Bæjarstjórn Hornafjarðar
315. fundur
9. nóvember 2023
kl.
15:00
-
15:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir
2. varamaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Þröstur Jóhannsson
3. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir og Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1102
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir 3. lið fundargerð íbúaráðs í Nesjum og Lóni.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1103
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð fræðslu og frístundanefndar 1. lið og 3. lið lýðheilsuráð.
Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1104
Ágerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið í fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar starfastefnumót, 2. lið uppbygging innviða á Jökulsárlóni, 3. lið umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða og 8. lið í fundargerð bæjarráðs, starfsmannamál umhverfis- og skipulagssviðs. Að lokum óskaði hún Menningarmiðstöðinni til hamingju með Menningarverðlaun Suðurlands 2023.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1105
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 2. lið íbúaráð í Suðursveit og Mýrar.
Þröstur Jóhannsson tók til máls undir 1. lið fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 18. lið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Þröstur Jóhannsson tók til máls undir 1. lið fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 18. lið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 314
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2024 í A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 313,5 m.kr., skuldir og skuldbindingar 3.254 m.kr., veltufé frá rekstri 715,5 m.kr., ný lántaka 300 m.kr., afborganir langtímalána 117 m.kr., handbært fé í árslok 64,5 m.kr. Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum 78,8%.
Fjárfestingaáætlun næsta árs hljóðar upp á 1.015 m.kr. og unnið er að forgangsröðun verkefna og verður sundurliðuð framkvæmdaáætlun birt við síðari umræðu fjárhagsáætlunar á fundi bæjarstjórnar í desember.
Þá eru álagningarreglur í endurskoðun og verða tillögur mótaðar að greiningavinnu lokinni og nýjar álagningarreglur afgreiddar við síðari umræðu fjárhagsáætlunar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn vísi fjárhagsáætlun 2024-2027 til síðari umræðu bæjarstjórnar.

7.
Lántaka 2023
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir hér með á 315 fundi bæjarstjórnar að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 350.000.000 í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun ársins 2023.
Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins, skv. gildandi áætlun, sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Sigurjóni Andréssyni, bæjarstjóri, kt. 1012703279, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Forseti bar tillögu um lántöku upp til atkvæða.

8.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Bæjarstjóri fór yfir viðauka V við fjárhagsáætlun ársins. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Forseti bar viðauka V upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Skipurit
Þær breytingar á skipuritinu eru að fjármála- og stjórnsýslusviði verður skipt upp í tvö svið fjármálasvið og stjórnsýslusvið.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls og ítrekaði ósk bæjarráðs um kostnaðarmat á fyrirhuguðum breytingum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingar á skipuriti sveitarfélagsins.
Samþykkt með fimm atkvæðum Ásgerður Kristín Gylfadóttir og Björgvin Sigurjónsson sátu hjá.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingar á skipuriti sveitarfélagsins.
Samþykkt með fimm atkvæðum Ásgerður Kristín Gylfadóttir og Björgvin Sigurjónsson sátu hjá.
10.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2023
Aðrar gjaldskrár hækka skv. vísitöluhækkun enda er sveitarfélagið með lægri gjaldskrár en mörg önnur sveitarfélög. Sú breyting verður á gjaldskrá sundlaugar að öryrkjar og öll ungmenni undir 18 ára fá nú frítt í sund. 67 ára og eldri greiða sambærilegt gjald og áður en geta nú sótt um heilsueflingarstyrk að andvirði árskorts
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá fyrir skólamáltíðir, gjaldskrá fyrir síðdegishressingu í Þrykkjunni, gjaldskrá sundlaugar, gjaldskrá leikskóla, gjaldskrá vegna dagforeldra, gjaldskrá Vöruhúss, gjaldskrá Kátakots- og gjaldskrá fyrir Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Gjaldskrá 2024
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvar lögð fram.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá Menningarmiðstöðvar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Nýtt deiliskipulag fyrir Reynivelli Efribæ tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir gistihús og skemmu fyrir tæki og aðstöðu fyrir ferðaþjónustu. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum. Tillagan var endurauglýst frá og með 30. ágúst til 11. október 2023. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Náttúrufræðistofnun.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Reynivellir Efribær samkvæmt 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem Minjastofnun leggur til og senda það til afgreiðslu Skipulagsstofnunar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Landeignaskrá: Hólar - útskipting nýrrar landeignar Hólar 2
Akurnesbúið ehf. og Stefán Trausti Sigurðsson óska eftir uppskiptingu landeignar Hólar 2 úr jörðinni Hólar L159498, skv. framlögðum uppdráttum. Um er að ræða nýja u.þ.b. 42 ha. lóð sem stofnuð verður að öllu leyti úr landi Hóla. Við stofnun nýrrar landeignar er ekki verið að hnitsetja eða breyta núverandi afmörkun Stöðuls 1 og Ártúns.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeignar enda samræmist hún skipulagsáætlun og hefur ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun lóðarinnar Hólar 2 úr landi Hóla.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Umsókn Þingvaðs ehf. Júllatún 8 bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Umsókn Þingvaðs ehf. Júllatún 10 bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.