Fjölmenningarráð
17. fundur
5. júní 2024
kl.
16:15
-
17:15
í Miðgarði
Nefndarmenn
Nejra Mesetovic
formaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Málstefna
Fjölmenningarráð skoðaði Evrópska Tungumálarammann, tilvonandi mælitæki sem Sveitarfélagið Hornafjörður kemur til með að nota við ráðningar nýs starfsfólks.
Fjölmenningarráð telur að Evrópski Tungumálaramminn komi til með að hvetja umsækjendur til þess að tileinka sér íslenskuna betur, sem er án efa frábært. Á sama tíma telur ráðið þó að það þurfi að passa að ofmeta ekki þá íslenskuhæfni sem hvert starf auglýsir eftir því það gæti fælt umsækjendur af erlendum uppruna frá því að sækja um starfið.
Ráðið veltir fyrir sér hvort hægt væri að þróa samskonar mælitæki fyrir þá aðila sem nú þegar starfa fyrir sveitarfélagið vegna þess að tungumálaramminn virðist einungis gilda um nýráðningar. Að því sögðu er ráðið mjög ánægt með það að sveitarfélagið ætli að bjóða starfsfólki sínu upp á ársáskrift af Bara Tala appinu sem vonandi bætir íslenskuþekkingu sem flestra, sérstaklega í ljósi þess að vonandi getur starfsfólk nýtt sér appið á vinnutíma.

2.
Fjölmenningarráð 2024
Rútur varðandi Humarhátíð.
Verkefnastjóra fjölmenningar hefur ekki tekist að finna fyrirtæki til að taka að sér rútuferðir á Humarhátíð. Starfsmanni falið að skoða þetta nánar og sem fyrst þar sem stutt er í hátíðina.
3.
Fjölmenningarráð 2024
Fjallað um kynningu W.O.M.E.N (félag kvenna af erlendum uppruna á Íslandi) og sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur af erlendum uppruna næstkomandi helgi.
Frábært framtak sem fjölmenningarráð fagnar!