Fjölmenningarráð
14. fundur
10. janúar 2024
kl.
16:15
-
17:15
í Miðgarði
Nefndarmenn
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Málstefna
Bæjarráð vísaði málstefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Fjölmenningarráð harmar að hafa ekki fengið fyrr aðkomu að gerð stefnunnar og telur að hún mætti vera skýrari hvað varðar "grundvallarfærni í íslensku". Telur ráðið að orðalagið kemur í veg fyrir að erlendir íbúar sem enn hafa ekki náð tökum á Íslensku geti ekki sótt um störf á vegum sveitarfélagsins. Gott væri að hafa hlekk sem vísar beint á slóðina sem útskýrir hvað grundvallarfærni í íslensku er.
2.
Mannréttindastefna
Sérstakur stýrihópur var stofnaður fyrr á árinu og falið það verkefni að útbúa mannréttindastefnu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Stefnan er nú tilbúin og leitast eftir umsögnum og athugasemdum frá ráðum og nefndum sveitarfélagsins áður en hún verður birt.
Fjölmenningarráð fagnar gerð mannréttindastefnu en telur að mætti lesa yfir stefnuna og laga einstaka stafsetningar- og málfarsvillur.
3.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Stýrihópur um barnvænt sveitarfélag í Sveitarfélaginu Hornafirði óskar eftir umsögnum og athugasemdum um aðgerðaráætlun sína.
Fjölmenningarráð er virkilega sátt með þann part stefnunnar sem kemur að börnum af erlendum uppruna (og stefnuna í heild sinni) og hlakkar til að fylgjast með hvernig þessu verður fylgt eftir.
4.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Fyrsta tungumálakaffið í langan tíma fór fram í byrjum nóvember sl. Allt gekk vel og næsti hittingur fer fram núna í byrjun janúar.
Fjölmenningarráð er gífurlega ánægt með það að tungumálakaffið hefur hafið göngu sína á ný. Ráðið telur að viðburðir sem þessir geta hjálpað að brúa bilið milli íslendinga og fólks af erlendum uppruna enn fremur þar sem þarna er um að ræða vettvang sem er hlutlaus og óformlegur og í kjölfarið góður staður til þess að æfa sig í íslensku. Ráðið hvetur Hornfirðinga og aðra sem hafa náð góðum tökum á íslensku að mæta á viðburðina og aðstoða fólk að læra íslenskuna og hvetur fólk af erlendum uppruna til að nýta sér viðburðinn.
5.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Þann 26. janúar nk. er stefnt á að halda sameiginlegan fund með öðrum fjölmenningarráðum- og fulltrúum á Suðurlandi. Fundurinn mun fara fram í fundarsal á Hótel Vík og verður dagsferð og sömuleiðis fyrsta vettvangsferð ráðsins.
Ráðið hlakkar til að ræða fjölmenningarmál við aðra fulltrúa og nefndir og finnst mikilvægt að fá tækifæri til að geta rætt hugmyndir og málefni við einstaklinga sem sinna svipuðu starfi.
6.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Rætt var um mögulega styrki fyrir fjölmenningarmál á komandi ári.
Góðar hugmyndir um nýtingu á styrknum komu upp og hlakkar ráðið til að sjá hver útkoman verður.