Fara í efni

Fjölmenningarráð

11. fundur
13. júní 2023 kl. 16:15 - 17:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Nikolina Tintor 1. varamaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir embættismaður
Anna Birna Elvarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202110002
Fimmtudaginn 4. maí síðastliðinn, flutti starfsmaður ráðs stutta kynningu fyrir bæjarráð um fjölmenningarráð og fjölmenningu í Sveitarfélaginu almennt. Kynningin vakti mikla lukku og var rætt við starfmann ráðs um að senda bæjarráði tölur um fjölmennustu hópa Sveitarfélagsins ársfjórðungslega þar sem þeir taka miklum breytingum eftir mánuðum.
Fjölmenningarráð þakkar starfsmanni fyrir að kynna þessar tölur fyrir hönd ráðsins og fagnar því að bæjarráð sýni þessu áhuga og vilji skoða þessar ársfjórðungstölur.
2.
Erindisbréf fjölmenningarráðs
Málsnúmer 202104016
Fræðslunet suðurlands leitast eftir skoðun fjölmenningarráðs þegar kemur að samfélagsfræðslu fyrir íbúa Sveitarfélagsins af erlendum uppruna. Fræðslan er sérstaklega skoðuð með tilliti til þessarar námskráar: https://frae.is/wp-content/uploads/2022/01/Islenska-menning-og-samfelag_Namskrar2018-1.pdf
Fjölmenningarráð fagnar því að Fræðslunetið sýnir þessu áhuga og er tilbúið að sérsníða námskeið sem hentar nýbúum. Starfsmanni ráðs falið að skoða verkefnið frekar og athuga áhuga fólks af erlendum uppruna fyrir námskeiði sem þessu.
3.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202110002
Á síðasta fundi kom til máls að verkefnastjóri fjölmenningar kæmi til með að þýða grein sína um fjölmenningu í Sveitarfélaginu sem birtist í Eystrahorni fyrir stuttu. Ákvað verkefnastjóri þá að hanna einhvers konar upplýsingar plaggat (e. infograph) þar sem fram kæmi helstu upplýsingar og tölfræði úr greininni. Hefur þetta plaggat verið hengt víðsvegar um bæinn, en þá spyr verkefnastjóri fjölmenningarráð hvort þau telji að fleiri upplýsingar þyrftu ef til vill að koma fram.
Ákveðið hefur verið að ný grein um tölfræði fólks með erlent ríkisfang verður skrifuð þegar nýrri tölur um viðfangsefnið eru til staðar. Lagt var til að greinin verður þá skrifuð á bæði íslensku og ensku, í það minnsta samantekt á ensku sem birtist um leið og íslenska greinin. Fjölmenningarráð er ánægt með að hafa yfirlit yfir þessar tölur enda endurspegla þær samfélagið og ánægð með starfsmann ráðs og hvetja hana til að dreifa plaggatinu sem víðast.
4.
Alþjóðareldhús fjölmenning
Málsnúmer 202305115
Stefnt er á að halda alþjóðareldhús 18. ágúst næstkomandi í samstarfi við Menningarmiðstöðina. Verkefnastjóri fjölmenningar sér um verkefnið á velferðarsviði. Ákveðið var að einblína á matargerð frá Íberíuskaga í þetta skiptið, en áður hefur taílensk, filippeysk og pólsk matargerð verin tekin fyrir. Eins og er eru verkefnastjóri fjölmenningar og forstöðumaður menningarmiðstöðvarinnar að leita eftir þáttakendum, bæði einstaklingum til að elda og til þess að vera með skemmtiatriði. Verkefnastjóri fjölmenningar útbjó auglýsingu og sendi á stærstu vinnustaðina í sveitunum í kring um Höfn, enda býr þar gífurlegur fjöldi fólks af erlendum uppruna yfir sumartímann.
Viðburður sem þessi er gífurlega mikilvægur í ljósi þess hversu margir af erlendum uppruna búa hér og því fagnar fjölmenningarráð því að hann sé haldinn og hvetur aðra íbúa af erlendum uppruna til þess að hafa samband við ráðið ef þau vilja kynna menningu sína.
5.
Erindisbréf fjölmenningarráðs
Málsnúmer 202104016
Erindi barst til ráðsins varðandi móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna í skólum og hvernig mætti bæta hana.
Fjölmenningarráð vísar erindinu áfram til fræðslu- og frístundasviðs.