Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

338. fundur
14. ágúst 2025 kl. 15:00 - 15:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 1. varaforseti
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 337
Málsnúmer 2505021F
Mál tekið fyrir á mínútu 2:00 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1179
Málsnúmer 2506010F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 6 - Staða flugs til Hornafjarðar. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir sama lið og lagði til að bókað yrði um málið.Mál tekið fyrir á mínútu 2:20 í upptöku.
Forseti lagði fram eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn Hornafjarðar hvetur Vegagerðina og innviðaráðuneytið til að endurskoða tíðni flugferða og nýta það svigrúm sem er innan samningsins með það að markmiði að fjölga ferðum. Tíðnin skiptir lykilmáli upp á þjónustustigið svo að það sé raunhæf leið til að sækja þjónustu innan dagsins, ekki síst heilbrigðisþjónustu.
Bókunin borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Lagt fram til umræðu og kynningar.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1180
Málsnúmer 2506015F
Mál tekið fyrir á mínútu 14:20 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1181
Málsnúmer 2507001F
Mál tekið fyrir á mínútu 14:40 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1182
Málsnúmer 2507009F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið númer 9 - Ráðning sviðsstjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 12 - Hofgarður útleiga kennslurýma Fjallaskóli Íslands.Mál tekið fyrir á mínútu 15:00 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1183
Málsnúmer 2507011F
Mál tekið fyrir á mínútu 19:00 í upptöku.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
7.
Kosning í nefndir
Málsnúmer 202407038
Fulltrúi B- lista Björgvin Óskar Sigurjónsson fer í leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi frá 01.08.2025 til 30.11.2025. Breytingartillaga á bæjarfulltrúum var tekin fyrir í bæjarráði sem fór með umboð bæjarstjórnar þann 12.08.2025. Fyrirfórst að tilnefna 2. varaforseta bæjarstjórnar og er því lagt til að Gunnar Ásgeirsson taki sæti 2. varaforseta bæjarstjórnar á meðan leyfi stendur.Mál tekið fyrir á mínútu 19:20 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á nefndarmönnum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.