Bæjarstjórn Hornafjarðar
337. fundur
12. júní 2025
kl.
15:00
-
16:00
Gamla búð
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
2. varamaður
Gunnar Ásgeirsson
1. varamaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varaforseti
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 336
Lagt fram til umræðu og kynningar.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1175
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til undir lið númer 11: Samstarfsbeiðni - Graffíll listahátíð unga fólksins.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1176
Gunnhildur Imsland tók til máls undir lið númer 6: Styrkir til þátttöku ungmenna í íþróttamótum.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1177
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 1: Atvinnu- og menningarmálanefnd - 76, lið númer 5: Menningarmiðstöð.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1178
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið númer 3: Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis og undir lið númer 4: Staða flugs til Hornafjarðar. Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 2: Umhverfis- og skipulagsnefnd - 100, lið númer 7: Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lagt fram til umræðu og kynningar.
6.
Kosning í nefndir
K-framboðið hefur óskað eftir að Hannes Ingi Jónsson taki sæti varamanns í hafnarstjórn í stað Karls Heimis Einarssonar.
Málið var tekið fyrir og samþykkt í tölvupósti. Lagt fram til kynningar.
7.
Kosning í nefndir
Fulltrúi K-lista Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tekur aftur til starfa sem bæjarfulltrúi eftir 12.06.2025. Lagt er til eftirfarandi breytingar á nefndarmönnum K-lista.Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tekur aftur sæti bæjarfulltrúa og 1. varaforseta í bæjarstjórn fyrir K- lista, Elías Tjörvi Halldórsson tekur sæti 1. varamanns í bæjarstjórn. Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir verður 1. varamaður K- lista í bæjarráði, 2. varamaður K- lista í umhverfis- og skipulagsnefnd og 2. varamaður K- lista í fræðslu - og frístundanefnd.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á nefndarmönnum K-lista.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Júllatún 8 og 10, parhús
Stálgrindarhús óskar eftir að fá byggingarleyfi. Stálgrindarhús hefur fengið samþykki nágranna í Júllatúni 17, 19 og 21 sem liggja fyrir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands- HSSA þar sem heimilað er að byggja parhús á lóðum Júllatúni 8 og 10 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn um byggingarheimild - Hagi 2, þrjú gistihús
Rut Guðmundsdóttir sækir um heimild til að setja niður 3 gistihús að Haga 2. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið inn á landbúnaðarsvæði en um það segir m.a. "Ferðaþjónusta, svo sem gisting og greiðasala, innan tiltekinna stærðarmarka meðfram búskap, skal teljast hluti landbúnaðar þar sem er föst búseta. Heimilt er að selja gistiþjónustu í flokki 1 og 2 sbr. reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Heimilt er að nýta núverandi byggingar með breytingum og/eða takmarkaðri viðbótaruppbyggingu fyrir gistingu í allt að 16 herbergjum, fyrir 32 gesti." Grenndarkyning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita byggingarleyfi fyrir þremur gistihúsum í landi Haga 2, án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
10.
Hoffell - Baðstaður við Miðfell
Fyrirhugað er að færa baðaðstöðu í landi Miðfells. Framkvæmdin hefur verið grenndarkynnt, engar athugasemdir bárust og Minjastofnun gerði ekki athugasemd.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita Bláa lóninu Ísland ehf. byggingarheimild fyrir nýrri baðaðstöðu við Miðfellsbæinn í Hoffelli án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Námur í Laxá - fyrirspurn
Óskað er eftir leyfi til þess að taka efni úr neðsta hluta Laxár í Nesjum og gerir ráð fyrir að á líftíma malarnámsins fari heildarmagnið yfir 20 þúsund rúmmetra.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita LOGOS slf. fyrir hönd landeigenda framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga fyrir efnistöku að hámarki 10 þús. rúmmetra. Náman er skilgreind í aðalskipulagi sem náma E 81 með hámarks efnismagn 10.000 m3.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um byggingarheimild, bílskúrsþak Silfurbraut 19-29
Húsfélag Silfurbrautar 19-29 sækir um leyfi til að byggja risþak ofan á þak ofan á bílageymslu, sem er steypt plata, til þess að laga leka. Erindið var grenndarkynnt húseigendum á Silfurbraut 31 og 32. Engar umsagnir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita byggingarleyfi enda sé framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
13.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 60C
Yrkir eignir ehf sækja um lóð að Hafnarbraut 60C.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðaúthlutunina.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um lóð fyrir hleðslustöð - ON
ON leggur fyrir drög að deiliskipulagi fyrir nýja hleðslustöð við smábátahöfnina við Óslandsveg.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að auglýsa tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um framkvæmdarleyfi -
Míla leggur inn umsókn fyrir framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í sumar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í sumar í samræmi við 15. gr. skipulagslaga þegar umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Framkvæmdaleyfi - Hringtorg Hringvegur
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til byggingar á hringtorgi á hringveginum í stað tveggja T-gatnamóta. Hringtorgið verður staðsett þar sem núverandi afleggjari að Hafnarnesi er, í fyrirhugaðri veglínu hringvegarins. Þá þarf að aðlaga legu Hafnarvegar að hringtorginu að norðanverðu og lítilsháttar að sunnanverðu. Efni verður sótt í þær námur sem tilgreindar voru í upphaflegu umhverfismati.Fyrirhuguð framkvæmd, eins og henni er lýst í fylgigögnum framkvæmdaleyfisumsóknar, er í samræmi við aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, matsskyldufyrirspurn Vegagerðarinnar (mars 2025) og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 23. apríl 2025.Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi, í samræmi við 15. gr. skipulagslaga, fyrir byggingu hringtorgs á Hringveginum við afleggjara að Höfn. Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Breytingar á stjórnskipulagi umhverfis- og skipulagssviðs, og mannvirkjasviðs
Starfslýsing sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs lögð fram ásamt tillögu að breytingu á skipuriti umhverfis- og skipulagssviðs og mannvirkjasviðs þar sem lagt er til að sviðin tvö verði sameinuð sem umhverfis- og framkvæmdasvið með þremur deildarstjórum. Óskað er eftir að bæjarstjórn samþykki framlagða tillögu að breytingu á skipuriti umhverfis- og skipulagssviðs og mannvirkjasviðs og að auglýst verði eftir sviðsstjóra fyrir nýtt svið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að nýju skipuriti umhverfis- og skipulagssviðs og mannvirkjasviðs og að auglýst verði staða sviðsstjóra á nýju sviði í samræmi við framlagða starfslýsingu.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
18.
Reglur um stuðningsþjónustu
Lögð eru fram tillaga af nýjum reglum um stuðningsþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar taka við núverandi reglum um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vinnsla reglanna er partur af úrbótaáætlun á reglum sem snúa að þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti nýjar reglur um stuðningsþjónustu.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Reglur um stoðþjónustu
Lögð eru fram tillaga af nýjum reglum um stoðþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar taka við núverandi reglum um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vinnsla reglanna er partur af úrbótaáætlun á reglum sem snúa að þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu.Gunnhildur Imsland tók til máls.Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti nýjar reglur um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Gunnar Ásgeirsson og Gunnhildur Imsland sátu hjá.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Gunnar Ásgeirsson og Gunnhildur Imsland sátu hjá.
20.
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð
Lögð fram tillaga um uppfærslu á reglum um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði. Breytingar snúa að því að uppfæra grunnfjárhæð í samræmi við það sem ákveðið var um áramót, kveða nánar á um hvenær skila beri inn umsóknum, breyting sem felur í sér að umsóknir fari fram í gegnum samræmda gátt á www.island.is og aðrar smávægilegri breytingar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Tillaga að uppfærðum kjörum nefndarmanna lögð fram.Við síðustu uppfærslu samþykktarinnar í desember 2024 misfórst að uppfæra kjör fyrir fulltrúa í nefndum og ráðum. Þar sem núverandi samþykkt er ekki tengd launavísitölu eins og áður var myndu laun nefndarmanna lækka án þessarar breytingar sem lögð er til.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti uppfærða samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 5 vegna tveggja upphækkaðra gangbrauta á Fákaleiru lagður fram.Viðauka er mætt með handbæru fé að fjárhæð 5 millj. Handbært fé lækkar úr 23 millj. kr. í 18 millj. kr.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka 5 og bar hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Til umsagnar mál nr.351- Frumvarp til laga um veiðigjald
Umsögn sveitarfélagsins um fyrirhugaða hækkun veiðigjalda lögð fram.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
24.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2025
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn verði í sumarleyfi í júlí og lagði til að bæjarstjórn veitti bæjarráði Hornafjarðar fullt umboð til afgreiðslu mála frá 16. júní næstkomandi og út júlí eða þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður þá 14. ágúst 2025 og bæjarráð fundar á tveggja vikna fresti frá 16. júní til 12. ágúst næstkomandi.
Forseti bar tillögu um sumarleyfi bæjarstjórnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillögu um að bæjarstjórn veitti bæjarráði Hornafjarðar fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillögu um að bæjarstjórn veitti bæjarráði Hornafjarðar fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.