Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

333. fundur
14. mars 2025 kl. 15:00 - 15:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Þröstur Jóhannsson 3. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 332
Málsnúmer 2501012F
Mál tekið fyrir á 4:35 mínútu í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1163
Málsnúmer 2502009F
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tekur til máls undir lið númer 8: Hraðahindrun Kirkjubraut 5. Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 4: Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg.Mál tekið fyrir á mínútu 4:55 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1164
Málsnúmer 2502017F
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 5: Opnunartími sundlaugarinnar. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 13: Opinber heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar, og undir lið númer 16: Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands. Sigurjón Andrésson til andsvars. Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 13: Opinber heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar. Mál tekið fyrir á mínútu 11:10 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1165
Málsnúmer 2502021F
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer: 1 Atvinnu- og menningarmálanefnd - 73: lið númer 3: Humarhátíð 2025, og einnig undur lið númer 4: Menningarhátíð sveitarfélagsins. Mál tekið fyrir á mínútu 19:55 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1166
Málsnúmer 2503005F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 9: Íþróttahús - hönnun. Eyrún Fríða Árnadóttir til andsvars. Mál tekið fyrir á mínútu 23:30 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
6.
Félagslegt leiguhúsnæði - 2025
Málsnúmer 202502023
Velferðarnefnd skal taka til umfjöllunar í upphafi hvers árs hækkun á tekju- og eignarmörkum vegna umsókna um félagslegt leiguhúsnæði.Velferðarnefnd lagði til að tekju og eignarmörk yrðu hækkuð samkvæmt launavísitölu í samræmi við það sem gert hefur verið síðustu ár.Eftir vísitöluhækkun verða tekjumörk einstaklinga 6.949.741 kr. á ári. Auk þess lagði velferðarnefnd til að tekjumörk hjóna yrðu hækkuð umfram vísitöluhækkun upp í 8.930.417 kr. til að leiðrétta hlutfall milli einstaklinga og hjóna. Við tekjumörk bætast svo 1.368.269 kr. við vegna hvers barns undir 20 ára aldri og/eða 728.631 kr. vegna barns sem er í umgengni við foreldri.Eignarmörk verða 8.256.144 kr.Mál tekið fyrir á mínútu 30:05 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti hækkun á tekju- og eignarmörkum.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Málsnúmer 202501087
Viðauki 2, sem samþykktur var í bæjarstjórn 13.02.2025, er aftur lagður fram leiðréttur.Mál tekið fyrir á mínútu 31:50 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti leiðréttann viðauka 2.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Umsókn um lóð fyrir hleðslustöð - ON
Málsnúmer 202502059
ON sækir um lóð við Óslandsveg við höfnina fyrir hleðslustöð. Deiliskipulag er til fyrir svæðið og er lóðin skipulögð sem dvalarsvæði/opið grænt svæði.Mál tekið fyrir á mínútu 32:25 í upptöku.
Forseti lagði til að málinu yrði frestað þar til samþykki hafnarstjórnar liggur fyrir.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra - endurskoðun
Málsnúmer 202501100
Tveggja vikna seinkun hefur orðið á því að nýju deildirnar á leikskólanum verði tilbúnar og er nú stefnt að miðjum apríl. Fljótlega eftir það og í síðasta lagi næsta haust ættu biðlistar á leikskólann að vera tæmdir svo framarlega sem mönnun á leikskólanum gengur vel. Því er eðlilegt að endurskoða reglur um dagforeldra og niðurgreiðslur til þeirra.Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að halda áfram reglum um niðurgreiðslur til dagforeldra en fella út grein 11 frá og með 1. ágúst n.k.Mál tekið fyrir á mínútu 33:05 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti niðurfellingu á 11. grein reglnanna frá og með 1. ágúst 2025.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Lántaka 2025
Málsnúmer 202502079
Bæjarstjóri óskar eftir heimild bæjarstjórnar til þess að hefja lánaumsókn.Sigurjón Andrésson tók til máls og fór yfir ástæður lántökunnar. Mál tekið fyrir á mínútu 34:20 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili bæjarstjóra að hefja lánsumsókn í samræmi við fjárhagsáætlun.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Skipurit 2024
Málsnúmer 202401128
Á fundi bæjarstjórnar 08.02.2024 var samþykkt að Bartek Andreasson Kass tæki við starfi sviðsstjóra mannvirkjasviðs til eins árs. Óskað er eftir framlengingu á ráðningu hans til eins árs.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.Mál tekið fyrir á mínútu 36:50 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlengingu á ráðningu sviðsstjóra mannvirkjasviðs til eins árs.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 202407038
Fulltrúi K-lista Guðrún Stefanía Vopnfjörð óskar eftir að fara í leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi eftir 14.03.2025. Lagt er til eftirfarandi breytingar á nefndarmönnum K-lista á meðan leyfi stendur.BæjarstjórnElías Tjörvi Halldórsson kemur inn sem bæjarfulltrúi fyrir K-lista í stað Guðrúnar Stefaníu Vopnfjörð IngólfsdótturSveinbjörg Jónsdóttir verður 2. varamaður í bæjarstjórn fyrir K-listaElías Tjörvi Halldórsson verður 1. varaforseti bæjarstjórnarBæjarráðElías Tjörvi Halldórsson verður 1. varamaður K-lista í bæjarráðiUmhverfis- og skipulagsnefndAnna Ragnarsdóttir Pedersen verður 2. varamaður K-listaFræðslu- og frístundarnefndElías Tjörvi Halldórsson verður 2. varamaður K-listaMál tekið fyrir á mínútu 40:45 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á nefndarmönnum K-lista á meðan leyfi Guðrúnar Stefaníu Vopnfjörð stendur.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 202407038
Fulltrúi D-lista Björgvin Hlíðar Erlendsson hefur ákveðið að stíga til hliðar í nefndarstörfum og er því lagt til eftirfarandi breytingar á nefndarmönnum D-lista:Velferðarnefnd:Ingólfur Guðni Einarsson tekur við sæti D-lista. Steindór Sigurjónsson verður 1. varamaður.Bæjarstjórn:Tinna Rut Sigurðardóttir tekur við sæti 1. varamanns, Þröstur Jóhannsson tekur við sæti 2. varamanns og Steindór Sigurjónsson tekur við sæti 3. varamanns D-lista.Mál tekið fyrir á mínútu 42:35 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á nefndarmönnum D-lista.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 202407038
Óskað var eftir samþykki bæjarstjórnar fyrir því að Björgvin Erlendsson víki úr stýrihóp um nýtt íþróttahús og að Hjördís Edda Olgeirsdóttir taki hans stað. Málið var tekið fyrir í tölvupóst og samþykkt þar með sex atkvæðum.Mál tekið fyrir á mínútu 43:35 í upptöku.
Lagt fram til kynningar.