Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

289. fundur
24. september 2021 kl. 16:00 - 16:10
Teams Meating
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjornsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Alþingiskosningar 2021 - Leiðrétting kjörskrár
Málsnúmer 202109075
Erindi frá Þjóðskrá Íslands þar sem bent er á að nýjan íslenskan ríkisborgara vanti á kjörskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að leiðrétta kjörskrá í samræmi við ábendingu frá Þjóðskrá.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Umboð bæjarráðs vegna kjörskárbreytinga
Málsnúmer 202109086
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita bæjarráði umboð til afgreiðslu mála vegna kjörskrárbreytinga skv. 36. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar, vegna alþingiskosninga 2021.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.