Bæjarstjórn Hornafjarðar
326. fundur
12. september 2024
kl.
15:00
-
15:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
2. varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1139
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1140
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 1: Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar; lið númer 4 í fundargerð nefndarinnar: Þrykkjan 2024-2025
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1141
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 2: Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefnd númer 66 og þakkaði Eyrúnu Helgu Ævarsdóttur fyrir sín störf.Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið númer 10: Samgönguhátíð og undir lið númer 4: Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 17.Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 11: Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg.Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer lið númer 2: Atvinnu- og meningarmálanefnd númer 66, Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs liður númer 4. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1142
Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 2: Fundargerð Hafnarstjórnar Hornafjarðar númer 264: mál númer 3: Dýpkun á Grynnslum 2025 og mál númer 4: DHI AS Rannsóknarvinna og undir lið númer 3: Umf.Sindri - Samningur 2024.Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir lið númer 8: Framkvæmd - Leikvöllur Leirusvæðis.Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer 6: Humarhátíð 2024. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók einnig til máls undir lið númer 6: Humarhátíð 2024 og undir lið númer 4: Forvarnarstyrkur frá afkomendum Rafns Eiríkssonar og Ástu Karlsdóttur.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Landeignaskrá - Hnappavellir, landskipti
Óskað er samþykkis sveitarfélagsins vegna skiptingar á jörðinni Hnappavellir í Öræfum, en eigendur jarðarinnar sem er í óskiptri sameign 4 lögbýla eru að skipta með sér hluta hins óskipta lands (öllu ræktuðu landi jarðarinnar). Einnig er verið að staðfesta merkjalínur á milli aðliggjandi jarða Kvískers að austan og Fagurhólsmýrar að vestan. Í landskiptum þessum er ekki verið að stofna neinar nýjar lóðir, hlunnindi verða áfram í óskiptri sameign.Umhverfis- og skipulagsnefnd taldi að stofnun lóðanna hefði ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, samanber 6. grein jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptagerðina enda samræmist hún skipulagsáætlun.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Breiðabólstaðatorfa, fjarskiptalóð - Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Breiðabólstaðatorfu þar sem bætt er við nýrri lóð fyrir fjarskiptamastur og tilheyrandi tæknibúnað. Allt að 15 metra hátt fjarskiptamastur verður heimilað innan hennar ásamt smáhýsi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi Breiðabólsstaðatorfu skv. 2. mgr. 43. grein skipulagslaga númer 123/2010. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu samkvæmt 44. grein skipulagslaga þar sem leyfi allra landeiganda liggur fyrir.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
7.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Breyting Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis við Hvalvörðugilslæk var auglýst í Lögbirtingablaðinu, skipulagsgátt mál nr. 626/2024 og á heimasíðu sveitarfélagsins frá 11. júlí til 30. ágúst 2024. Samhliða var auglýst deiliskipulag fyrir svæðið. Umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands og Minjastofnun Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi samkvæmt 32. grein skipulagslaga.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
Samþykkt samhljóma með sjö atkvæðum.
8.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Lögð fram tillaga eftir auglýsingu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7. Samhliða eru lagðar fram breytingar á skipulagsmörkum aðliggjandi svæða: Deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið við Krossey frá 2014. Deiliskipulag við Víkurbraut, Höfn-Knattleikjahús frá 2008. Deiliskipulag Hafnarvíkur-Heppa-Höfn frá 2012. Tillögurnar voru auglýstar frá 22. maí 2024 með athugasemdarfresti til 3. júlí 2024. Umsagnir bárust frá RARIK og Minjastofnun Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7 með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu. Einnig leggur forseti til að samþykktar verði breytingar að skipulagsmörkum aðliggjandi svæða: Deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið við Krossey, deiliskipulag við Víkurbraut, Höfn-Knattleikjahús og deiliskipulag Hafnarvíkur-Heppa-Höfn samkvæmt. 3. málsgrein. 41. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Sveitarfélögum ber að setja sér reglur um sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga með síðari breytingum. Núverandi reglur sveitarfélagsins voru samþykktar í lok árs 2016 þegar lögin voru samþykkt og hafa ekki verið endurskoðaðar síðan að því undanskildu að tekju- og eignamörk eru uppfærð um hver áramót.Nú er lögð fram tillaga að nýjum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem þær eru aðlagaðar að skipuriti og verkferlum á velferðarsviði, viðmið og ákvæði þeirra eru samræmd því sem tíðkast í öðrum sveitarfélögum og innleitt samræmt mat á félagslegum aðstæðum umsækjanda.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki tillöguna og samþykki reglur um sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2024-2025
Gjaldskrár sem tilheyra skólum á fræðslu- og frístundasviði hækka frá og með 1. ágúst ár hvert.Hækkun vísitölu framfærslukostnaðar og vísitölu neysluverðs var 5,9% síðastliðið ár en í samræmi við ákvörðun bæjarráðs frá 14. maí síðastliðnum um að Sveitarfélagið Hornafjörður stilli hækkunum á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum og fólki í viðkvæmri stöðu í hóf leggur fræðslu- og frístundanefnd til að gjaldskrár skólanna verði hækkaðar um 3,5% frá og með 1. ágúst. Gjaldskrá lögð fram til staðfestingar.Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir þessum lið.
Forseti leggur til að bæjarstjórn staðfesti hækkun á gjaldskrá um 3,5%.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerir grein fyrir viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2024. Viðaukinn lagður fram til samþykkis vegna óskar um aukafjárveitingu vegna námskeiðshalds fyrir forstöðumenn og stjórnendur. Viðaukinn hljóðar upp á 4,6 milljónir og er mætt með hækkun á skammtímalánum.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki viðauka 6 og ber hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerir grein fyrir viðauka 7 við fjárhagsáætlun 2024. Viðaukinn lagður fram til samþykkis vegna óskar um aukafjárveitingu til kaupa á loftpressu fyrir Slökkvistöð. Viðaukinn hljóðar upp á 844.000 krónur og er mætt með hækkun á skammtímalánum.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki viðauka 7 og ber hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2022-2026
Sigurjón Andrésson vék af fundi undir þessum lið.Í 5. grein ráðningarsamnings sveitarfélagsins við bæjarstjóra segir: Bæjarsjóður greiðir 50% af húsaleigu bæjarstjóra í 24 mánuði frá því hann hefur störf.Óskar bæjarstjóri eftir því að framlengja þetta ákvæði út ráðningarsamning, til 2026.Gert er ráð fyrir þessum greiðslum í áætlunum ársins og tekið verður tillit til þessa í áætlun næsta árs.Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir þessum lið.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki að halda áfram að greiða 50% af húsaleigu bæjarstjóra út kjörtímabilið.
Samþykkt með fimm atkvæðum. Björgvin Óskar Sigurjónsson og Gunnhildur Imsland sátu hjá.
Samþykkt með fimm atkvæðum. Björgvin Óskar Sigurjónsson og Gunnhildur Imsland sátu hjá.