Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

312. fundur
16. ágúst 2023 kl. 16:00 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson 1. varamaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir 2. varamaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland 2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1089
Málsnúmer 2306007F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 4. lið, Gamlabúð auglýsing vegna leigu og 11. lið, málefni Sindra.
Guðrún Stefanía Ingólfsdóttir tók við fundarstjórn.
Til andsvars Gauti Árnason undir 4. lið, Gamlabúð auglýsing vegna leigu og 11. lið málefni Sindra.
Gauti Árnason tók aftur við stjórn fundarins.
Til andsvars Hjördís Olgeirsdóttir undir 4. lið, Gamlabúð auglýsing vegna leigu.
Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Ólöf Ingunn Björnsdóttir tók til máls undir 4. lið Gamlabúð auglýsing vegna leigu.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1090
Málsnúmer 2306015F
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 2. lið, umhverfis- og skipulagsnefnd undir 9. lið sláttur á opnum svæðum.
Sigríður Þorvarðardóttir tók til máls undir 21. lið, umsókn um styrk hljómsveitin Fókus.
Gunnhildur Imsland tók til máls undir 1. lið, fræðslu- og frístundanefnd 15. lið, ungmennaráð Hornafjarðar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1091
Málsnúmer 2307003F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 7. lið, íbúakosning um þéttingu byggðar innbæ, 15. lið áhyggjur af fjölgun ferðamanna álag á innviði, 16. lið, ráðning sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og 26. lið, deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 5. lið, starfsumhverfi leikskóla Guðrún Stefanía tók við fundarstjórn.
Til andsvars Gauti Árnason undir 7. lið, íbúakosning um þéttingu byggðar innbæ, 16. lið, ráðning sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og 26. lið, deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5.

Til andsvars Ólöf Ingunn Björnsdóttir undir 16. lið, ráðning sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir undir 16. lið, 7. lið, og 26. lið.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir 1. lið, atvinnu- og menningarmálanefnd, 1. lið, ferðamennskusamfélagið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1092
Málsnúmer 2307005F
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir tók til máls undir 10. lið, lóð undir verslun og þjónustu. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir 4. lið, þétting byggðar innbæ.
Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Til andsvars Hjördís Edda Olgeirsdóttir.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók við fundarstjórn.
Til andsvars Gauti Árnason. Gauti Árnason tók við fundarstjórn.
Aftur til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1093
Málsnúmer 2308001F
Guðrún Stefanía tók við fundarstjórn.
Gauti Árnason tók til máls undir 13. lið umsögn, sjóvörn og færsla hringvegar um Jökulsárlón. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls undir 13. lið og lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni og lið 4. samgönguáætlun 2024-2038.
Til andsvars Gauti Árnason.
Gauti Árnason tók við fundarstjórn.
Forseti bar upp tillögu Ásgerðar um að bæjarstjórn geri eftirfarandi bókun bæjarráðs að sinni.

"Bæjarstjórn hvetur til þess að framkvæmdin við Jökulsá á Breiðamerkursandi verði kláruð með nýrri tvíbreiðri akstursbrú sem fyrst þar sem núverandi brú er stórhættuleg. Hægt er að nýta núverandi brú sem göngubrú og auka þannig öryggi gangandi vegfarenda."
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 311
Málsnúmer 2306008F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Málsnúmer 202201032
Deiliskipulagstillaga fyrir Reynivelli var í kynningu frá 26. júní til 7. ágúst, engar athugasemdir bárust. Markmið skipulagsins er að gera grein fyrir lóðum og byggingareitum fyrir gestahús, lóð sem áður var undir íbúðahús verður nýtt gistiheimili og skemmu fyrir vélar og aðstöðu fyrir ferðaþjónustu, áætlaður gestafjöldi er 108 manns.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Reynivelli, Efribæ.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Innviðir í sveitarfélaginu styðji við orkuskipti í samgöngum
Málsnúmer 202308023
Ásgerður Kristín Gylfadóttir greindi frá að bæjarfulltrúar Framsóknar leggja til að skoðað verði að bæta nýtingu rafhleðslustöðva sveitarfélagsins við Miðbæ og Miðgarð með vísan til markmiðs um samgöngur og skipulag í Umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins. Meginmarkmið stefnunnar er varða samgöngur og skipulag er: Skipulag og innviðir sveitarfélagsins styðji við vistvænar samgöngur. Áhersla verði lögð á aðgengi að hjólastígum og hleðslustöðvum fyrir ökutæki sem lið í vegferð sveitarfélagsins að kolefnishlutleysi.Það verði gert með því að veita almenningi aðgang að stöð við Miðgarð og vekja aukna athygli á hleðslustöð við Miðbæ t.d. í samvinnu við Ísorku, ON eða aðra sem eru á þessum markaði þannig að þeir verði sýnilegir í þeirra kerfum/appi. Þá leggur Framsókn til að skoðað verði að skipta út núverandi hleðslustaurum fyrir nýja með það að markmiði að auðvelda innheimtu hóflegs gjalds fyrir notkun í samvinnu við fyrirtæki á þessum markaði.Ásgerður lagði til að bæjarstjórn samþykki að vísa tillögunni til vinnslu hjá umhverfis- og skipulagsnefnd.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls.
Forseti bar upp tillögu Framsóknarflokksins um að vísa tillögunni til vinnslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.