Bæjarstjórn Hornafjarðar
318. fundur
11. janúar 2024
kl.
15:00
-
16:13
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1011
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 1. lið, hafnarstjórn, 2. lið, dýpkun á Grynnslum 2022-2023.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 11. lið, Krísuástand í raforkumálum á Íslandi og lagði til að bæjarráð geri bókun bæjarstjórnar að sinni.
"Síðastliðin 9 ár hefur Skinney-Þinganes hf. notast rafmagn við framleiðslu fiskimjöls og lýsi, en nú er enga orku að hafa þar sem ekki er nægt rafmagn til í kerfinu. Félagið hefur þess vegna fest kaup á olíukatli sem er ætlaður sem varaafl fyrir verksmiðjuna og knúinn er af dísel olíu.
Bæjarstjórn lýsir furðu sinni og vonbrigðum með að við hér á landi séum komin í þá grafalvarlegu stöðu að fyrirtæki sem hafa fjárfest mikið og lagt metnað sinn í að reka sína framleiðslu á innlendum sjálfbærum orkugjöfum, sé nú sett í þá stöðu að þurfa að fjárfesta í tækjum sem framleiða orku og keyra á dísel olíu.
Bæjarstjórn skorar á stjórnvöld að fara nú þegar í aðgerðir til að tryggja næga raforku til notenda og koma í veg fyrir að keyra þurfi á innfluttri og mengandi orku. Öðruvísi munum við aldrei ná okkar loftslagsmarkmiðum."
Forseti bar bókun bæjarráðs upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Til máls tók Björgvin Óskar Sigurjónsson, til andsvars Sigurjón Andrésson.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið, velferðarnefnd 1. lið öldungaráð - 13 og 5. lið, íbúaráð í Öræfum 2. lið, veglokanir og aðgerðir í stormviðri.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1012
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir 7. lið, gjaldskrá söfnunarstöðvar, til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 316
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 317
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls, og lagði eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn lýsir yfir að hún muni ekki láta sitt eftir liggja og endurskoða gjaldskrár sveitarfélagsins komi til þess að það geti liðkað til fyrir þjóðarsátt um kjarasamninga. Bókun þessi á við um liði 5., 6. Og 7. í fundargerðinni."
Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir
Forseti bar tillögu Ásgerðar upp til atkvæða.
Forseti bar gjaldskrána upp til atkvæða.

6.
Gjaldskrá söfnunarstöðvar
Hækkun á gjaldskrá söfnunarstöðvar er 15% og er í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar gjaldskrána upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar gjaldskrána upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu
Breyting á gjaldskrá vegna sorphirðu og sorpeyðingargjalda í samræmi við breytta löggjöf sem tók gildi síðustu áramót. Hækkunin nemur 1,04%-28,5% eða 15% að meðaltali á heimili. Hækkun á gjöldum er misjöfn eftir samsetningu sorpíláta. Íbúar geta skráð sína samsetningu sorpíláta í íbúagátt á hornafjordur.is/ibuagatt. Vegna ákvæða laga um að greitt sé fyrir allan úrgang munu fyrirtæki taka þátt í rekstrarkostnaði á urðunarstað og móttökustöðv með föstu gjaldi á atvinnuhúsnæði. Lagt er upp með að málaflokkurinn standi undir sér eins og lög gera ráð fyrir árið 2027.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar gjaldskrána upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar gjaldskrána upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Umsókn um lóð - Silfurbotn 1-5 (raðhúsalóð)
Umsókn Berglindar Gerðu Libungan um lóð að Silfurbotni 1-5 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar lóðaúthlutunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2024
Meginmarkmið sveitarfélagsins í húsnæðismálum er að skapa íbúum tækifæri til þess að búa í öruggu húsnæði. Áhersla er lögð á að íbúar sem þarfnast stuðnings með sín húsnæðismál hafi forgang. Við framkvæmd húsnæðisstefnu verður litið til þess að hún nái fram að ganga óháð eignarhaldi íbúða þ.e. íbúðanna sjálfra, leigufélaga, annarra samtaka eða sveitarfélagsins í samræmi við lög um húsnæðismál.
Forseti bar húsnæðisáætlun Hornafjarðar 2024 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 er lögð fram, þar sem markmiðið er að afmarka nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn þar sem koma megi fyrir rýmisfrekri verslunar- og þjónustustarfsemi. Vaxandi þörf er fyrir verslunar og þjónustuhúsnæði þar sem mikill fjöldi ferðamanna og fjölgun íbúa hefur átt sér stað síðastliðin áratug.
Sigurjón Andrésson tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa tillöguna og senda hana til Skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa tillöguna og senda hana til Skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Breyting á íbúðarbyggð ÍB5 á Höfn - Breyting á aðalskipulagi
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Markmiðið með tillögunni er að stækka íbúðasvæði á Höfn, norðan megin við tjaldsvæði. Nýtt deiliskipulag fyrir svæðið verður unnið samhliða aðalskipulagsbreytingunni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa tillöguna og senda hana til Skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Smyrlabjörg - Deiliskipulag
Unnið er að nýju deiliskipulagi fyrir byggðarkjarnann að Smyrlabjörgum, ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Markmið með gerð deiliskipulagsins er að fjölga starfsmannahúsum fyrir starfsemina að Smyrlabjörgum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að tillagan verði auglýst og kynnt skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Krosseyjarvegur 2 - undanþága frá hæðartakmörkunum í dsk
Erindi frá Skinney Þinganes hf. þar sem sótt er um undanþágu frá hæðartakmörkunum á skilgreindum byggingarreit á Krosseyjarvegi 2. Markmiðið er að koma fyrir frystibúnaði í fjórum 20 feta gámaeiningum ofan á frystiklefanum. Einingarnar verða 1,8 m hærri en skilgreind hámarkshæð í gildandi deiliskipulagi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga um hámarkshæð þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Leiðarhöfði - Deiliskipulag
Í upphafi árs 2022 fór fram samkeppni fyrir framtíðarnýtingu á Leiðarhöfða. Tilgangur samkeppninnar var að móta umgjörð um framtíðarnotkun svæðisins og skapa einstakan áningarstað á Höfn með mögulegri samþættingu byggðar og útivistarsvæðis. Markmiðið er að skipulagið auki aðdráttarafl Hafnar sem ferðamannastaðar og dragi til sín heimamenn. Að uppbyggingin falli vel að landi og nærliggjandi byggð, mannvirkiverði lágstemmd og rýri ekki gæði þess. Hugað verði að öryggi og aðgengi allra gesta.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að tillagan verði auglýst og kynnt í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Krosseyjarvegur 2 - Breyting á deiliskipulagi
Skinney-Þinganes hf. um breytingu á deiliskipulagi, þannig að gert verði ráð fyrir uppsetningu búnaðar í nýrri viðbyggingu Krosseyjarvegs 2 til þess að landtengja skip sem liggja við bryggju.
Sigurjón Andrésson tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga varðandi viðbyggingu og tengikrana þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga. Staðsetning bryggjukrana verði ákveðin í samráði við Hafnarstjórn.

16.
Skaftafell III - framkvæmdaleyfi vegna vegalagningar
Erindi frá Arctic Circle Hotels ehf. þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir vegalagningu að Skaftafelli 3C í Öræfum og efnistöku úr námu E75 í samræmi við framlögð gögn.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðal- og deiliskipulag.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi fyrir vegagerð og efnistöku í námu E75 í samræmi við framlögð gögn skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Kosningar í nefndir 2022-2026
Gauti Árnason forseti bæjarstjórnar vék af fundi undir þessum lið. Björgvin Óskar Sigurjónsson tók við fundarstjórn.
Velferðarnefnd:
Ragnheiður Rafnsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd og verður formaður í stað Stefaníu Önnu Sigurjónsdóttir.
Tinna Rut Sigurðardóttir verður varamaður í stað Ragnheiðar.
Fræðslu- og frístundanefnd:
Steindór Sigurjónsson verður aðalmaður í stað Andra Ágústssonar, Ingólfur Guðni Einarsson verður varamaður í stað Steindórs.
Forseti bar breytingu á nefndum upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.