Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

304. fundur
14. desember 2022 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1059
Málsnúmer 2211004F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1060
Málsnúmer 2211008F
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 5. lið umsögn, reglugerð um íbúakosningu sveitarfélaga. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls undir 5. lið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1061
Málsnúmer 2211011F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1062
Málsnúmer 2211015F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið, fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7. liður, Mikligarður og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Bæjarfulltrúar B-lista taka undir bókun atvinnu- og menningarmálanefndar og telja brýnt að tekin verði ákvörðun um framtíð Miklagarðs. Varðandi núverandi notkun á húsinu þá óska fulltrúar B-listans eftir upplýsingum um kostnað við rekstur hússins, hverjir eru að nýta húsið í dag, hvaða samningar eru í gildi og hvað leigjendur eru að greiða fyrir aðstöðuna.“
Ásgerður tók einnig til máls undir 8. lið, Atvinnu- og menningarmálanefnd og 6. liður í fundargerð bæjarráðs - Gamlabúð og bókaði eftirfarandi:
„Bæjarfulltrúar B-listans kalla eftir afstöðu meirihlutans til nýtingar á Gömlubúð eftir að leigusamningur við Vatnajökulsþjóðgarð rennur út þann 31. mars n.k. En ekki er gert ráð fyrir fjármagni til uppsetningar sýningar í húsinu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 eins og atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir né fjármagni til reksturs sýningar í húsinu.“


Ásgerður tók til máls undir 13. lið umsókn um byggingarheimild Hafnarbraut 52, salernisaðstaða og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar B-listans óska eftir umræðu um hvort bygging varanlegra mannvirkja á Tjaldstæði Hafnar er skynsamleg í ljósi staðsetningar tjaldsvæðisins inni í miðjum bæ og þarfar fyrir framtíðarbyggingarland. Bæjarfulltrúar B-listans hvetja meirihlutann til að láta óháða aðila meta tjaldsvæðið sem svæði fyrir íbúabyggð og huga með því að tengingum við aðra byggð, umferðaröryggi og ekki síst tíma og kostnað við undirbúning nýs byggingarsvæðis“.
Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Til andsvars undir 1. lið, fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7. liður, Mikligarður Hjördís Edda Olgeirsdóttir.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. lið Atvinnu- og rannsóknarsjóð.
Til andsvars Ásgerður K. undir 13. lið umsókn um byggingarheimild Hafnarbraut 52, salernisaðstaða.

Ásgerður tók einnig til máls undir Hafnarstjórn 251, 6. lið, dýpkun á grynnslunum og lagði til að bæjarstjórn taki undir bókun hafnarstjórnar.
„Hafnarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar bendir enn og aftur á ósanngjarna kostnaðarskiptingu á milli sveitarfélagsins og ríkisins við dýpkun á Grynnslunum. Grynnslin eru utan skilgreinds hafnarsvæðis og það er ekki um aðra leið að ræða fyrir flotann til hafnar af sjó. Hafnarstjórn hvetur yfirvöld samgöngumála eindregið til að taka nú þegar undir sjónarmið sveitarfélagsins og standa straum af kostnaði við dýpkun á Grynnslunum.“
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1063
Málsnúmer 2212002F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið félagslegt leiguhúsnæði.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 302
Málsnúmer 2211003F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Gjaldskrá vatnsveitu
Málsnúmer 201911041
Forseti greindi frá að gjaldskráin verði efnislega óbreytt en að gjöld hennar, önnur en vatnsgjald, mun taka breytingum í samræmi við vísitölubreytingar sbr. 6. gr. gjaldskrárinnar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá fyrir vatnsveitu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Gjaldskrá fráveitu
Málsnúmer 202001022
Forseti greindi frá að gjaldskráin verði efnislega óbreytt en að tengigjald fráveitu breytist í samræmi við vísitölubreytingar sbr. 2. gr. gjaldskrárinnar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskránna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Gjaldskrá byggingamála
Málsnúmer 202110086
Forseti greindi frá að gjaldskráin verði efnislega óbreytt og hún taki breytingum í samræmi við vísitölubreytingar sbr. 9. gr. gjaldskrárinnar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskránna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar
Málsnúmer 202101107
Forseti greindi frá gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu þar sem helstu breytingar eru, að gjaldtaka vegna förgunar á dýraleifum er ný og gjald vegna förgunar dýra verður lagt á skv. búfjáreftirlitsskýrslu til þess að standa undir kostnaði við förgunina. Einnig er 10% hækkun á sorphirðu- og sorpeyðingagjöldum. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskránna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Gjaldskrá umhverfis- og skipulagsmála
Málsnúmer 202110085
Forseti greindi frá að gjaldskráin verði efnislega óbreytt en að gjöld hennar taki breytingum í samræmi við vísitölubreytingar sbr. 7. gr. gjaldskrárinnar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskránna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2022
Málsnúmer 202208023
Hækkanir á gjaldskrám fræðslu- og frístundasviðs fylgdu að mestu vísitöluhækkunum. Þær undantekningar sem gerðar voru snérust um að efla áhuga og virkni og voru í þeim tilfellum lægri. Má þar nefna Tónskólann þar sem gjaldskrá barna hækkaði um 2% en fullorðinna um 3%, gjaldskrá Vöruhúss þar sem þeir liðir sem snéru að námskeiðshaldi og virkni einstaklinga hækkuð ekki og hið sama má segja um árgjald og 30 miða kort í sundlauginni. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Álagningarreglur 2023
Málsnúmer 202211014
Tillaga að álagningareglum 2023. Útsvar 14,52%Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði 0,37% af fasteignamati (var 0,41%)Fasteignaskattur á opinb. húsnæði 1,32%Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fasteignamati (var 1,49%)Lóðarleiga 1% af lóðarmatiHolræsagjald amkvæmt gjaldskrá (óbreytt)Vatnsgjald samkvæmt gjaldskrá (óbreytt)Sorpgjöld samkvæmt gjaldskrá (10% hækkun)
Forseti bar álagningarreglurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Málsnúmer 202208062
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2023 í A og B hluta eru eftirfarandi:Ráðgert er að rekstrartekjur A hluta árið 2023 verði 3.409.086 þús. en þær eru áætlaðar 3.159.859 þús. í nýrri afkomuspá fyrir yfirstandandi ár og voru 2.919.980 þús. kr. árið 2021. Hækkunin frá því 2021 nemur því 467 milljónum eða tæp 17% og munar um minna. Rekstrargjöld A hluta á næsta ári eru áætluð 3.178.365 þús. en eru áætluð 2.857.144 þús. í útkomuspá þessa árs. Hækkunin milli ára nemur 321.221 þús. eða 11,2%. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld A hluta á komandi ári eru áætluð: 27.440 þús. og afskriftir 158.480 þús. Rekstrarniðurstaða verði því jákvæð sem nemur 203.281 þús. Sé litið til samstæðurnar, það er A og B hluta, má sjá að ráðgert er að rekstrartekjur verði 3.770.771 þús. en þær voru áætlaðar 3.308.635 þús. á yfirstandandi ári. Tekjur samstæðu hækka því frá fyrri áætlun um 462.136 þús. eða 14%.Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eru áætlaðar 101.067 og afskriftir 248.073 þús. Þannig verði rekstarniðurstaða jákvæð sem nemur 238.547 þús. Gangi þessi áætlun eftir ráðgerum við að veltufé samstæðu frá rekstri verði 577.932 þús. og að fjárfesting nemi 1.042.700 þús. kr. Þá er fyrirhugað að greiða langtímalán niður fyrir 118.402 þús. en samhliða verði tekin ný lán að upphæð 450 milljónir króna.
Til máls tók Björgvin Óskar Sigurjónsson til andsvars Sigurjón Andrésson einnig til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls.
Forseti bar fjárhagsáætlun 2023-2026 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar
Málsnúmer 202212017
Sigurjón Andrésson greindi frá endurnýjun á samningi við Björgunarfélag Hornafjarðar. Með samningnum er ætlað að efla samstarf Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Björgunarfélags Hornafjarðar, þannig að tryggja öflugt almannavarna, félags- og öryggisstarf í sveitarfélaginu. Helstu breytingar á samningnum eru að skoða framhaldið á því varðandi nýja björgunarmiðstöð. 13. gr. er ný grein þar er greint frá að vegna uppbyggingar björgunarmiðstöðvar félagsins við Sæbraut skuldbindur Sveitarfélagið Hornafjörður sig til að styrkja Björgunarfélagið fyrir innviðagjöldum sem snúa að greiðslum til sveitarfélagsins.Lagði til að bæjarstjórn samþykki samninginn.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Sigujrón Andrésson, til andsvars Ásgerður Kristín aftur til andsvars Sigurjón og aftur til andsvars Ásgerður Kristín.
Forseti lagði til að málinu verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Málsnúmer 202208029
Markmið siðareglna fyrir kjörna fulltrúa er að skilgreina og skerpa á hvaða háttsemi kjörnir fulltrúar þarf að sýna af sér við öll sín störf. Ætlast er til að þeir sinni störfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta almannahagsmuna og hagsmuna Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Í störfum sínum er kjörinn fulltrúi bundinn af lögum, reglum og samþykktum Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem og sannfæringu sinni. Siðareglurnar hafa fengið umfjöllun í öllum nefndum sveitarfélagsins.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki siðareglurnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Seljavellir 2 - Verslun og þjónusta, Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202209054
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir Seljavelli 2.Skipulagslýsing var kynnt og var athugasemdarfrestur frá 25. okt. til 8. nóv. 2022. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, RARIK, HAUST, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands.Markmið með breytingunni er að, efla byggð, uppbygging ferðaþjónustu, skynsamlega og hagkvæma nýtingu lands og landsgæða og tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar.Aðalskipulagið styður við frekar uppbyggingu ferðaþjónustu á Seljavöllum 2, og markmið þess er m.a. að bjóða ferðamönnum upp á fjölbreyttari gistimöguleika með útleigu á smáhýsum m.a.Samhliða er unnið deiliskipulag fyrir svæðið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki aðalskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Seljavellir 2 - Deiliskipulag
Málsnúmer 202205087
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Seljavelli 2 vegna uppbyggingar ferðaþjónustu. Skipulagslýsing var kynnt og var athugasemdarfrestur frá 25. okt. til 8. nóv. 2022. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, RARIK, HAUST, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Samhliða er unnið að breytingu aðalskipulags fyrir svæðið og það skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Tjaldsvæði og íbúðarsvæði Fiskhóli, gangstétt við Víkurbraut - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202211041
Lögð fram breyting á deiliskipulagi tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis á Fiskhóli þar sem gert er ráð fyrir nýrri gönguleið norðaustan Víkurbrautar frá Fákaleiru að Fiskhóli.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulaginu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Byggingarleyfisumsókn - Svínafell 2, íbúðarhús
Málsnúmer 202211075
Umsókn Ernu Ragnhildar Gísladóttur um leyfi til að byggja íbúðarhús í Svínafelli 2, Nesjum (landeignarnúmer L222008). Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, samkvæmt aðalskipulagi er lóð innan skógræktar- og landgræðslusvæðis/landbúnaðarsvæðis..
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki byggingarleyfi að Svínafelli 2 án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra skv. 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Byggingarleyfisumsókn - Fiskhóll 11, breyting inni, fjölgun íbúða
Málsnúmer 202211112
Umsókn Sveinbjörns Imsland f.h. Imsland ehf. um byggingarleyfi fyrir breytingu á húsi að Fiskhól 11. Um er að ræða breytingar að innan. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum í húsinu úr þrem í fjórar. Lóðin er á íbúðarsvæði ÍB6 sem gerir ráð fyrir 10-15 íbúðum á svæðinu. Með breytingu sem hér um ræðir fer fjöldi íbúða á svæðinu úr 11 í 12. Í gildandi deiliskipulagi er ekki skilgreindur hámarksfjöldi íbúða í húsinu en þar kemur fram að lóðir við Fiskhól séu fullbyggðar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á húsinu að Fiskhól 11 þannig að það verði fjórar íbúðir í húsinu og samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Umsókn um byggingarheimild - Hringvegur, vinnubúðir Ístak
Málsnúmer 202210037
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Umsókn Ístak hf. um byggingarheimild fyrir vinnubúðir vegna framkvæmda við Hornafjarðarfljót. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita leyfi fyrir vinnubúðir án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
23.
Landeignaskrá - Mói Meðalfell 2, uppskipting landeigna
Málsnúmer 202211079
Olgeir Karl Ólafsson, Karl Ágúst Guðnason og Þorsteinn Sigjónsson óska eftir uppskiptingu jarðarinnar Móa Meðalfelli 2. Fyrirhugað er að stofna lóðir samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum. Um er að ræða landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við stofnun lóðanna, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin taldi að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin skv. 6. gr. jarðalaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Landeignaskrá - Miðsker, stofnun landeignar Miðsker III
Málsnúmer 202211102
Miðskersbúið ehf. óska eftir að úr jörðinni Miðsker (159510) verði stofnuð ný 792 m² viðskipta- og þjónustulóð um núverandi tvö frístundahús sem áætlunin er að hafa í útleigu. Svæði er á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ferðaþjónusta heimiluð innan tiltekna marka að uppfylltum skilyrðum.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samrýmist hún skipulagsáætlun. Nefndin taldi að stofnun lóðar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar sbr. 6.gr. jarðalaga.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin skv. 6. gr. jarðalaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Umsókn um lóð - Álaleira 6
Málsnúmer 202211045
Umsókn Björgunarfélags Hornafjarðar um lóð að Álaleiru 6.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
26.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku
Málsnúmer 202211097
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.Umsókn Jökulfells ehf. um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námu E38 að Svínafelli. Náman er staðsett í árfarvegi Austurfljóts. Fljótið hefur þornað upp þar sem Hoffellsjökull hefur hörfað það mikið að fljótið fellur til vesturs, í Vesturfljót. Svæðið er áraurar og nær gróðurlaust.Áður hefur verið gefið út framkvæmdaleyfi vegna efnistöku allt að 17.500 m3 í hluta námunnar. E38 - Heimilt að taka allt að 49.999 m3.Tekið úr árfarvegi Austurfljóts á um 1,5 ha svæði. Um er að ræða ógrónar áreyrar og flóðasvæði og því engar líkur á að þar séu fornminjar.Þegar vinnslu lýkur verða gerðir fláar í jöðrum námunnar til að draga úr sjónrænum áhrifum og til þess að hún skapi ekki hættu. Ekki er gert ráð fyrir að græða hana upp, þar sem umhverfið er allt ógróið. Sótt er um leyfi til að taka 20.000 m3 á árunum 2022-2025.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi úr námu E38 skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.

27.
Landeignaskrá - Seljavellir 2 lóð, stofnun landeignar
Málsnúmer 202211039
Ásgeir Núpan Ágústsson og Valgerður Egilsdóttir óska eftir stofnun lóðar úr landi Seljavalla 2, landeignarnúmer L159514. Um er að ræða 2,8 ha. verslunar- og þjónustulóð. Breyting á aðalskipulagi og tillaga að deiliskipulagi eru í ferli.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við uppskiptingu landsins, enda er hún í samræmi við þær skipulagsbreytingar sem eru í ferli.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin skv. 6. gr. jarðarlaga enda er hún í samræmi við skipulagsbreytingar sem eru í ferli.
Samþykkt með sjö atkvæðum.