Bæjarstjórn Hornafjarðar
296. fundur
7. apríl 2022
kl.
16:00
-
17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson
Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1030
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1031
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð fræðslu- og tómstundanefndar, fundargerð Ungmennaráðs.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1032
Sæmundur Helgason tók til máls undir 2. lið Leiðarhöfði - hönnunarsamkeppni og 6. lið fyrirhugað sorpútboð 2022.
Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir einnig til andsvars Páll Róbert Matthíasson og Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir einnig til andsvars Páll Róbert Matthíasson og Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1033
Sæmundur Helgason tók til máls undir 4. lið Nýr slökkvibíll - útboð.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 295
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins
Breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins lagðar fram til síðari umræðu. Helstu breytingar á samþykktum sveitarfélagsins varða 14. gr. um rafræna fjarfundi og 48. gr. þar sem fjölmenningaráð er fest í sessi í samþykktunum en ráðið hefur þegar tekið til starfa. Forseti bar breytingu á samþykktum sveitarfélagsins upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021 lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Ársreikningurinn hefur fengið kynningu í bæjarráði að viðstöddum aðalmönnum í bæjarstjórn. Ársreikningurinn var samþykktur í bæjarráði og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Matthildur Ásmundardóttir lagði fram ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2021. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 1,7 m.kr. en niðurstaða A hluta var neikvæð um 64 m.kr. Eigið fé í árslok 2021 nam 5.361 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta og 4.650 m.kr. fyrir A hluta. Veltufé frá rekstri A og B hluta var 431 m.kr. en 270 m.kr. í A hluta. Eiginfjárhlutfall A og B hluta í árslok nam 70,2% og 72,9% í A hluta. Veltufjárhlutfall var 0,76 í A og B hluta og 1,20 í A hluta. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 2.280 m.kr. í árslok 2021 en 1.727 m.kr. í A hluta. Skuldahlutfall A og B hluta í árslok 2021 var 70% og skuldaviðmið 46% sem er vel undir 150% hámarki viðmiðunarreglu samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
Matthildur lagði til að ársreikningi 2021 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Matthildur lagði til að ársreikningi 2021 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Hlutverk umhverfis- og loftlagsstefnu er að tryggja góð lífsgæði íbúa og innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun hjá Sveitarfélaginu. Áhersla er lögð á fjölbreytta og góða þjónustu, blómstrandi mannlíf, skilvirkan og ábyrgan rekstur ásamt öflugu atvinnulífi sem stuðlar að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.Megin markmið stefnunnar er að íbúar þekki leiðir til þess að stuðla að bættri umhverfishegðun og draga úr áhrifum sínum á umhverfi og loftslag. Lögð verður áhersla á að allt samfélagið sé virkur þátttakandi í samtali, fræðslu og aðgerðum tengdum umhverfis- og loftslagsmálum.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja umhverfis- og loftlagsstefnu sveitarfélagsins.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja umhverfis- og loftlagsstefnu sveitarfélagsins.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
9.
Mannauðsstefna
Bæjarstjóri greindi frá þremur undirstefnum mannauðsstefnu, stefna gegn einelti áreitni og ofbeldi, viðverustefna og fræðslustefna. Markmið með stefnu gegn einelti, áreitni og ofbeldi, er að unnið sé markvisst að því að fyrirbyggja og uppræta einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og einelti. Markmið með fræðslustefnu er að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast í starfi, tileinka sér nýja hæfni og efla þannig þekkingu innan sveitarfélagsins og kraft þess. Tilgangur og markmið viðverustefnu er annars vegar að standa vörð um heilbrigði starfsfólks með það að leiðarljósi að starfsumhverfi þeirra sé heilsusamlegt og hins vegar að allt starfsfólk hafi skýra og ákveðna verkferla er varðar tilkynningar, skráningar og viðbrögð við fjarvistum. Lagði til að bæjarstjórn samþykki stefnu gegn einelti áreitni og ofbeldi, viðverustefnu og fræðslustefnu sveitarfélagsins.
Bryndís Hólmarsdóttir tók til máls til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Jafnlaunastefna
Bæjarstjóri greindi frá að markmið sveitarfélagsins er að vera eftirsóttur vinnustaður og að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín á grundvelli verðmæti starfa óháð kyni, kynvitund eða öðrum ómálefnalegum ástæðum. Jafnlaunastefnu sveitarfélagsins er ætlað að tryggja að jafnréttis sé gætt við allar launaákvarðanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og þeim kröfum sem fram koma í Jafnlaunastaðli ÍST 85:2012.Lagði til að bæjarstjórn samþykki jafnlaunastefnu sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Breyting á aðalskipulagi - Hagaleira
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarbyggð á Leirusvæði ÍB1 stækkar til suðvesturs og opið svæði OP2 minnkar að sama skapi. Markmið breytingarinnar er að skapa rými í íbúðarbyggðinni fyrir nýja raðhúsalóð neðan við Fiskhól.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulagsbreyting Jökulsárlón - bílastæði við Nýgræðuöldur
Ósk um óverulega breytingu á deiliskipulagi Jökulsárlóns vegna færslu á bílastæði við Nýgræðuöldur. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulaginu og vísi því í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga og falli frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag Borgarhöfn
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að meginmarkmið með deiliskipulaginu er að skilgreina tjaldsvæði, byggingarreit fyrir smáhýsi, lóðir og byggingarreiti fyrir frístundahús. Áform landeiganda er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða uppá möguleika til gistingar og afleidda þjónustu. Deiliskipulagið var auglýst frá 16. ágúst til 27. september 2021. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni og Minjastofnun.Borist hefur afgreiðslubréf Skipulagsstofnunar þar sem athugasemdir koma fram. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að gerð var aðalskipulagsbreyting vegna VÞ45 Borgarhöfn- Neðribær þar sem gert er ráð fyrir allt að 75 gistirýmum og 300 gestum á allt að 3 ha tjaldsvæði. Uppbygging skv. deiliskipulagi fellur innan þessa ákvæðis. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bætt sé inn í greinargerð frekari skilmálum um tjaldsvæði og skógrækt og að leitað verði aftur umsagnar frá Rarik og Minjastofnun.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga með ofangreindum breytingum í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar með fyrirvara um umsagnir Rarik og Minjastofnunar og vísi því í lögformlegt ferli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Hafnar. Markmið með deiliskipulaginu er m.a. að styrkja miðsvæði bæjarins umhverfis skóla- og íþróttasvæðið og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Tillögurnar eru byggðar á þarfagreiningum starfshópa um íþrótta-, skóla, og útivistarsvæði frá 2015 og 2017, skipulagsforsögn og forsendugreiningu sem ráðgjafafyrirtækið Alta vann fyrir sveitarfélagið 2018 og 2019. Tillögurnar voru kynntar fyrir íbúum á opnum fundi þann 21. mars sl. í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Málið hefur einnig hlotið umfjöllun í fræðslu- og tómstundanefnd, ungmennaráði og velferðarnefnd.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga og vísi henni í lögformlegt ferli.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum Páll Róbert situr hjá.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum Páll Róbert situr hjá.
15.
Deiliskipulagsbreyting - Víkurbraut 9, Miðsvæði Hafnar reitur A
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar, reitur A milli Víkurbrautar og Tjarnarbrúar vegna fyrirhugaðar framkvæmdar við líkamsræktarstöð. Unnin hefur verið grenndarkynning, engar athugasemdir bárust. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og samþykki grenndarkynninguna skv. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag - Reynivellir II Hótel
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að óskað er eftir heimild til að auka byggingarmagn á deiliskipulagi Reynivalla II úr 4.800 m2 í 6.000 m2 og að hámarkshæð húss verði 11m frá aðkomugólfi í stað 10m.Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Reynivelli II og vísi því í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Landeignaskrá - Hnappavellir 1 - stofnun landeigna, landskipti
Erindi frá Gísla Sigurjóni Jónssyni þar sem óskað er eftir landskiptum á jörðinni Hnappavellir 1 L160164 skv. uppdrætti. Nýjar lóðir verði Hjáleiga landnúmer L233485, Flatatún L233486, Mói L233487. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 7 - vindskýli við hús
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Umsókn Birgis Árnasonar og Auðar Lóu Magnúsdóttur um heimild fyrir um 20 m² skýli við hús á Sandbakka 7. Lóðin er á svæði C3 skv. gildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3 en skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,39. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulegar breytingar á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Grenndarkynning hefur þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. laganna. Engar athugasemdir bárust. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynninguna skv. 43 og 44 gr. skipulagslaga og vísi því í lögformlegt ferli.
Samþykkt með sex atkvæðum.
19.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 15, viðbygging
Þórhallur Malmquist Einarsson óskar eftir heimild fyrir viðbyggingu við íbúðarhús á Sandbakka 15. Um er að ræða u.þ.b. 17 fm. stækkun til vesturs skv. framlögðum teikningum. Fyrirhugað er að reisa viðbyggingu á þegar steyptan sökkul og plötu sem steypt voru með sökkli hússins á sínum tíma. Lóðin er á svæði C3 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar, en þar kemur fram að hámarks nýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,34. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynninguna skv. 2. mgr. 43. gr. og 44 gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um byggingarheimild - Dalbraut 12, viðbygging, breyting á innra skipulagi
Golfklúbbur Hornafjarðar sækir um byggingarheimild fyrir litla viðbyggingu við hús að Dalbraut 12. Um er að ræða lokun innskots til að stækka anddyri skv. framlögðum teikningum. Auk þess eru kynntar breytingar á innra skipulagi og lögnum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði. Mannvirki er staðsett á ÍÞ2 svæði skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins og er framkvæmd í samræmi við aðalskipulagið.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að veita byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga og samþykki að fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda varðar framkvæmdin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 24, viðbygging
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið og 22. lið.Umsókn Einars Jóhanns Sigurðssonar um byggingarheimild til að byggja 59,2 m² bílskúr á lóðinni Miðtún 24 skv. framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, en skv. aðalskipulagi er lóðin á íbúðarsvæði ÍB9. Málið hefur þegar verið tekið til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti grenndarkynningu og byggingaráform á 255. fundi þann 16.10.2018, en skv. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 skal grenndarkynning fara fram að nýju áður en leyfi er veitt, þar sem byggingar- eða framkvæmdaleyfi á grundvelli grenndarkynningar hafi ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og vísi henni í lögformlegt ferli.
Samþykkt með sex atkvæðum.
22.
Lóðamál - Hafnarbraut 8 - ósk um stækkun lóðar
Umsókn Mikael ehf. um stækkun lóðarinnar að Hafnarbraut 8 skv. framlögðum gögnum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Heimilað verði að fjölga bílastæðum um 8 m. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stækkun lóðarinnar og að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
23.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Umsókn Hjördísar Eddu Olgeirsdóttur um lóð að Álaleiru 15.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni. Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Umsókn um lóð - Bíóbraggi, Heppa
Umsókn Íshússins ehf. um lóð á Heppu Bíóbraggi. Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni. Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Framkvæmdaleyfi - ljósleiðari milli Hóla og Almannaskarðsganga
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir lagningu ljósleiðara milli Hóla og Almannaskarðsganga.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
26.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara frá Skaftárhreppi að Skaftafelli
Orkufjarskipti óska eftir framlengingu á framkvæmdaleyfi til eins árs, en leyfið rann út 11. mars 2022. Ástæðan eru tafir á framkvæmdinni af ýmsum ástæðum, meðal annars gerði Covid erfitt fyrir varðandi mannskap og efnisöflun frá birgjum erlendis frá. Fyrirhugað er að hefja framkvæmdir síðla sumars júlí/ágúst 2022. Engin breyting hefur orðið á fyrirkomulagi framkvæmdarinnar.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
27.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.