Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

320. fundur
7. mars 2024 kl. 15:00 - 16:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir 2. varamaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Þröstur Jóhannsson 3. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1117
Málsnúmer 2402008F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 8. lið, aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag. Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir 7. lið, útboð á skólaakstri 2024-2028. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1118
Málsnúmer 2402011F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 2. lið, leikskólinn, starfshópur um leikskólamál.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið, leikskólinn, starfshópur um leikskólamál, undir 9. lið, uppbygging innviða á Jökulsárlóni og 10. lið, Hreindýraeftirlit. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Einnig til andsvars Sigurjón Andrésson. Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.

Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir 1. lið, Mánagarður og 9. lið, uppbygging innviða á Jökulsárlóni, þar sem hún vakti athygli á opnum fundi um framtíðaruppbyggingu á Jökulsárlóni sem verður haldinn í Nýheimum næsta miðvikudag 13.mars kl 13:00. Gestur mfundarins er Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, orku og loftslagsráðherra.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1119
Málsnúmer 2402015F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1120
Málsnúmer 2402021F
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir 3. lið, samgönguhátíð í tilefni 50 ára afmælis Skeiðarárbrúar, Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls undir 3. lið og minnti á 100 ára afmæli flugsögu í sumar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 319
Málsnúmer 2402004F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 7. lið, skipurit 2024, til andsvars Sigurjón Andrésson.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Yfirlýsing bæjarstjórnar vegna kjaraviðræðna
Málsnúmer 202403024
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls og bar upp yfirlýsingu bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir að leggja sitt af mörkum til að liðka fyrir sátt á vinnumarkaði og gerir sér grein fyrir því að barátta við verðbólgu og fyrir lægri vöxtum er verkefni sem krefst samvinnu á milli allra aðila.
Bæjarstjórn samþykkir að fella niður gjaldtöku fyrir skólamáltíðir í grunnskólum sveitarfélagsins á þeim forsendum sem lagt hefur verið upp með og kynnt fyrir samningsaðilum. Einnig samþykkir bæjarstjórn að endurskoða gjaldskrár sveitarfélagsins á sama grunni.
Þá kallar bæjarstjórn eftir skýrri aðgerðaráætlun og tryggingu frá ríkinu fyrir því að þessar aðgerðir verði ekki til þess fallnar í framtíðinni að velta enn frekar verkefnum yfir á sveitarfélögin. Nauðsynlegt er að ríki og sveitarfélög nái sátt um tekjustofnaskiptingu þeirra á milli og skapi með því traust og fyrirsjáanleika í fjármálum sveitarfélaga eins og hægt er.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls.
Forseti las upp bókun/ yfirlýsingu bæjarstjórnar og bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
7.
Krafa fjármála- og efnahagsráðuneytisins um þjóðlendur á svæði 12
Málsnúmer 202402092
Bæjarstjóri tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Í breytingu á lögum nr. 34/2020, lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta nr. 58/1998, er heimild sem tekur til landsvæða utan strandlengju meginlandsins. Málsmeðferðarsvæði Óbyggðanefndar miðast þannig við stórstraumsfjöruborð meginlands Íslands og þá ganga íslensk lög og lagaframkvæmd út frá því að netlög séu hluti eignarlands fasteigna að sjó, þ.e. 115. m. út frá stórstraumsfjöruborði. Þá á þetta aðeins við um landsvæði utan strandlengju meginlandsins og nær því ekki til eyja og skerja sem nú eru hluti af meginlandi Íslands. Landfræðileg afmörkun stórstraumsfjöruborðs og netlaga er hvorki þekkt né tiltæk í landfræðigagnagrunnum. Nauðsynlegt er að ráðuneytið tryggi að landfræðileg afmörkun málsmeðferðarsvæðis sé þekkt og krafa ríkisins beinist að eyjum og skerjum innan þess svæðis.

Auk framangreinds hvetur bæjarstjórn Hornafjarðar fjármála- og efnahagsráðuneytið til að afturkalla og í kjölfarið gera kerfisbundna endurskoðun á kröfu ríkisins vegna eyja og skerja á svæði 12 í ljósi þess að kröfugerðin er bæði óskýr og nær út fyrir skilgreint málsmeðferðarsvæði."

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti las bókunina og bar hana upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Málstefna
Málsnúmer 202309020
Samkvæmt 130. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn setja sér málstefnu. Málstefna er mikilvægur hlekkur í stefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar til þess að varðveita íslensku sem aðal tungumál í allri starfsemi og útgáfu á efni sveitarfélagsins og til að vera stofnunum sveitarfélagsins fyrirmynd að því að móta sér tungumálastefnu.Málstefna þessi gildir á öllum sviðum og starfsstöðvum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Forseti bar nýja málstefnu sveitarfélagsins upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
9.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 202402017
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka II við fjárhagsáætlun 2024. Aukafjárveiting vegna breytinga á rekstrarleigu bifreiða hjá stuðnings- og virkniþjónustu, fjárveiting vegna ráðningar verkefnastjóra í tímabundið starf til eins árs á leikskólann Sjónarhól, hækkun heilsueflingarstyrks fyrir starfsfólk sveitarfélagsins og frír aðgangur að sundlaug Hafnar fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Viðaukinn felur ekki í sér viðbótarlántöku þar sem útgjaldaaukningu er mætt með lækkun á handbæru fé.
Forseti bar viðauka II upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
10.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202401050
Gjaldskrá um útleigu á húsnæði og muna í eigu sveitarfélagsins lögð fram til samþykktar. Þær breytingar sem gerðar eru á gjaldskránni eru að samræmis er gætt í útleigu á félagsheimilum. Einnig er skerpt á ákvæðum um leigu á íþróttahúsum.
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls.
Forseti bar gjaldskrá um útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
11.
Jafnréttisáætlun 2022 - 2026
Málsnúmer 202402033
Samkvæmt jafnréttisáætlun sveitarfélagsins skal bæjarráð taka saman hlutfall kynja í nefndum, ráðum og stjórnum og í framhaldinu skal bæjarstjórn leiðrétta kynjahlutfallið ef það uppfyllir ekki skilyrði 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Niðurstaða bæjarráðs er að hlutfall kynja í nefndum og ráðum sveitarfélagsins uppfylli 28. grein um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Bæjarstjórn fagnar því að kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins uppfylli 28. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og kemur því ekki til leiðréttingar á hlutfalli kynjanna.
12.
Seljavellir 2A - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202402109
Reynir Ásgeirsson óskar eftir óverulegri breytingu á aðalskipulagi í landi Seljavalla 2A. Óskað er eftir að færa fjölda gistirýma frá 25 rýmum upp í 30 gistirými í landi Seljavalla 2A.
Forseti bar upp þá tillögu að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi og að fjöldi gistirýma verði 30 í stað 25 í landi Seljavalla 2A skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Málsnúmer 202302008
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hagahverfi sem hefur vinnuheitið ÍB5, sem er staðsett við hlið tjaldsvæðis. Megintilgangur með deiliskipulaginu er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið aðalskipulags Hornafjarðar. Með uppbyggingunni er verið að koma til móts við íbúðaskort í þéttbýlinu á Höfn þar sem íbúum hefur fjölgað hratt undanfarin ár.Á svæðinu er gert ráð fyrir sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum ásamt fjölbýlishúsum á 2-3 hæðum auk kjallara. Alls er gert ráð fyrir um 200 íbúðareiningum á svæðinu.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls og Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls. Til andsvars Sigurjón Andrésson og Hjördís Edda Olgeirsdóttir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vísa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hagahverfi í auglýsingaferli skv. 41. gr. skipulagslaga með áorðnum breytingum umhverfis- og skipulagsnefndar 6. mars.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðu.
14.
Breiðabólstaður 1 - Deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 202401061
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Breiðabólstaðartorfu þar sem nánar er skýrt tákn fyrir óstaðsetta byggingareiti sem heimilar minniháttar uppbyggingu innan viðkomandi lóða án staðsetts byggingarreits. Eftir breytingu verður skýringin þessi; byggingarreitur - staðsetning ekki bindandi, heimild til viðbyggingar eða lítillar nýbyggingar innan skilgreindra stærðarmarka á lóðinni, skv. c-lið, 5.5.3. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulaginu, Breiðabólstaður 1 og að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga varðandi skýringu tákns fyrir óstaðsettan byggingarreit þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
15.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn er endurauglýst þar sem ekki náðist að ljúka ferli deiliskipulagsins í samræmi við skipulagslög. Með deiliskipulaginu er verið að skapa grundvöll til frekari uppbyggingar á skóla- og íþróttasvæði Hafnar til þess að mynda sterkari miðkjarna á svæðinu. Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga, miðbæjarskipulags, knattleikjahúss við Víkurbraut og íbúðarsvæðis á Leirum. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir. Einnig er lögð fram húsakönnun skipulagssvæðisins.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa deiliskipulagið að nýju skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða breytingu á skipulagsmörkum aðliggjandi deiliskipulagssvæða, miðbæjarskipulags, íbúðarsvæðis á Leirunni og knattleikjahúss við Víkurbraut.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Málsnúmer 202310161
Tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis við innkomu á Höfn, austan við Hafnarbraut.Markmið með deiliskipulaginu er að móta nýtt svæði fyrir stærri verslanir og aðra rýmisfreka verslunar- og þjónustustarfsemi á Höfn. Íbúafjölgun og vaxandi fjöldi ferðamanna hefur skapað forsendur fyrir meiri verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir þremur lóðum undir verslunar- og þjónustustarfsemi á skipulagssvæðinu. Lagður er grunnur að vönduðum frágangi byggðar og umhverfis innan skipulagssvæðisins.
Sigurjón Andrésson tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að tillaga að nýju deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
17.
Ósk um framkvæmdaleyfi úr Fjarðará
Málsnúmer 202403006
Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr Fjarðará í Lóni [E16 og E17] vegna framkvæmdarinnar „Hringvegur 1 um Hornafjörð.“ Náman er tilgreind í "MÁU" mat á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdina, (náma 8,). Sótt er um leyfi fyrir efnistöku á tveimur stöðum, norðan og sunnan þjóðvegar samtals 49.900 m3. Efnistaka mun fara fram í samræmi við leyfi Fiskistofu og ábendingar Skipulagsstofnunar. Með þessari efnistöku er ætlunin, m.a. að hlífa námunni Friðsæld [E28] eins og kostur er, en Skipulagsstofnun benti á það atriði á sínum tíma í MÁU og í meðfylgjandi áliti, þó svo að leyfi hafi verið gefið fyrir talsverðri efnistöku úr námunni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr Fjarðará í Lóni skv. 15. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
18.
Skipulag - Stækkun á lóð Hótel Jökull
Málsnúmer 202312091
Umsókn eigenda Hótels Jökuls um stækkun á lóð við hótelið skv. uppdrætti.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stækkun lóðarinnar samkvæmt umsókn á svæði 1 og hafni stækkun á svæði 2 og 3 og að settar verði kvaðir um aðkomu að hótelinu á svæði 2.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
Viðhengi
stækkun.PNG
19.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Málsnúmer 202402141
Umsókn Fallastakkanafar ehf. um lóð að Sandbakkavegi 5.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Málsnúmer 202402139
Umsókn Fallastakkanafar ehf. um lóð að Silfurbraut 44.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
21.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Málsnúmer 202402138
Umsókn Fallastakkanafar ehf. um lóð að Silfurbraut 46.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.