Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

313. fundur
14. september 2023 kl. 15:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir 2. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1094
Málsnúmer 2308006F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 6. lið, leikskólinn starfshópur um leikskólamál. Sigurjón Andrésson tók til máls undir 7. lið, sorphirða og urðun, tilboð og 9. lið framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 7. lið, sorphirða og urðun.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1095
Málsnúmer 2308009F
Sigríður Þorvarðardóttir tók til máls undir 2. lið, Gamlabúð, auglýsing vegna leigu. Sigurjón Andrésson tók til máls undir 8. lið, ráðning fjármálastjóra og 9. lið, ósk um aukafjárveitingu í íþróttahús. Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir 4. lið, humarhátíð 2023, Hjördís Olgeirsdóttir tók einnig til máls undir þessum lið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1096
Málsnúmer 2308013F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 1. lið, fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar undir 1. lið, breyting á aðalskipulagi, nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn.
Björgvin tók til máls undir 6. lið, beiðni framlenging á styrktarsamningi. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 5. lið, endurbætur á Sindrabæ, til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1097
Málsnúmer 2309003F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 4. lið, fundargerð, Hafnarstjórn Hornafjarðar. Skúli Ingólfsson tók til máls undir 2. lið, dýpkun á grynnslunum, Björgvin Ó. Sigurjónsson tók einnig til máls undir þessum lið. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 7. lið, gjaldskrá byggingamála, til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 312
Málsnúmer 2308004F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Málsnúmer 202305001
Bæjarstjóri fór yfir viðauka III greindi frá áhrifum á fjárhagsáætlun ársins. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðaukanum verður mætt með viðbótarlántöku að fjárhæð 80 m.kr.
Forseti bar viðaukann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202301058
Breyting á reglum um starfsemi leikskóla vegna skráningardaga lagðar fram. Þær breytingar sem nú eru gerðar á reglunum miða fyrst og fremst að því að aðlaga þær að hugmyndum um skráningardaga.
Forseti bar reglur um starfsemi leikskóla upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Málsnúmer 202308017
Lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi fyrir nýtt verslunar og þjónustuhúsnæði á Höfn lögð fram. Breytingartillagan snýst um að afmarka nýtt verslunar- og þjónustusvæði við Hafnarbraut við norðurjaðar núverandi byggðar fyrir rýmisfrekar verslanir og aðra þjónustu. Til samanburðar við þetta svæði verða skilgreindir valkostir um uppbyggingu verslunar- og þjónustusvæði innan núverandi byggðar og þeir bornir saman með tilliti til matsþátta.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Hjáleiga í Öræfum - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202306032
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi þar sem áréttað er og skýrðar betur þær heimildir til uppbyggingar á landbúnaðarlandi.Markmið með breytingunni er að koma til móts við þarfir ferðaþjónustu með aðstöðu fyrir starfsfólk.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan er að árétta þær heimildir sem eru til staðar í gildandi aðalskipulagi og því einungis um skýrari skilmála að ræða en ekki efnislega breytingu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag Hnappavellir 1 - Hjáleiga
Málsnúmer 202304032
Suðureignir ehf. leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hjáleigu, að Hnappavöllum í Öræfum. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland. Innan byggingareitsins verður heimilt að byggja allt að 6 íbúðarhús.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Tillaga að skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi við Hvalvörðugilslæk í Öræfum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vísa skipulagslýsingunni í lögformlegt ferli skv. 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.