Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

245. fundur
11. janúar 2018 kl. 16:00 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 839
Málsnúmer 1712012F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 840
Málsnúmer 1712015F
1. Fræðslu- og tómstundanefnd
Ásgerður tók til máls. Greindi frá umræðu í fræðslunenfd um seinkun skólabyrjunar til kl 9 til að koma til móts við börnin í sveitunum sem þurfa á skólaakstri að halda. Sagði ljóst að bæði eru kostir og gallar við hugmyndina en engu að síður ástæða til að skoða þetta í kjölinn.
Vakti athygli á umræðu um almenningssamgöngur og þörfina á að skoða með hvaða hætti hægt er að skoða þörf á þeim innan sveitarfélagsins t.d. út frá þörfum atvinnulífsins í dreifbýli.
7. Húsnæði Sláturfélagsins Búa - Vestur hluti sláturhúss
Kristján tók til máls. Óskaði eftir upplýsingum um stöðu samningagerðar vegna flutnings matarsmiðju í húsnæði Búa. Fagnaði því að matarsmiðjan verði áfram í sveitarfélaginu.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að stefnt er á að klára samningagerð á næstu dögum en ákveðið flækjustig kom upp vegna virðisaukaskatts af leigunni en vegna eðli starfsemi Búa er leigan virðisaukaskattskyld.
13. Fundargerðir SASS 2017
Sæmundur tók til máls um íbúakönnun á Suðurlandi. Benti á að niðurstöður könnunarinnar eru aðgengilegar á vef SASS og hvatti fólk til kynna sér þær en margir íbúar Hornafjarðar tóku m.a. þátt.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 841
Málsnúmer 1801002F
2. Umferðaröryggisáætlun 2017
Sæmundur tók til máls. Sagði að fyrirhugað hafi verið að leggja áætlunina fram í desember en ekki hefur orðið samstaða um hraðatakmarkanir innanbæjar og er því áætlunin enn í vinnslu. Vakti athygli á að málið hefur verið í vinnslu í hartnær 15 ár. Sagði að við breytingar á hraðatakmörkunum þarf einnig að skoða kostnaðinn við breytingarnar og innleiða þær á skynsaman hátt.
Ásgerður tók til máls um umferðaröryggi. Sagði að í megindráttum væru menn sammála um að hámarkshraði í íbúahverfum eigi að vera 30 km/klst og að hámarkshraði á stofnbrautum 50 km/klst. Ágreiningurinn snýr að skilgreiningu á því hvað er íbúagata og hvað stofngata. Er þar helst um að ræða Hafnarbraut, Víkurbraut og Silfurbraut. Sagðist vona að bæjarstjórnin nái að afgreiða þetta mál sem fyrst í ljósi þess hvað það hefur verið lengi í vinnslu og vísaði í bréf tengt málinu frá árinu 2008.
Sæmundur tók til máls og tók undir orð Ásgerðar. Sagði að mælingar sýni að aksturshraði innan sveitarfélagsins er almennt innan marka en alltaf eru einhverjir sem skera sig úr og mikilvægt að beita skynsömum aðgerðum til að koma í veg fyrir mögulegar afleiðingar ökufanta. Margar leiðir er hægt að fara sem skoða þarf vel með tilliti til kosta og galla. Einnig skoða hvað virkar vel annars staðar og hvað ekki. T.d. skilar lækkun hámarkshraða eitt og sér ekki tilskyldum árangri. Sagði ljóst að um eilífðarverkefni væri að ræða en vonandi verði hægt að draga úr hraðaakstri.
Björn Ingi tók til máls um umferðaröryggisáætlun.
3. Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs
Björn Ingi tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar gerir athugasemdir við það vinnulag og tímafrest sem lífeyrissjóðurinn Brú gefur sveitarfélaginu til afgreiðslu málsins. 26 dagar eru allt of skammur tími til að hægt sé að afgreiða málið í samræmi við sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011 og viðhafa góða og vandaða stjórnsýslu. Ljóst er að gera þarf viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins til að standa við þær skuldbindingar sem felast í uppgjörinu. Til að bæjarfulltrúar geti samþykkt að sveitarfélagið gangist í ábyrgð fyrir þessum skuldbindingum er eðlilegt að tími sé gefin til að yfirfara útreikninga og leita hagstæðustu leiða til að fjármagna svo miklar skuldbindingar.
Lagt er til að bæjarstjórn heimili bæjarráði að vinna að málinu til að komast megi hjá greiðslu dráttarvaxta. Viðauki og endanleg afgreiðsla verði tekin fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.
Ásgerður tók til máls og sagðist ekki gera efnislegar athugasemdir við bókunina aðra en vildi skoða orðalag.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 244
Málsnúmer 1712004F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Aðalskipulagsbreyting Hof I
Málsnúmer 201709319
Forseti gerði grein fyrir tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi.
Markmið með breytingunni er stækkun verslunar- og þjónustusvæðis VÞ31 að Hofi í Öræfum. Stærð verslunar- og þjónustusvæðis er skilgreint 20 ha og verður stærð svæðis 21 ha eftir breytingu. Umrædd stækkun fellur utan gildandi deiliskipulags að Hofi og er uppbygging á umræddum reit háð deiliskipulagi. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísi breytingunni í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 36. gr. skiplagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Aðalskipulagsbreyting: Reynivellir II
Málsnúmer 201709275
Tillaga að breytingu á aðalalskipulagi við Reynivelli II lögð fram. Reynivellir II liggja vestast í Suðursveit og í um 12 km. akstursfjarlægð frá Jökulsárlóni.
Fyrirhugað er að reisa 100 herbergja hótel á svæðinu auk þjónustu við ferðamenn og heimamenn svo sem sölu eldsneytis, nýlenduvara, jökla- og gönguferðum o.fl. Tillagan felur ekki í sér aukningu leyfilegra gistirýma að Reynivöllum II og III. Tillagan hefur verið send til yfirferðar Skipulagsstofnunar sem gerði athugasemd við tillöguna og hefur henni verið breytt í samræmi við athugasemd stofnunarinnar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna á aðalskipulagi við Reynivelli II og vísi erindinu í lögformlegt ferli skv. 30 og 31 gr. skipulagslaga.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

7.
Grenndarkynning: Breyting á skipulagsskilmálum að Hafnarbraut 38
Málsnúmer 201711085
Forseti greindi frá að grenndarkynning vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi, Miðbæjarsvæði, reitur A, austan Hafnarbrautar milli Víkurbrautar og Tjarnarbrúar, hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. 43 gr.skipulagslaga. Grenndarkynningin var send út 6. desember 2017 og var athugasemdarfrestur gefin til 5. janúar 2018. Athugasemdir bárust frá íbúum Hafnarbrautar 35, 37 og 39.
Skipulagsnefnd hefur unnið svör vegna athugasemdanna, hún lagði til að bæjarstjórn geri svörin að sínum og sendi til viðkomandi aðila og að bæjarstjórn samþykki einnig óverulegar breytingar á Miðbæjarsvæði, reitur A, austan Hafnarbrautar milli Víkurbrautar og Tjarnarbrúar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Lóðarumsókn: Álaleira 18
Málsnúmer 201712057
Umsókn Kristjáns Arnars Ebenezersonar um lóð að Álaleiru 18 lögð fram. Bæjarráð mælti með úthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Lóðarumsókn: Heppuvegur 3
Málsnúmer 201801003
Umsókn Samir Mesetovic um lóð að Heppuvegi 3 lögð fram. Bæjarráð mælti með úthlutuninni en benti á að ekki er gert ráð fyrir íbúabyggð á lóðinni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201709046
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðin mánuð.
11.
Fyrirspurnir: bæjarstjórn 2018
Málsnúmer 201801024
Engar fyrirspurnir hafa borist.