Fjölmenningarráð
13. fundur
11. október 2023
kl.
16:15
-
18:00
Miðgarður
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Erindi til fjölmenningaráðs
Nýlega barst fjölmenningarráði fyrirspurn um móðurmálskennslu í Grunnskóla Hornafjarðar og leitaði ráðið í kjölfarið svara hjá fræðslu- og frístundarsviði sveitarfélagsins. Fjölmenningarráð vildi þó fræðast enn betur um móðurmálskennslu í grunnskólum og óskaði eftir fræðslu frá Móðurmál, samtökum sem bjóða upp stuðning við móðurmálskennsku í 20 tungumálum og standa fyrir fræðslu um mikilvægi þess að hafa tækifæri til þess að viðhalda sínu móðurmáli.
Fjölmenningarráð þakkar Renötu fyrir fyrirlesturinn og Þórgunni Torfadóttur, sviðstjóra fræðslu- og frístundarsviðs fyrir komuna. Umræðan sem skapaðist var virkilega áhugaverð og útfrá henni urðu til margar hugmyndir sem nefndin skipar starfsmanni ráðsins að fylgja eftir.
2.
Erindi til fjölmenningaráðs
Verkefnastjóri fjölmenningarmála hefur útbúið minnisblað fyrir tilraunaverkefni hvað varðar samfélagsfræðslu fyrir fólk af erlendum uppruna og óskar eftir athugasemdum frá fjölmenningarráði.
Fjölmenningarráð fagnar þessu erindi og er spennt að fylgjast með útkomunni og vísar málinu áfram.
3.
Erindi til fjölmenningaráðs
Farið verður yfir stöðuna á tungumálakaffinu sem á að fara af stað bráðlega eftir nokkurn tíma í dvala.
Fjölmenningarráð er ánægt með að tungumálakaffið sé að fara aftur af stað og hlakkar til að fylgjast með.
4.
Erindi til fjölmenningaráðs
Verkefnastjóri fjölmenningarmála hefur verið á vikulegum fundum með öðrum fulltrúum fjölmenningarmála í nokkrum sveitarfélögum á Suðurlandi. Kom til tals að gagnlegt og gaman væri ef fjölmenningarráðin gætu hist og skipst á hugmyndum og athugasemdum og þannig bætt vinnu sína.
Fjölmenningarráð lýst virkilega vel á þessa hugmynd og vísar starfsmanni ráðsins til að skoða málið nánar.