Fara í efni

Fjölmenningarráð

16. fundur
9. apríl 2024 kl. 16:15 - 17:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic formaður
Matsupha Brynjulfsson aðalmaður
Nikolina Tintor 1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Verkefnastjóri fjölmenningar óskar eftir áliti ráðs varðandi bestu leiðirnar fyrir erlenda einstkaklinga að læra íslensku.
Rætt var um ákveðna leið sem ráðið telur að best sé að fara fyrir sveitarfélagið varðandi íslenskunám hjá starfsfólki sveitarfélagsins. Verkefnastjóra fjölmenningar- og gæðamála falið að vinna í málinu.
2.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Fjölmenningarráð fékk á dögunum styrk frá SASS til að nýta til að styrkja samband milli þétt- og dreifbýlis. Ákveðið var að nýta styrkinn til rútuferða á ýmsa menningarviðburði á árinu. Skráning gekk ekki eins og við var búist og þurfti því miður á endanum að hætta við fyrstu ferðina vegna dræmrar skráningar.
Fjölmenningarráð ákvað í sameiningu að reyna að bjóða upp á samaskonar rútuferðir aftur sem fyrst þó það tókst ekki í fyrstu tilraun. Ráðið telur mikilvægt að brúa bilið milli sveita og Hafnar, sérstaklega í ljósi þess hversu margir af erlendum uppruna búa í sveitunum á sumrin.
3.
Fjölmenningarráð 2024
Málsnúmer 202402124
Rætt var hvort þörf væri fyrir einhvers konar viðhorfskönnun fyrir erlenda íbúa sveitarfélagsins. Væri þá einblínt á hvað þessum einstaklingum finnst helst vanta í sveitarfélagið, hvað er gott og hvað má fara betur.
Fjölmenningarráð styður hugmyndina um að senda út viðhorfskönnun. Verkefnastjóra falið að skoða málið betur.
4.
Alþjóðareldhús fjölmenning
Málsnúmer 202305115
Síðustu ár hefur alþjóðareldhúsið verið vinsæll fjölmenningarlegur viðburður í sveitarfélaginu. Stefnan er sett á að halda alþjóðareldhús þetta ár sömuleiðis og hefur hópur fólks sem hefur áhuga á að kynna sína menningu nú þegar haft samband við verkefnastjóra fjölmenningar- og gæðamála.
Fjölmenningarráð fagnar því að slíkur viðburður verði haldinn aftur og hlakkar til. Verkefnastjóra falið að vinna í punktunum sem teknir voru niður sem fyrst.