Bæjarstjórn Hornafjarðar
240. fundur
24. ágúst 2017
kl.
16:00
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
1. varaforseti
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 818
1. Fræðslu- og tómstundanefnd
Ragnheiður tók til máls greindi frá að í sveitarfélaginu yrðu nemendum veitt námsgögn gjaldfráls, sagði það fagnaðarefni. Greindi einnig frá að nýr leikskóli rís hratt og ganga framkvæmdir mjög vel. Sagði nafnið á leikskólanum Sjónarhól mjög skemmtilegt og góð tenging við Línu Langsokk.
Ásgerður fagnaði því að nemendur fái gjaldfrjáls námsgögn og þakkaði bæjarráðsmönnum fyrir að taka vel í hrinda málinu af stað, sagði að peningunum væri vel varið með þessari aðgerð.
Greindi einnig frá að Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri í Hofgarði hafi lokið störfum hún þakkaði henni fyrir hennar störf í þágu sveitarfélagsins og óskaði Magnhildi Björk Gíslandóttur til hamingju með starfið.
2. Menningarmálanefnd
Ragnheiður þakkaði Menningarmiðstöðinni fyrir vel heppnað innlegg í Humarhátið og sagði að hátíðin hafi heppnast mjög vel í ár og þakkaði öllum sem komu að hátíðinni fyrir aðkomu að henni.
3. Umhverfisnefnd
Kristján ræddi um umferðaröryggisðáætlun sagði að hann hafi skoðað umferðaröryggismál í þéttbýlinu með Þrúðmari ökukennara og beindi því til nefndarinnar að fara með honum í skoðunarferð sem innlegg í vinnu að áætluninni.
Sæmundur þakkaði Kristjáni fyrir áskorunina, sagði nefndina vera að vinna að áætluninni, vinnan væri vel á veg komin. Upplýsti að nú er í gangi skoðanakönnun á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem íbúar geta komið skoðunum sínum á framfæri, síðan verður íbúafundur um áætlunina í september. Í framhaldinu verða gögn tekin saman og unnið úr þeim og áætlunin verði tilbúin til samþykktar í desember.
4. Erindisbréf Ungmennaráðs.
Gunnhildur greindi frá erindisbréfi ráðsins, sagði að það væri mjög góð breyting að fjölga fulltrúum í 10, nú eru varamenn einnig boðaðir á fundi ráðsins.
5. Uppfærsla upplýsingaskilta sveitarfélagsins
6. Launakönnun
Ragnheiður sagði að þegar konur fögnuðu 100 ára kosningarafmæli, hafi vonast til þess að fyrir lok kjörtímabils myndi sveitarfélagið vera komið með jafnlaunavottun og nú þegar er komin gullmedalía frá price waterhouse cooper íslandi. Skref í rétta átt og sveitarfélagið gæti verið stollt af þessari niðurstöðu og hvatti fyrirtæki til að huga að þessum málum.
Ásgerður sagði það væri fagaðarefni að niðurstöður launakönnunar lægju fyrir. Í jafréttisáætlun sveitarfélagsins væri ákvæði um að að framkvæma slíka könnun árlega en það sé í raun ekki raunhæft,
Þar sem vinnan reyndis umfangsmeiri en bæjarráð átti von á það væri gott að taka stöðuna reglulega en ekki á hverju ári. Sagði að launamunur heildarlauna væri innan skekkjumarka og væri áhugavert að skoða hvað veldi því.
Gunnhildur sagði að heildarlaun karla væru 2,3% hærri en heildarlaun kvenna hún telur þann mun ekki ásættanlegan, ofan á grunnlaun sé bætt ökutækjastyrk, fastri yfirvinnu, dagpeningum og fl. með því er hægt að fela ýmis hlunnindi. Þetta er skref í rétta átt en við erum að tala um 2017 og eigum við að vera nær núllinu í kyndbundnum launamun.
13. Malbikunarframkvæmdir 2017
Sæmundur tók til máls fagnaði því að malbikunarflokkur mun koma í september sagði það ætti að malbika götur og gangstéttir og setja yfirlagnir á þau svæði þar sem viðgerða eru þörf.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 819
4. Beiðni um kaup á bifreið fyrir Heimaþjónustudeild.
Sæmundur greindi frá að ný bifreið Heimaþjónustudeildar er eingöngu knúð rafmagni sagði það vera góða þróun og í anda í stefnu sveitarfélagsins í loftlagsmálum.
Ásgerður tók undir orð Sæmundar og fagnaði því að byrjað er á rafvæðingu bifreiða sveitarfélagsins, hún sagði það væri mikilvægt að halda þessari stefnu áfram og vonaði að það yrði gert ráð fyrir rafbílavæðingu í fjárhagsáætlun.
Ásgerður spurði hvort það væri byrjað á LED peruvæðingu hjá sveitarfélaginu. Ólöf greindi frá að unnið er að málinu.
5. Útboð fráveituframkvæmdir Nesjahverfi.
Ásgerður tók til máls spurði hvort sá hluti Nesjahverfis sem tilbúin er til mabikunar sé á malbikunaráætlun.
Ólöf greindi frá að Nesjahverfið er í malbikunaráætlun.
14. Staðsetning rafhleðslustöðva í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Sæmundur greindi frá að Orka náttúrunnar hafi sótt um að setja niður hleðslustöðvar á Höfn Freysnesi og jökuslárlóni sagði að því bæri að fagna og vonaði að málið fengi framgang sem fyrst.
18. Samningur um tölvuþjónustu.
Ásgerður greindi frá að Þekking ehf. hafi tekið við tölvuþjónustu sveitarfélagsins, sagði að það væri bagalegt bæjarstjóri hafi ekki upplýst bæjarráð að bróðir hans starfaði fyrir fyrirtækið Það væri mikilvægt að upplýsa kjörna fulltrúa þar sem þeir fengju fyrirspurnir um málið. En sagði jafnframt að hún teldi þessi tengsl ekki hafa nein áhrif á hæfi eða frágang málsins.
Gunnhildur tók til máls og þakkaði Hátíðni ehf. fyrir margra ára starf fyrir sveitarfélagið.
Ólöf greindi frá að bæjarstjóri hafi gert henni grein fyrir skyldleika hans við starfsmann Þekkingar ehf.
Ásgerður þakkaði fyrir svörin og sagðist ekki vera að saka um vanhæfi en það væri mikilvægt að þessar upplýsingar komi fram.

3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 820
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 821
1. Kaup ungmennafélagsins Sindra á félagshúsnæði.
Ásgerður tók til máls, greindi frá að þessi liður væri háður samþykki bæjarstjórnar og fagnaði hugmyndinni, sagði það myndi styrkja starf félagsins. Sagði að í bókun bæjarráðs kom sú krafa að fleiri félög innan USÚ gæti nýtt húsnæðið.
3. Gjaldfrjáls námsgögn grunnskólanemenda.
Sæmundur fagnaði því að nemendur grunnskóla fái námsgögn gjaldfrjáls. Sagði það væru fleiri hliðar á málinu.
Ásgerður tók undir með Sæmundi og sagði að þetta væri aðeins skref í áttina að þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði sem í dag fellur á foreldra.
12. Ærslabelgur - kaup og uppsetning
Sæmundur tók til máls og greindi frá að ærslabelgur er hoppudýna sem hentar fyrir unga sem aldna sagði að kaup á ærslabelg væri gott innlegg í heilsueflandi samfélag.
Ásgerður tók til máls og fagnaði kaupum á ærslabelg sem mætti kalla Loftbólu.

5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 822
8. Ósk um tímabundið afnot af lóð undir efni og malbikunarstöð.
Ásgerður greindi frá að fyrirtækið Colas hafi sótt um aðstöðu, sagðist ekki hafa séð niðurstöður útboðs við malbikunaráætlun sveitarfélagsins. Greindi frá að útboðið hafi ekki komið fyrir bæjarráðs til samþykkis, einungis hafi drög að útboðs eða verðkönnunar komið þar fram fyrr í sumar.
Sæmundur tók til máls og sagði að útboðið hafi ekki komið til afgreiðslu í bæjarráði en hann sagðist hafa upplýsingar um að tilboðið hafi verið um 70% af kostnaðaráætlun. Sagði að málið kæmi væntanlega fyrir næsta eða þar næsta bæjarráðsfund.
Ásgerður sagði að þessi vinnubrögð væri ekki ásættanlegt, það væri ekki góð stjórnsýsla að bæjarráð væri ekki upplýst um kostnaðartölur vegna framkvæmdanna.
9. Áskorun frá Búnaðarsambandi A-skaft um að sýna sauðfjárbændum stuðning.
Ragnheiður tók til máls, lagið til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar og lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar í landinu. Þær miklu afurðaverðslækkanir sem boðaðar hafa verið í haust auk seinkana á greiðslum munu valda bændum verulegum vanda á næstu mánuðum. Ljóst er að sauðfjárbændur munu eiga í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar. Boðuð lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda í haust þýðir 1.800 milljóna króna launalækkun fyrir stéttina í heild, sem bætist við 600 milljóna launalækkun sem þeir urðu fyrir í fyrra. Bæjarstjórn skorar á afurðarstöðvar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Ríkisstjórn Íslands að bregðast við þeim mikla vanda sem fyrirsjáanlegur er.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 239
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Aðalskipulagsbreyting: Tengivirki á Hnappavöllum
Páll Róbert greindi frá að tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna nýs tengivirkis í Öræfum lögð fram. Tillagan hefur verið send Skipulagsstofnun sem hefur yfirfarið tillöguna skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingar voru gerðar á tillögunni skv. ábendingum/athugasemdum Skipulagsstofnunar. Kynningarfundur var haldinn þann 26. júní í Hofgarði.
Lagði til að breytingartillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að breytingartillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Deiliskipulag tengivirki í landi Hnappavalla
Páll Róbert greindi frá að deiliskipulagstillaga vegna nýs tengivirkis í Öræfum lögð fram. Deiliskipulagið er í samræmi við breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem er í ferli, deiliskipulagstillagan verður auglýst í samhliða aðalskipulagsbreytingunni. Kynningarfundur var haldinn þann 24. ágúst kl.12:00 í Hofgarði.
Lagði til að deiliskipulagstillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að deiliskipulagstillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna Reynivalla 2 neðan vegar við Fellsá
Páll Róbert greindi frá að tillaga að breytingu á aðalskipulagi við Reynivelli II lögð fram. Reynivellir II liggja vestast í Suðursveit og í um 12 km. akstursfjarlægð frá Jökulsárlóni. Fyrirhugað er að reisa 100 herbergja hótel á svæðinu auk þjónustu við ferðamenn og heimamenn svo sem eldsneytissölu, nýlenduvöru sala, sala á jökla- og gönguferðum o.fl.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að tillaga að breytingu á aðalskipulagi við Reynivelli II verði kynnt skv.3. mgr.30. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að tillaga að breytingu á aðalskipulagi við Reynivelli II verði kynnt skv.3. mgr.30. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Kosningar í stjórnir ráð og nefndir kjörtímabilið 2014 til 2018
Félagsmálanefnd.
Varamaður í stað Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur verður Bryndís Björk Hólmarsdóttir.(D)
Forseti bar tillögurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Hafnarstjórn.
Varamaður í stað Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur verður Halldóra Jónsdóttir.(D)

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd.
Aðalmaður í stað Snorra Snorrasonar verður Vignir Júlíusson. (D)
Varamaður i stað Vignis Júlíussonar verður Páll Guðmundsson.(D)

Fræðslu- og tómstundanefnd
Aðalmaður í stað Einars Smára Þorsteinssonar verður Einar Sigurjónsson. (B)
Varamaður í stað Einars Sigurjónssonar verður Einar Smári Þorsteinsson. (B)

11.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2017
Engar fyrirspurnir hafa borist.