Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

343. fundur
18. nóvember 2025 kl. 15:00 - 15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2026 og þriggja ára áætlun til 2029
Málsnúmer 202508013
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar er lögð hér fram til fyrri umræðu. Skv. áætlun eru heildartekjur A- og B-hluta áætlaðar 4.722 m.kr. árið 2026 (sem er aukning um 11,3% frá útkomuspá 2025).Rekstrargjöld hækka í 4.036 m.kr. sem er aukning upp á 11,5% og gert ráð fyrir rekstrarniðurstaða fyrir A- og B- hluta verði jákvæð um 180 m.kr.Helstu forsendur fjárhagsáætlunar 2026 eru eftirfarandi:Skv. HMS mun fasteignamat á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu hækka um 10% milli 2025 og 2026. Til að milda áhrif á heimili og einstaklinga er lagt til að fasteignaskattsprósentan í A flokki lækki úr 0,37% í 0,33%, eða um 10%. Fasteignaskattsprósenta í B og C flokki helst óbreytt. Gjaldskrá sorphirðu mun taka breytingum í samræmi við lög um málaflokkinn. Aðrir liðir álagningargjalda haldast óbreyttir á milli ára. Bæjarstjóri gerir nánari grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.Sigurjón Andrésson til andsvars.Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars.Eyrún Fríða Árnadóttir til andsvars.
Forseti lagði til að bæjarstjórn vísi fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun til ársins 2029 til síðari umræðu bæjarstjórnar. Samþykkt með sjö atkvæðum.