Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

292. fundur
9. desember 2021 kl. 16:00 - 17:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1014
Málsnúmer 2111007F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1015
Málsnúmer 2111010F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1016
Málsnúmer 2111018F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1017
Málsnúmer 2112001F
Sæmundur Helgason tók til máls undir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar um mál nr. 16 og 17.
Kristján S. Guðnason tók til máls undir 13. lið.
Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 11. lið.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 291
Málsnúmer 2111006F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Gjaldskrá byggingamála
Málsnúmer 202110086
Forseti lagði fram til samþykktar gjaldskrá gatnagerðagjalda, byggingagjalda og vegna þjónustu embættis byggingarfulltrúa sveitafélagsins.
Um nýja gjaldskrá er að ræða sem áður var hluti af gjaldskrá embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá árinu 2014. Gjaldskráin tekur breytingum í samræmi við raunkostnað sem uppreiknast frá árinu 2014. Lagt er til að gjaldskráin verði tengd launavísitölu að frátöldum útreikningi gatnagerðargjalda.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða gjaldskrá.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Gjaldskrá umhverfis- og skipulagsmála
Málsnúmer 202110085
Forseti greindi frá uppfærðri gjaldskrá fyrir umhverfis- og skipulagsmál.
Um nýja gjaldskrá er að ræða sem áður var hluti af gjaldskrá embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá árinu 2014. Gjaldskráin tekur breytingum í samræmi við raunkostnað sem uppreiknast frá árinu 2014. Lagt er til að gjaldskráin verði tengd launavísitölu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða gjaldskrá.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Gjaldskrá fráveitu
Málsnúmer 202001022
Forseti greindi frá nýrri gjaldskrá fyrir fráveitu. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009, með síðari breytingum, og 9. gr. reglugerðar um fráveitur sveitarfélaga nr. 982/2010.Lagt er til að álagningarstofn fyrir fráveitugjald verði 0,335% af fasteignamati fasteignar í heild sbr. 15. gr. laganna. Jafnframt er lagt til að tengigjald fráveitu hækki miðað við raunkostnað úr 80.000 kr. fyrir tengingu allt að 150 mm lagnar í 90.000 kr. en fyrir tengingu yfir 150 mm lagnar fer gjaldið úr 175.000 kr. fyrir hverja tengingu í 190.000 kr. Jafnframt lagt til að tengigjald fráveitu taki breytingum í samræmi við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja gjaldskrá fyrir fráveitu og hún verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Gjaldskrá vatnsveitu
Málsnúmer 201911041
Forseti greindi frá nýrri gjaldskrá fyrir vatnsveitu. Gjaldskrá þessi er sett í samræmi við lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, með síðari breytingum, og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.Lagt er til að álagningarstofn fyrir vatnsgjald hækki úr því að vera 0,15% í 0,155% af fasteignamati fasteignar í heild sbr. 6. gr. laganna.Lagt er til að hækka stofngjald vatnsveitu m.v. raunkostnað úr 140.000 kr. í 300.000 kr fyrir lagnir undir 40 mm, fyrir lagnir yfir 40 mm hækkar gjaldið úr 250.000 kr. í 410.000 kr.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja gjaldskrá fyrir vatnsveitu og hún verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar 2022
Málsnúmer 202101107
Lögð er til 10% hækkun á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi með það að markmiði að málaflokkurinn geti staðið undir sér.
Málaflokkurinn hefur verið til skoðunar allt kjörtímabilið og hefur bæjarstjórn sett sér markmið að málaflokkurinn standi undir sér líkt og lög kveða á um. 1. janúar 2023 taka í gildi ný lög nr. 103/2021 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi). Lögin skylda heimili og fyrirtæki til flokkunar á heimilisúrgangi og sveitarfélögin til sérstakrar söfnunar á fleiri úrgangstegundum en verið hefur, svo sem lífrænum úrgangi, textíl og spilliefnum. Tekið verður upp nýtt kerfi við innheimtu gjalda fyrir meðhöndlun úrgangs sem miðar að því að hver og einn borgi fyrir það magn sem hent er og að rukka megi minna fyrir úrgang sem er flokkaður.
Sveitarfélagið mun vinna að innleiðingu laganna á næsta ári sem mun hafa í för með sér uppstokkun á núverandi kerfi og breytingar á gjaldskrám.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar.
Samþykkt með sjö atvæðum.
11.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Málsnúmer 201804015
Lögð er til 10% hækkun á gjaldskrá fyrir söfnunarstöð með það að markmiði að málaflokkurinn geti staðið undir sér. Jafnframt er lagt er til að auka klippikort hækki úr 9.200 kr. í 13.200 kr. í samræmi við urðunarkostnað á hvert kg.
Bókun undir liðnum gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar á einnig við hér.
Forseti lagði til að bæjastjórn samþykki gjaldskrá fyrir söfnunarstöð.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Reglur og gjaldskrá- refa og minkaveiði
Málsnúmer 202108052
Sveitarfélagið greiðir fyrir veiðar á refum og minkum innan sveitarfélagsins í samræmi við reglur um refa og minkaveiði í Sveitarfélaginu Hornafirði.Um veiðar þessar gilda ákvæði laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum, auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim, einkum reglugerð nr. 437/1995, um refa- og minkaveiðar með síðari breytingum á reglugerðum.Lögð er til 25% hækkun á veiðilaunum vegna refa- og minkaveiði.
Foseti lagði til að bæjastjórn samþykki gjaldskrá refa- og minkaveiða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Málsnúmer 202108093
Bæjarstjóri greindi frá fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2022 og þriggja ára áætlun 2023-2025. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2022 í A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 71,2 m.kr., skuldir og skuldbindingar 2.357 m.kr., veltufé frá rekstri 394 m.kr., ný lántaka 250 m.kr., afborganir langtímalána 117,3 m.kr., handbært fé í árslok 61 m.kr. Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum 73,4%.

Ásgerður K. Gylfadóttir lagði fram eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn geri að sinni:

"Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir hér fjárhagsáætlun fyrir árið 2022 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2023-2025. Miklar áskoranir hafa verið í rekstri sveitarfélagsins síðasta árið þar sem rekstrargjöld hafa aukist umfram rekstrartekjur m.a. í tengslum við kjarasamninga, styttingu vinnuvikunnar og heimsfaraldur kórónaveiru. Segja má að skorið sé niður í málaflokkum sveitarfélagsins þar sem rammar eru að miklu leyti þeir sömu og fyrir ári síðan þó tekið sé tillit til raunhækkunar í rekstri þar sem það á við. Aukning hefur verið í starfsmannafjölda á fræðslu- og velferðarsviði þar sem brýn þörf var til, í tengslum við mönnunargat vegna styttingar vinnuvikunnar, fjölgunar verkefna tengt öldrunarþjónustu og ungbarnadeildar leikskólans í Selinu við Víkurbraut 24.

Framkvæmdaáætlun sem hér er samþykkt er 500 milljónir fyrir A og B hluta sem er töluverð lækkun frá síðustu árum. Helgast það bæði af minna fé til framkvæmda frá rekstri, framkvæmdastigi í sveitarfélaginu og áformum þar um. Ljóst er að þörfin fyrir frekari framkvæmdir hjá sveitarfélaginu er mjög brýn. Bæjarstjórn er meðvituð um þá þörf og telji bæjarstjórn tilefni til að bæta við verkefnum verður leitað leiða til að taka inn verkefni s.s. Sindrabæ verði þess nokkur kostur. Bæjarstjórn skilur gremju starfsmanna Tónskólans og geri sér grein fyrir þeirri viðhaldsþörf sem komin er þar.

Auk þess er ennþá talsverð óvissa um byggingu nýs hjúkrunarheimilis sem nú þegar hefur verið lagt mikið fjármagn í en gert er ráð fyrir því í 3ja ára áætlun. Samfélagið er í örum vexti og er það von bæjarstjórnar að atvinnulífið í heild sinni fylgi því eftir með auknum umsvifum og tekjum sem efla þá jafnframt rekstur sveitarfélagsins".

Til máls tóku:
Páll Róbert Matthíasson.
Ásgrímur Ingólfsson.
Sæmundur Helgason.
Ásgerður K. Gylfadóttir.
Matthildur Ásmundardóttir.

Forseti bar fyrrgreinda bókun upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti bar fjárhagsáætlun 2022 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti bar þriggja ára áætlun 2023-2025 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsögn um tilkynningarskylda framkvæmd - Hótel - Reynivellir
Málsnúmer 202111099
Björgvin Óskar Sigurjónsson gerði grein fyrir því að Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna tilkynningarskyldrar framkvæmdar skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Lagði til að bæjarstjórn taki undir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar þar sem kemur fram að framlögð gögn séu í samræmi við deiliskipulag sem samþykkt hefur verið af bæjarstjórn og er framkvæmdin byggingarleyfisskyld. Bæjarstjórn telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Það er mat bæjastjórnar að framkvæmdin skuli ekki háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Forseti lagði til að bæjastjórn samþykki ofangreinda umsögn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Leyfi vegna efnistöku á Suðurfjörum - breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202101132
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá óverulegri breytingu á aðalskipulagi vegna efnistöku úr Suðurfjörum til rannsóknar á fýsileika fyrir efnistöku af svæðinu. Óskað er eftir heimild til að taka allt að 2000 m3 af efni. Lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi var í kynningu 10. til 26. maí 2021. Kynningarfundur um aðalskipulagstillöguna var haldinn í ráðhúsi 8. nóvember 2021.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki aðalskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 31. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Málsnúmer 202010016
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá því að Vatnajökulsþjóðgarður hefur lagt fram tillögu að skipulagslýsingu vegna heildarendurskoðunar deiliskipulags Skaftafells. Lýsingin hefur verið samþykkt á 101. fundi svæðisráðs suðursvæðis 1.11.2021 og 165. fundi stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs 15.11.2021.Núgildandi deiliskipulag (Skaftafell, þjónustusvæði) tók gildi árið 2013 og var breytt árið 2016. Þótt ekki sé langt um liðið hefur þróun undanfarinna ára, ekki síst vegna vaxandi fjölda ferðamanna, gefið tilefni til þess að spyrja tiltekinna grunnspurninga um framtíðarfyrirkomulag mannvirkja og aðstöðu.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagslýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

17.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Björgvin Óskar Sigurjónsson gerði grein fyrir því að hafnarstjórn Hornafjarðar hefur lagt fram skipulagslýsingu vegna deiliskipulags við Ósland. Fyrirhugað er að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi Hornafjarðarhafnar við Ósland. Breytingarnar eru sumar sértækar og ná til einstakra lóða en einnig þarf að gera breytingar á almennum skilmálum sem ná til alls svæðisins. Þar sem fyrirhugaðar breytingar eru talsvert margar var sú ákvörðun tekin að taka deiliskipulagið til endurskoðunar í heild sinni. Gildandi deiliskipulag, dags. 03.09.2015, fellur úr gildi við samþykkt nýs deiliskipulags. Meginmarkmið endurskoðunarinnar er að tryggja skilvirka nýtingu og markvissa uppbyggingu á hafnarsvæðinu.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagslýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Byggingarleyfisumsókn Hagaleira 9, einbýlishús
Málsnúmer 202109063
Rannver Olsen sækir um heimild til þess að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 9 óverulega út fyrir byggingarreit.
Lagði til að bæjarstjórn heimili að þakskyggni fari óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Byggingarleyfisumsókn - Meðalfell, viðbygging sólstofu á tveim hæðum
Málsnúmer 202111059
Meðalfell ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús á Meðalfelli. Um er að ræða sólstofu á tveim hæðum, aðalhæð og rishæð, á suðurhlið hússins. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Lagði til að bæjarstjórn heimili viðbyggingu án deiliskipulags þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Málsnúmer 202111056
Umsókn Brimdísar Klöru Runólfsdóttur og Arnars Freys Logasonar um lóð Júllatún 8.Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina. Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Málsnúmer 201806009
Þröstur Jóhannesson verður fyrsti varamaður D lista í umhverfis- og skipulagsnefnd í stað Herdísar Waage.
Forseti bar breytinguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 202101042
Bæjarstjóri sagði frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.