Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

244. fundur
14. desember 2017 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Hjálmar Jens Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 834
Málsnúmer 1711007F
2. Umhverfisnefnd 35
Ásgerður tók til máls um sorpmál. Benti á að lífræna hólfið er fulllítið fyrir meðalfjölskyldu miðað við losun einu sinni í mánuði. Benti á að finna þarf lausn fyrir fólk til að losa sig við matarolíur og mætti fara Akureyrarleiðina í þeim efnum og dreifa trektum til íbúa.
Björn Ingi tók til máls og sagði að í skoðun er að fjölga losunum á lífrænu sorpi. Sagði að ekki væri hægt að stækka hólfin vegna vinnulögjafar. Sagði að mörg sveitarfélög væru að tæma þetta á 3 vikna fresti sem hefur gefist vel og er verið að skoða þann möguleika hér. Einnig verður skoðað hvort hægt verði að setja gám við Gáruna til að losa lífrænt sorp. Tók undir orð Ásgerðar um söfnun á matarolíu.
Sæmundur tók til máls. Tók undir að skoða þurfi losunartíðni lífræns sorps og sagði það í skoðun í umhverfisnefnd. Sagði það nauðsynlegt að bregðast við ef núverandi fyrirkomulag er ekki að gefast vel. Sagðist hlynntur því að bjóða þeim íbúum sem áhuga hafa að fá olíutrekt til að losa sig við matarolíur. Sæmundur ræddi um Loftlagsverkefni Landsverndar og sveitarfélagsins 2016-2020. Sagði vel ganga að ná markmiðunum. Endurskoðun á að fara fram 2018. Sæmundur greindi einnig frá því að fyrirhugað er að bæta aðstöðuna við Leiðarhöfða með því að setja upp tröppur og útsýnispall.
12. Hönnun: Tengi- og millibyggingar Heppuskóla og sundlaugar
Björn Ingi tók til máls. Benti á að ekki hefur tekist að klára hönnun millibyggingar en farið verður í endurbætur á matreiðslustofu í Heppuskóla.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 835
Málsnúmer 1711010F
2. Fræðslu- og tómstundanefnd - 39
Hjálmar tók til máls og greindi frá nýafstöðnu ungmennaþingi sem haldið var í Nýheimum af ungmennaráði sveitarfélagsins. Þinginu var skipt í tvo hluta, annarsvegar fyrirlestra og hinsvegar málstofur. Margar góðar hugmyndir komu fram á sviði fræðslu-, félags- og heilbrigðismála. Ræddu þátttakendur vandamál og lausnir í þessum málaflokkum. Á ungmennaþinginu bar einnig á góma þörfin á fjölbreyttari afþreyingu og félagslífi fyrir ungt fólk. Í því samhengi sagði Hjálmar frá því að félagsmiðstöðin Þrykkjan opnaði þann 8. desember sl. í endurnýjuðu húsnæði í Vöruhúsinu. Þar skapast einnig vettvangur fyrir eldri ungmenni þar sem bæði FAS og Ungmennaráð hafa fengið úthlutað vikulegum kvöldum undir merkjum Ungmennahúss sem er hugsað fyrir öll ungmenni á aldrinum 16-25 ára, ekki bara nemendur í FAS. Sagði spennandi að fylgjast með því hvort ekki skapist þar góður vettvangur fyrir ungt fólk til að hittast og móta skemmtilegt og fjölbreytt félagslíf.
Ásgerður tók til máls. Tók undir orð Hjálmars og fagnaði frumkvæði ungmennaráðs.
Sæmundur tók til máls um kjarasamninga FG og Svfl. bókun 1: Lokaskýrsla samstarfsnefndar. Þakkar hann fyrir góða vinnu samstarfsnefndar. Hann hefur áhyggjur af flótta ungra kennara úr kennarastétt, lítilli nýliðun og fjölgun leiðbeinenda, ört hækkandi meðalaldri kennara og af því hvernig staðið er að rekstri grunnskólanna í þeirri leið sem við köllum skóla án aðgreiningar. Þetta er afar flókið verkefni og margt sem þarf að huga að ef vel á að takast til.
3. Þjónusta við fjölskyldur af erlendum uppruna
Ásgerður tók til máls. Sagði að borist hafi umsókn frá þroskaþjálfa með meistaragráðu í uppeldissálfræði og reynslu af vinnu með innflytjendum. Sagði það afar ánægjulegt þar sem starfsmenn með þessa menntun séu eftirsóttir.
10. 201709222 - Fundargerðir stjórnar Nýheima 2017
Ásgerður óskaði upplýsinga um hvort búið væri að funda með forsvarsmönnum Háskólafélags Suðurlands varðandi þjónustu þeirra hér á svæðinu eftir að Þekkingarsetrið tók við þjónustu við fjarnemendur.
Björn Ingi tók til máls og sagði að ekki hafi enn verið haldinn formlegur fundur með Háskólafélaginu en til stendur að koma honum á sem fyrst.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 836
Málsnúmer 1711016F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 837
Málsnúmer 1712001F
5. Útboð ljósleiðaralagningar Mýrum, Nesjum
Kristján tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um stöðu netmála í Suðursveit.
Björn Ingi upplýsti að búið væri að tengja netið í Suðursveit við Öræfanetið. Nokkur vandamál hafa komið upp en unnið er fljótt og vel að úrbótum í samvinnu við Vodafone. Greindi einnig frá því að verið er að semja við framkæmdaraðila um ljósleiðaralagningu á Mýrum og í Nesjum. Hvatti hann jafnframt íbúa á þeim svæðum til að taka þátt í verkefninu.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 838
Málsnúmer 1712006F
7. Kaup Ungmennafélagsins Sindra á félagshúsnæði
Björn Ingi tók til máls. Greindi frá að bæjarráð hafi samþykkt kaup á Hafnarbraut 15 ásamt UMF Sindra. Rekstur hússins verður á höndum Sindra. Sagði hann mikilvægt að íþróttahreyfingin hafi góða aðstöðu sem allar deildir geti nýtt sér.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 243
Málsnúmer 1711005F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi:

Rekstrarniðurstaða 456 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 60%
Framkvæmdir 800 m.kr.
Framlegð 23%
Veltufé frá rekstri 642 m.kr.
Handbært fé í árslok 112 m.kr.
Afborganir langtímalána 121 m.kr.
Ný lántaka A-B hluta 300 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 782 m.kr.

Ásgerður tók til máls og þakkaði starfmönnum og bæjarfulltrúum vel unnin störf við áætlunargerðina. Sagði hún fagnaðarefni og í raun forréttindi að fjárhagsleg staða sveitarfélagsins er svo sterk að svo miklar breytingar milli umræðna hafi ekki meiri áhrif en raun ber vitni. Fagnaði hún einnig því að bygging nýs hjúkrunarheimilis væri komin á áætlun.
Kristján tók til máls og greindi frá óánægju sinni með að endurbætur á Miklagarði væru ekki á framkvæmdaáætlun. Sagðist gera sér grein fyrir að ekki er hægt að ráðast í allar framkvæmdir strax og að erfitt væri að forgangsraða. Sagði það mikið fagnaðarefni að bygging nýs hjúkrunarheimilis væri komin á áætlun. Sagði hann öll þau verkefni sem eru á framkvæmdaáætlun mikilvæg og myndi ekki vilja taka neitt út og skiljanlegt að ekki er hægt að bæta í þar sem framkvæmdaáætlunin 2018 er þegar komin í 800 mkr.
Sæmundur tók til máls. Lýsti ánægju yfir áætluninni og telur ástæðu fyrir sveitarfélagið að vera stolt af henni. Þakkaði öllum þeim sem komu að verkinu, starfsmönnum sérstaklega.
Sæmundur fagnar því að geta sveitarfélagsins til að standa í fjárfrekum framkvæmdum hefur aukist til muna. Sterkur rekstur gerir það að verkum að engin lán hafa verið tekin síðan sumarið 2014. Íbúum hefur fjölgað um nærri 5% milli ára, eða um 109 manns á þessu ári. Núna búa hér 2296 manns. Atvinnuleysi þekkist vart. Helsta áhyggjuefnið virðist vera að okkur vantar fleira fólk til að byggja upp enn frekar samfélagið. Sagði innviði sterka og með fjölgun íbúða og leiguhúsnæðis geti sveitarfélagið tekið á móti fleira fólki.
Björn Ingi tók til máls og tók undir framkomin orð. Sagði mikilvægt að greina stöðu og framtíðarsýn Miklagarðs áður en farið er í frekari framkvæmdir á húsinu.
Kristján tók til máls og benti á að málefni Miklagarðs væru hjá atvinnumálanefnd. Þar var málið skoðað fyrir um tveimur árum og sagði að þar þyrfti að taka upp þráðinn.
Forseti bar fjárhagsáætlun 2018 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Þriggja ára áætlun 2019-2021
Málsnúmer 201711018
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2019-2021.
Forseti bar áætlunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2018
Málsnúmer 201709538
Bæjarstjóri lagði fram tillögu um 25% hækkun tekjumarka vegna afslátts af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega. Hækkun tekjumarka hefur þau áhrif að afsláttur sveitarfélagsins til þessa hóps hækkar um 95%, þ.e. úr 4,6 mkr. í 8,9 mkr. Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglurnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Aðalskipulagsbreytingar 2012-2030
Málsnúmer 201709391
Ferðaþjónustukafli Aðalskipulags sveitarfélagsins á 11 stöðum í sveitarfélaginu hefur verið í endurskoðun og er því ferli að ljúka.
Breytingarnar felast í því að landnotkun á svæðunum er breytt úr landbúnaðarlandi í verslunar- og þjónustusvæði. Á einum stað er landnotkun breytt úr landbúnaði í afþreyingar- og ferðamannasvæði. Athugasemdir og ábendingar bárust vegna tillögunnar. Skipulagsnefnd fjallaði um málið og hefur unnið svör til þeirra sem gerðu athugasemdir við tillöguna. Smávægilegar breytingar voru gerðar á aðalskiplagstillögunni og tekið verður tillit til ábendinga sem bárust.
Lagði til að bæjarstjórn geri svör skipulagsnefndar að sínum og vísi málinu í lögformlegt ferli skv. 30. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Aðalskipulagsbreyting: Virkjun í Birnudal
Málsnúmer 201709131
Páll Róbert lagði fram tillögu að aðalskipulagsbreytingu vegna virkjunar í Birnudal. Breytingin felst í að skilgreina 5 ha. landnotkun til iðnaðar vegna virkjunar í Birnudal. Tillagan hefur verið í kynningu og bárust athugasemdir sem kalla á smávægilegar breytingar sem skipulagsnefnd lét lagfæra og gerði svör við þeim athugasemdum sem bárust.
Lagði til að bæjarstjórn geri svör skipulagsnefndar að sínum og vísi málinu í lögformlegt ferli skv. 30. og 31. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Aðalskipulagsbreyting: Beiðni breytingu Hof I
Málsnúmer 201709319
Erindi frá Axel Benediktssyni fh. umbjóðenda sinna, Straumhvarfs ehf. og Adventure Hotels, dags. 7. desember 2017 þar sem óskað er eftir að unnin verði aðalskipulagsbreyting fyrir 1 ha. spildu í landi Hofs 1 sem er í dag landbúnaðarsvæði, óskað er eftir að spildan verði skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði.
Páll Róbert lagði til að bæjarstjórn heimili breytingu á aðalskipulagi við Hof 1.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Aðalskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Málsnúmer 201709489
Páll Róbert lagði fram aðalskipulagsbreytingu í Skaftafelli III og IV. Breytingin fellst í að landnotkun á svæðinu verði breytt úr landbúnaðar-, skógræktar- og landgræðslusvæði í verslunar og þjónustusvæði. Tillagan hefur verið í kynningu og bárust athugasemdir sem kölluðu á breytingar. Skipulagsnefnd fjallaði um málið og brást við breytingum á greinargerð og vann svör til þeirra sem gerðu athugasemdir við tillöguna. Þá gerir skipulagsnefnd kröfu um að við gerð deiliskipulags sé hugað sérstaklega að því að byggingar innan svæðisins falli vel að umhverfi sínu. Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og vísi því í lögformlegt ferli skv. 30. og 31. gr. skiplagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Breyting á aðalskipulagi Skotsvæði og Moto cross braut
Málsnúmer 201709111
Páll Róbert lagði fram aðalskipulagsbreytingu vegna nýs moto-cross svæðis og skotæfingasvæðis. Breyting á aðalskipulagi felur í sér breytta landnotkun þriggja svæða.
Engar athugasemdir bárust sem kalla á breytingar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og vísi því í lögformlegt ferli skv. 30. og 31. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Deiliskipulag skotsvæði Höfn
Málsnúmer 201709202
Páll Róbert greindi frá að meginmarkmiðið með gerð deiliskipulagsins væri að byggja upp aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum á svæði þar sem hægt er að stunda alþjóðlegar greinar skotíþrótta sem stundaðar eru með skotvopnum. Skotæfingasvæðið hefur fengið staðfangið Bergárvegur 66. Skipulagið hefur verið í kynningu og auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi, umsagnir bárust frá Landsneti og HAUST, skipulagsnefnd hefur unnið svör úr þeim.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir skotsvæði og vísi því í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

16.
Deiliskipulag Moto-cross braut
Málsnúmer 201709203
Páll Róbert greindi frá að meginmarkmiðið er að byggja aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum og skapi ekki óþægindi fyrir íbúa sveitarfélagsins. Tillagan hefur verið í kynningu og barst ein ábending sem brugðist hefur verið við. Skipulagið hefur verið í kynningu og auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi, ein umsögn barst skipulagsnefnd hefur unnið svör vegna hennar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Motocrosssvæði og vísi því í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.


17.
Deiliskipulag Hvammur
Málsnúmer 201709371
Páll Róbert greindi frá að deiliskipulagið nær yfir tæplega 5 ha landspildu úr landi Hvamms. Deiliskipulagið var auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu þar sem svæðið er skilgreint sem verslunar og þjónustusvæði. Í kynningarferlinu bárust umsagnir frá Vegagerðinni og HAUST, efni umsagna er ekki háð breytingum á uppdrætti.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag við Hvamm og vísi því í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Landskipti Hólanes
Málsnúmer 201712008
Erindi frá Stefáni Trausta Sigurðssyni, eiganda jarðarinnar Hóla, landnúmerið 159498, óskar eftir landskiptum á jörðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti
Páll Róbert lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Lóðarumsókn: Heppuvegur 2b
Málsnúmer 201710026
Eigendur IS veitinga óska eftir lóð við Heppuveg 2 b. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Páll Róbert lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201709046
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.
21.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2017
Málsnúmer 201709072
Engar fyrirspurnir hafa borist.