Fara í efni

Fjölmenningarráð

15. fundur
28. febrúar 2024 kl. 16:15 - 17:15
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic formaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson aðalmaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir embættismaður
Anna Birna Elvarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Menningarstefna 2023
Málsnúmer 202306056
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Eyrún Helga Ævarsdóttir fylgir menningarstefnunni eftir.
Fjölmenningarráð fagnar nýrri menningarstefnu sveitarfélagsins og finnst hún vera til fyrirmyndar.
2.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Þann 26. janúar s.l. fór fram vinnustofa SASS og Kötluseturs. Verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála sótti vinnustofuna fyrir hönd fjölmenningarráðs og talar nú um það helsta sem fram fór á vinnustofunni.
Fjölmenningarráð þakkar starfsmanni ráðs fyrir kynninguna á vinnustofunni og þykir leitt að hafa ekki komist í þetta skiptið. Ráðið er ánægt að vita að stefnt er að gera vinnustofuna að árlegum viðburði og hlakkar til áframhaldandi samvinnu með sveitarfélögunum sem tóku þátt.
3.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Þann 1. mars nk. opnar fyrir skattaframtalsskil einstaklinga. Í mörgum löndum er þetta ekki vaninn og því mikilvægt að minna íbúa af erlendum uppruna á þetta og veita þeim alla þá mögulegu aðstoð sem þau kunna að þarfnast á.
Sérstakt hrós fær stéttafélagið AFL hér í bænum fyrir að bjóða félagsmönnum sínum að leita til þeirra ef þau þurfa aðstoð. Ráðið felur starfsmanni ráðs að vera vel vakandi meðan tímabilið sem skila skal skattaframtalinu stendur yfir og biðja atvinnurekendur í sveitarfélaginu að minna starfsfólk sitt á skilin og benda á hvar hægt er að nálgast upplýsingar ef þeim vantar aðstoð.
4.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur hlotið 1.000.000 kr. styrk frá SASS til þess að nýta til fjölmenningarmála með sérstaka áherslu á að brúa bilið milli dreifbýlis og þéttbýlis. Rætt var um næstu skref.
Fjölmenningarráð ræddi tilkomandi rútuferðir á menningarviðburðum í sveitarfélaginu og skipulag vegna þeirra. Samtalið gekk vel og ráðið felur starfsmanni að vinna í áframhaldandi skipulagi.