Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

310. fundur
10. maí 2023 kl. 16:00 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1082
Málsnúmer 2304011F
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 5. lið, erindi Fjallsárlóns til bæjarráðs og formanns Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls undir 5. lið og 2. lið, atvinnu- og menningarmálanefnd 2. lið, Mikligarður til andsvars Sigurjón Andrésson. Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. lið, Fræðslu- og frístundanefnd til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1083
Málsnúmer 2305001F
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 1. lið, hafnarstjórn 1. lið dýpkun á Grynnslunum til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir til andsvars Sigurjón Andrésson, til andsvars Skúli Ingólfsson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
3.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 309
Málsnúmer 2304012F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022
Málsnúmer 202303066
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022 lagður fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri kynnti ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2022. Engar breytingar hafa verið gerðar á ársreikningi frá fyrri umræðu í bæjarstjórn. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki ársreikning fyrir árið 2022.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Í íbúakosningu um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar Innbæ skal kosningaaldur miðast við 16 ár sbr. 4. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga.Miða skal við að kjósandi hafi náð þeim aldri sem kosningarréttur miðar við á lokadegi kosningar.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Reglur um íbúakosningu
Málsnúmer 202305040
Íbúakosning sem fram fer á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar 19. júní - 10. júlí nk. Kosningin skal fara fram á grundvelli þessara reglna, reglugerðar innviðaráðuneytisins um íbúakosningar og sveitarstjórnarlaga.Reglur þessar gilda um íbúakosningu, um samþykkt aðal- og deiliskipulag þéttingu byggðar Innbæ.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um íbúakosningu og vísi þeim til birtingar í Stjórnartíðindum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Málsnúmer 202305001
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun ársins lagður fram. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðbótarfjárheimildum verði mætt með lækkun á handbæru fé og viðbótarlántöku að fjárhæð 100 m.kr.
Forseti bar viðaukann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Staða sviðsstjóra velferðarsviðs
Málsnúmer 202303063
Ásgerður K. Gylfadóttir vék af fundi undir þessum lið. Forseti greindi frá ráðningu Skúla Ingibergs Þórarinssonar í starf sviðsstjóra velferðarsviðs. Ráðningin var samþykkt í bæjarráði eftir að Hagvangur hafði unnið úr umsóknum og umsóknarferli. Hann óskaði eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnanda er að ræða.
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum ráðningu Skúla Ingiberg Þórarinsson í starfið og býður hann velkominn til starfa.
9.
Deiliskipulag Þorgeirsstaðir í Lóni
Málsnúmer 201908028
Deiliskipulag Þorgeirsstaða í Lóni er tekið fyrir að nýju þar sem deiliskipulagsferli frá 2020 lauk ekki innan þess tímaramma sem skipulagslög setja. Deiliskipulagið nær til hluta jarðanna Þorgeirsstaða (landnr. 159402) og Þorgeirsstaða 3 (landnr. 223144) í Lóni. Skipulagssvæðið er um 12 ha. að stærð og er í þrennu lagi. Á Þorgeirsstöðum er íbúðarhús og fjárhús en einnig hefur verið rekin þar ferðaþjónusta með gistingu fyrir 7 gesti. Virkjun er í Þorgeirsstaðaá. Fyrirhuguð er frekari uppbygging á ferðaþjónustustarfsemi, m.a. að breyta fjárhúsum í gistingu fyrir allt að 60 gesti.Skipulagið var auglýst frá 17. mars til 28. apríl 2023. Engin athugasemd barst en umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Þorgeirsstaði í Lóni skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Hornafjarðarhöfn við Ósland - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202104021
Breyting á deiliskipulagi fyrir Hornafjarðarhöfn, Ósland var í kynningu frá 30. september til 11. nóvember 2022. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, MAST, Vegagerðinni og Náttúrustofu Suðausturlands ses. Ein athugasemd barst. Megin markmið með breytingunni er að tryggja skilvirka nýtingu og markvissa uppbyggingu á hafnarsvæðinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu til umsagnar hjá hafnarstjórn, sem gerði ekki athugasemd við skipulagið.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á deiliskipulagi fyrir Hornafjarðarhöfn Ósland skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Sel 1, reiðhöll
Málsnúmer 202304060
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Öræfahestar ehf. sækir um byggingarheimild til þess að reisa reiðhöll á lóðinni Sel 1 í Öræfum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði.Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Grenndarkynning hefur þegar farið fram, engar athugasemdir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og að reist verði reiðhöll að Seli 1.
Samþykkt með sex atkvæðum.
12.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Skaftafell 3, svalir
Málsnúmer 202304038
Óskað er eftir heimild til að byggja svalir út af svefnlofti 35 gestahúsa á lóð Skaftafells III og IV. Meðfylgjandi eru drög að umræddum húsum og byggingu svala af svefnlofti. Óskað er eftir að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3.mgr. 43.gr. laganna.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3.mgr. 43.gr laganna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Landeignaskrá - Hoffell 2 og Miðfell, stofnun landeignar Hoffell 3
Málsnúmer 202304070
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir og Þrúðmar Sigurður Þrúðmarsson óska eftir stofnun nýrrar lóðar Hoffell 3 úr sameignarlandi Miðfells og Hoffells 2, samkvæmt framlögðum uppdráttum. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun landeignarinnar lóð að Hoffelli 3 úr sameignarlandi Miðfells og Hoffells 2.
Samþykkt með sex atkvæðum.