Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

242. fundur
12. október 2017 kl. 16:00 - 17:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 826
Málsnúmer 1709010F
4. Jökulsárlón afrit af bréfi til Vatnajökulsþjóðgarðs
Gunnhildur tók til máls. Harmar hún að ekki sé búið að ná sáttum til frekari uppbyggingar á svæðinu en hún hafði vonast til að sættir næðust við breytt eignarhald.
Björn Ingi tók til máls og harmar einnig stöðuna við Jökulsárlón. Að hans mati er nóg pláss á svæðinu fyrir fleiri rekstraraðila. Sagði ákveðið flækjustig vegna samninga á milli aðila á svæðinu sem heftir að einhverju leyti framkvæmdir.
6. Útboð ljósleiðaralagningar Mýrum, Nesjum
Ásgerður tók til máls. Óskaði eftir upplýsingum um hvort tilboð hafi borist í verkið.
Kristján tók til máls. Spurði hver staðan væri á nettengingu í Suðursveit.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að samkvæmt skilmálum fyrir styrkveitingu þarf tilboð frá þremur aðilum í verkið en aðeins hafi fundist tveir verktakar sem hugsanlega geti komið að verkefninu. Björn Ingi upplýsti að Vodafone vinnur að því að bæta netsamband í Suðursveit.
10. Fundargerðir SASS 2017
Sæmundur tók til máls. Sagði frá ráðstefnu um sorpmál á Suðurlandi þar sem fram kom að sveitarfélög skortir samhæfingu í sorpmálum. Á SASS fundinum var farið í skoðun á því fyrir hvað SASS stendur. SASS eru frjáls félagasamtök sem sífellt eru beðin að taka að sér hlutverk sem vafamál er um hvort þau hafi lagalega burði til. Nauðsynlegt er að fá þing til að skýra betur hlutverk landshlutasamtakanna.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 827
Málsnúmer 1709013F
2. Akurey
Ásgerður tók til máls. Sagði frá ástandi bátsins og nauðsynlegum aðgerðum til að koma í veg fyrir slys eða hættur. Óskaði hún eftir upplýsingum um hvar málið væri statt.
Björn Ingi tók til máls og sagði að hann muni kalla eftir uppslýsingum um stöðu mála varðandi Akurey.
6. Fjárhagsáætlun 2018
Sæmundur tók til máls og sagði að unnið væri að fjárhagsáætlun næsta árs. Benti á þann möguleika á heimasíðu sveitarfélagsins fyrir íbúa að senda inn hugmyndir að framkvæmdum.
Ásgerður tók til máls og kallaði eftir samantekt á því sem hrint hefur verið í framkvæmd af þeim hugmyndum sem hafa komið frá íbúum.
Gunnhildur tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu inní fjárhagsáætlunargerð:
"Tómstundastyrkur Sveitarfélagsins verði hækkaður úr 40.000 kr. í 50.000 kr. um næstu áramót 2017-2018. Einnig að gjaldtaka á ávaxtabita í grunnskólanum verði felld niður."
Kristján tók til máls. Lagði fram tillögu um að setja í gang samstarfsverkefni sveitarfélagsins og íbúa í Nesjunum.
Björn Ingi tók undir hugmyndir Kristjáns um aðgerðir í Nesjunum.
Forseti bar tillögu Gunnhildar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 828
Málsnúmer 1709019F
3. Fræðslu- og tómstundanefnd - 36
Kristján tók til máls og spurði um hver staðan væri á verkefninu við gólfskipti í íþróttahúsi.
Björn Ingi tók til máls og sagði að verið væri að skoða hvort verktakar fáist í verkið innan tímarammans. Sagðist ekki bjartsýnn á að verktakar fengjust í verkið en möguleikar væru að fara í framkvæmdina næsta vor. Benti hann á að verkefnið er ekki á fjárhagsáætlun ársins og því þyrfti að gera viðauka ef það verður sett í framkvæmd á þessu ári.
4. Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi
Sæmundur tók til máls. Sagði frá verkefninu, megináherslum þess og þátttökusveitarfélögum.
12. Matís og matarsmiðjan 20170
Kristján tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála vegna fyrirhugaðrar lokunar matarsmiðjunnar.
Björn Ingi tók til máls og upplýsti að hann hefði átt í viðræðum við fulltrúa Matís, en engin niðurstaða væri komin í málið.
Kristján tók til máls og sagðist bjartsýnn á að heimamenn gætu haldið matarsmiðjunni opinni á eigin vegum með þátttöku fyrirtækja á svæðinu og sveitarfélagsins.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 829
Málsnúmer 1710006F
9. Skuggakosningar 12.október 2017
Ásgerður tók til máls um skuggakosningar FAS sem fram fóru í dag í tengslum við komandi alþingiskosningar. Fagnaði hún þessu framtaki, sagði áhuga unga fólksins ánægjulegan og til fyrirmyndar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 241
Málsnúmer 1709007F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201709560
Sæmundur greindi frá breytingum á samþykkt um meðhöndlun úrgangs eftir að sveitarfélagið bauð út málaflokkinn. Umhverfisstefna sveitarfélagsins kveður á nýtingu á lífrænum úrgangi og er það helsta breyting á málaflokknum.
Helstu breytingar á samþykktinni eru vegna sorpíláta, tíðni losunar, jarðgerðartunnu í dreifbýli og lífræns íláts sem er í almennu tunnunni í dreifbýli. Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á samþykkt sveitarfélagsins um meðhöndlun úrgangs.
Ásgerður tók til máls um breytingar í sorpmálum. Sagði ýmislegt hafa komið uppá í breytingaferlinu, þar á meðal sem snýr að þjónustu við fyrirtæki. Sagði að í ferlinu hafi komið í ljós að þjónusta við fyrirtæki hafi verið samofin þjónustu við íbúa sem er ekki í samræmi við lög og reglur. Sagði hún að við öll ættum að draga lærdóm af breytingaferlinu t.d. hvað varðar upplýsingagjöf til bæði íbúa og fyrirtækja.
Ragnheiður tók til máls. Sagði breytingarnar í sorpmálunum vissulega miklar en engu að síður mjög jákvæðar og fælu í sér ákveðnar áskoranir. Benti hún á að Funi starfar enn á svæðinu og þjónusti fyrirtækin áfram.
Ásgerður tók til máls og þakkaði Ragnheiði fyrir að minna sig á Funa. Tók undir orð Ragnheiðar um verkefnin í málaflokknum sem nauðsynlegt er að takast á við og mikilvægt að koma þessum málum í betra horf.
Björn Ingi tók til máls og benti á hér er verið að taka upp fyrirkomulag í sorpmálum sem tíðkast í örðum sveitarfélögum. Menn hefðu ekki áttað sig á hve mikill samrekstur hafi verið hér í málaflokknum milli heimila og lítilla/meðalstórra fyrirtækja. Talaði um opnunartíma gámaportsins sem var styttur fyrir nokkrum árum síðan en tíðkast hafi að veita fyrirtækjum frjálsari aðgang að portinu en opnunartími gerði ráð fyrir. Þar með hafa menn orðið góðu vanir sem gerir breytingarnar enn erfiðari. Sagði ljóst að laga þarf rekstur málaflokksins í heild þar sem gengið er út frá því að sá sem veldur þarf að greiða.

Forseti bar samþykktina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Sorphirða og sorpeyðing: gjaldskrá
Málsnúmer 201709450
Sæmundur lagði fram gjaldskrá um sorphirðu og sorpeyðingu.
Greindi frá helstu breytingum á gjaldskránni sem nú er tvískipt. Sérstök gjaldskrá er fyrir heimili þar sem engar hækkanir eru lagðar til umfram vísitöluhækkanir.
Gjaldskrá fyrir móttöku og flokkunarstöð inniheldur gjaldskrá vegna efna sem eru móttekin á flokkunarstöð og til urðunar. Helstu hækkanir eru vegna urðunar sem hækkar úr 9,5 kr. í 26 kr. á kíló. Er það gert til að standa undir kostnaði við rekstur á urðunarstað sem hefur verið rekinn með halla. Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrár um sorphirðu og sorpeyðingu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

8.
Breyting á aðalskipulagi Skotsvæði og Moto cross braut
Málsnúmer 201709111
Breyting á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar felur í sér breytta landnotkun þriggja svæða. Afmarkað verður nýtt íþróttasvæði fyrir skotæfingasvæði við Grjótabrú sem fær númerið ÍÞ6 og svæði fyrir moto-cross, ÍÞ3 verður fært til norðurs upp að efnistökusvæðinu við Fjárhúsavík. Landnotkun fyrir gamalt efnistökusvæði E86 við Fjárhúsavík verður afmarkað og svæðið sett í flokk 3 skv. skilgreiningu í aðalskipulagi.
Tillagan hefur verið send til yfirferðar Skipulagsstofnunar og brugðist hefur verið við athugasemdum hennar.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um málið og leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst skv. 30. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu skipulagsnefndar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
9.
Deiliskipulag skotsvæði Höfn
Málsnúmer 201709202
Forseti greindi frá breytingum á áður framlögðu deiliskipulagi. Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og tryggja fjölbreytni og möguleika til skipulegra skotæfinga. Meginmarkmiðið er að byggja upp aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum á svæði þar sem hægt er að stunda alþjóðlegar greinar skotíþrótta sem stundaðar eru með skotvopnum.

Lagði til að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Deiliskipulag Moto-cross braut
Málsnúmer 201709203
Forseti greindi frá breytingum á áður framlögðu deiliskipulagi. Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og tryggja fjölbreytni og möguleika til skipulaðra æfinga. Ennfremur að færa starfsemi sem veldur hávaðamengun fjær byggðinni. Meginmarkmiðið er að byggja aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum og skapi ekki óþægindi fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Lagði til að tillagan verði og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga samhliða auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 201709115
Forseti lagði fram lýsingu vegna endurskoðunar á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Gildandi aðalskipulag var samþykkt árið 2014 og telst ekki gamalt en nauðsynlegt er að endurskoða ferðaþjónustukaflann þar sem þessi mikla fjölgun ferðamanna til landsins var ekki fyrirséð, árið 2016 komu 41% þeirra erlendu ferðamanna sem komu til landsins í sveitarfélagið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsingu, vegna endurskoðunar á ferðamálakafla aðalskipulags sveitarfélagsins 2012-2020 og vísi honum í lögformlegt ferli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag Brunnhóll
Málsnúmer 201710005
Ný deiliskipulagstillaga að Brunnhóli lögð fram.
Forseti lagði fram deiliskipulagstillögu við Brunnhól sem nær yfir 10 ha landspildu úr landi Brunnhóls og Árbæjar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir Brunnhól.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag Hvammur
Málsnúmer 201709371
Ný deiliskipulagstillaga að Hvammi lögð fram.
Forseti lagði fram deiliskipulagstillögu að Hvammi. Markmið deiliskipulagsins er uppbygging ferðaþjónustu á svæðinu þar sem innan byggingareits B1 er heimilt að byggja allt að 200 m2 þjónustuhús og innan byggingareits B2 er heimilt að byggja allt að 9 gestahús.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa deiliskipulagstillögu að Hvammi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag Horn
Málsnúmer 201710014
Beiðni Ómars Antonssonar um að hefja vinnu við deiliskipulag að Horni lögð fram.
Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili að hefja deiliskipulagsvinnu að Horni.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Grenndarkynning nýbygging við Hálsasker í Öræfum
Málsnúmer 201709369
Forseti gerði grein fyrir að grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynningin fjallaði um fyrirhugaða byggingu á gestahúsi við Hálsasker í Öræfum.
Frestur til að skila inn athugasemdum var til 28. september, engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Grenndarkynning Hafnarbraut 31
Málsnúmer 201709355
Forseti gerði grein fyrir að grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynningin fjallaði um fyrirhugaða byggingu stúdío herbergja að Hafnarbraut 31.
Frestur til að skila inn athugasemdum var til 21. september, engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201709046
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.
18.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2017
Málsnúmer 201709072
Engar fyrirspurnir bárust.