunar þar sem núgildandi aðalskipulag er ekki í samræmi við deiliskipulag Hafnarvík Heppa frá 2011.
Í svari Skipulagsstofnunar kom fram að:
"Deiliskipulag miðsvæðisins byggir á áður gildandi aðalskipulagi en landnotkun umræddrar lóðar er óbreytt í núgildandi aðalskipulagi.
Að mati Skipulagsstofnunar getur starfsemi veitinga- og skemmtistaðar samræmst þeim ákvæðum sem koma fram í
aðalskipulaginu og í deiliskipulaginu og því ekki nauðsynlegt að breyta landnotkun lóðarinnar.
Hins vegar má velta fyrir sér af hverju lóðin er skilgreind sem athafnasvæði þegar svo virðist sem hún eigi að vera
hluti af miðsvæðinu.
Þar af leiðir væri eðlilegt að landnotkunarskilgreiningunni væri breytt til samræmis við þær lóðir sem hún er í
samhengi við."
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að rekstur veitinga- skemmtistaðar sé í samræmi við skipulag á svæðinu. Bæjarstjórn leggur engu að síður til að málið verði skoðað í endurskoðun á ferðaþjónustukafla aðalskipulags sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atvæða.

9.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu Skjólshólar
Erindi frá Ívari Reynissyni dags. 19. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og gerð deiliskipulags við Skjólshóla.
Skipulagsnefnd fjallaði um erindið á fundi sínum og lagði til að unnið verði aðalskipulagsbreyting skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga og að gefinn verði heimild til að hefja vinnu að gerð deiliskipulag skv. 39. og 40. gr. skipulagslaga.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði breyting á aðalskipulagi og að unnið verði nýtt deiliskipulag á svæðinu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði breyting á aðalskipulagi og að unnið verði nýtt deiliskipulag á svæðinu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Myllulækur: Fyrirspurn um skipulag
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Myllulækjar var í grenndarkynningu frá 28. desember 2016 til 1. febrúar 2017. Helstu breytingar á skipulaginu eru vegna breytinga frístundahúss nr. 6.
Grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hólabrekku
Erindi frá Ólafi Páli Vignissyni dags. 27. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir að unnið verði að gerð óverulegrar breytingar á aðalskipulagi ásamt breytingu á deiliskipulagi að Hólabrekku á Mýrum.
Skipulagsnefnd lagði til á fundi sínum að gefin verði heimild til að hefja vinnu að breytingu aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga og að gefin verði heimild til að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulag skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu og að hefja vinnu við deiliskipulag Hafnarnesi
Erindi frá Árnínu H. Guðjónsdóttur dags. 27. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að hefja deiliskipulagsvinnu og að gerð verði breyting á aðalskipulagi samhliða.
Skipulagsnefnd lagði til að farið verði í aðalskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga og að gefinn verði heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag skv. 39. og 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Umsögn um landskipti, Svínafells 1 Öræfum
Erindi frá Jarðareigendum Svínafelli 1 Öræfum dags. 29.12 2016 þar sem óskað er eftir landskiptum á jörðinni Svínafelli 1.
Óskað er eftir að skipta fjórum lóðum út úr jörðinni Svínafelli 1 landnr. 160192. Breytingin fellst í að lóðirnar sem hafa verið leigulóðir verða eignarlóðir.
Um er að ræða eftirfarandi lóðir.
Svínafell 1 Öræfum, Lögbýlið 160192.
Svínafell 1 Öræfum, Sundlaug 160193 stærð er 15.000 fm. verður 19.566 fm.
Svínafell 1 Öræfum, lóð 1 160194 stærð er 2.000 fm. verður 4.313 fm.
Svínafell 1 Öræfum, Austurbær 186717 stærð 5.000 fm. verður 2.045 fm.
Svínafell 1 Öræfum, Austurbær-sumarhús ekkert landnúmer stærð 897 fm.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Um er að ræða eftirfarandi lóðir.
Svínafell 1 Öræfum, Lögbýlið 160192.
Svínafell 1 Öræfum, Sundlaug 160193 stærð er 15.000 fm. verður 19.566 fm.
Svínafell 1 Öræfum, lóð 1 160194 stærð er 2.000 fm. verður 4.313 fm.
Svínafell 1 Öræfum, Austurbær 186717 stærð 5.000 fm. verður 2.045 fm.
Svínafell 1 Öræfum, Austurbær-sumarhús ekkert landnúmer stærð 897 fm.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Yfirlýsing vegna fyrirhugaðra kaupa ábúenda á jörðinni Jaðri
Lagt fram erindi dagsett 22. febrúar frá ábúendum að Jaðri Suðursveit vegna fyrirhugaðra kaupa þeirra á jörðinni.
Á jörðinni Jaðri í Suðursveit 160130 hafa ábúendur jarðarinnar Jón Malmquist Einarsson kt.201257-5069 og Gunnhildur Elísabet Ingimarsdóttir kt. 210657-3129 haft jörðina í ábúð frá 1979 í félagi við Ingimar Bjarnason og Önnu Benediktsdóttur. Frá árinu 1997 hafa þau staðið ein að búskapnum á Jaðri. Eiga þau þar lögheimili og stunda almennan búskap, fjárbúskap. Ástand mannvirkja og jarðarinnar verður að teljast til fyrirmyndar. Fengu ábúendur umhverfisverðlaun sveitarfélagsins árið 2014. Jörðina hafa ábúendur setið vel og mælir bæjarstjórn með því að þau fái jörðina keypta.
15.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2017
Björn Ingi kynnti breytingu á gjaldskrá Hornafjarðarhafnar.
Helstu breytingar snúa að verðbreytingum í takt við vísitölu og nýrri útfærslu á innheimtu fyrir þjónustu lóðsbáts.
Gjaldskráin hefur fengið umfjöllun í Hafnarstjórn.
Björn lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrána.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

16.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.
17.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2017
Engar fyrirspurnir hafa borist.