Fjölmenningarráð
12. fundur
23. ágúst 2023
kl.
16:15
-
17:30
Miðgarður
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Erindi til fjölmenningaráðs
Fjölmenningarráð leitaðist upplýsinga um móðurmálskennslu í Grunnskóla Hornafjarðar til fræðslu- og frístundasviðs.
Fjölmenningarráð þakkar kærlega fyrir svarið sem við fengum. Ráðið skilur vel að íslenska er sett í fyrirrúm í kennslu í skólum, enda mikilvægur þáttur þegar kemur að því að vera virkur þáttakandi í samfélaginu. Þá vill fjölmenningarráð hvetja Sveitarfélagið Hornafjörð enn fremur til að vera brautryðjendur hvað varðar móðurmál og menningu annara þjóðarhópa.Samkvæmt rannsóknum eru þeir skólar sem hafa það að markmiði að byggja brýr milli heimamenningar og skólamenningar og milli móðurmála og íslensku, stuðla að betri aðlögun nemenda og auðga skólastarfið. Fjölmenningarráð myndi gjarnan vilja, sé óskað er eftir því, að taka þátt í þeirri hugmyndavinnu.
2.
Alþjóðareldhús fjölmenning
Þann 18. ágúst síðastliðinn var alþjóðareldhúsið haldið á Hafinu. Verkefnið var samstarf verkefnastjóra fjölmenningar og menningarmiðstöðvarinnar og sömuleiðis unnu margir einstaklingar af erlendum uppruna að viðburðinum.
Fjölmenningarráð fagnar viðburðum sem þessum og vilja þakka öllum sem komu að honum, sérstaklega styrktaraðilunum. Mikilvægt er að halda viðburði sem fagna öðrum menningarheimum, enda búa hér í Sveitarfélaginu yfir 700 einstaklingar með erlent ríkisfang og enn fleiri með erlendan bakgrunn. Við hvetjum aðra menningarhópa til þess að kynna sína eigin menningu sömuleiðis.
3.
Fjölmenning
Í haust er stefnt á að koma af stað tungumálakaffinu aftur. Embættistmaður fjölmenningarráðs stendur fyrir því og leitast eftir athugasemdum til betrumbætinga hvað það varðar.
Fjölmenningarráð er ánægt með það að tungumálakaffið fari að hefja göngu sína á ný. Rætt var um útfærsluna og bent var á það að gott væri að prenta út myndir af hugtökunum og orðunum sem verða rætt.
4.
Fræðsla um fjölmenningu og menningarnæmi
Líkt og kynnt var á síðasta fundi ráðsins, stendur til með að koma af stað einhvers konar samfélagslegri fræðslu fyrir nýja íbúa af erlendum uppruna hér í Sveitarfélaginu. Verkefnastjóri fjölmenningar vinnur nú í minnisblaði sem útskýrir útfærslu og hvar mætti leita fjárhagsaðstoðar til þess að það verði að veruleika.
Verkefnastjóri fjölmenningar stefnir á að klára minnisblaðið fyrir næsta fund ráðsins í október og kynna það þar.
5.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Nýlega var jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar uppfærð og leitast velferðarnefnd eftir umsögn og athugasemdum frá fjölmenningarráði.
Fjölmenningarráð fagnar því að ný jafnréttisáætlun hafi verið gerð og gerir engar athugasemdir við hana.