Fjölmenningarráð
18. fundur
14. ágúst 2024
kl.
16:15
-
17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
formaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Hverfisráð - Íbúaráð
Á síðasta fundi fjölmenningarráðs velti ráðið fyrir sér hvort raunhæft væri að erlendur íbúi sæti í hverju íbúaráði sveitarfélagsins í ljósi þess að einstaklingar með erlent ríkisfang eru um það bil þriðjungur íbúa og t.d. yfir 70% einstaklinga í póstnúmerinu 785. Fékk ráðið jákvæðar viðtökur við þessari hugmynd og verður henni fylgt eftir þegar framtíð íbúaráða sveitarfélagsins skýrast betur.
Fjölmenningarráð vonar að íbúaráðin haldi áfram starfsemi sinni og vonar þá sömuleiðis að geta unnið í nánara samstarfi við ráðin í ljósi gífurlegs fjölda erlends fólks í dreifbýli.
2.
Bara tala - smáforrit
Fyrr í sumar fékk hluti erlends starfsfólks sveitarfélagsins aðgang að Bara Tala, smáforriti sem kennir íslensku með aðstoð gervigreindar. Hafa mörg nú þegar notað forritið og sér verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála um eftirfylgni varðandi forritið. Flest eru nú komin með aðgang að forritinu og enn er verið að bæta við fólki þar sem þarf.
Fjölmenningarráð þakkar sveitarfélaginu fyrir að styrkja erlenda íbúa sveitarfélagsins með þessu móti, enda er tungumál mikilvægur þáttur hvað varðar tengingu aðila við samfélagið. Ráðið hlakkar til að fylgjast með framhaldinu.
3.
Verkefni Dr.Sigrúnar Ólafsdóttur á innflytjendum
Sigrún Ólafsdóttir, doktor í félagsfræði, fékk nýlega styrk frá Byggðastofnun til þess að rannsaka heilsu, ójöfnuð og velferðarkerfið með áherslu á innflytjendur. Tvö sveitarfélög verða skoðuð og er Hornafjörður annað þeirra. Auglýsing fer í loftið von bráðar þar sem einstaklingar geta haft samband til þess að bjóðast til að taka þátt sem viðmælendur en verður með öllum líkindum talað við í kringum 20 manns.
Rannsókn sem þessi er sveitarfélaginu mjög mikilvæg í ljósi þess að hún gerir grein fyrir því sem Sveitarfélagið Hornafjörður er að gera vel í málefnum innflytjenda og sýnir okkur þá sömuleiðis hvað við sem samfélag getum gert betur. Ráðið hvetur einstaklinga sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í viðtal.
4.
Styrkur SASS til fjölmenningarráðs
Seint á síðasta ári fékk fjölmenningarráð styrk frá SASS til þess að nýta í fjölmenningarmál. Fjölmenningarráð vildi helst nýta styrkinn til þess að bæta tenginu milli þétt- og dreifbýlis og ákvað í kjölfarið að stefna á að bjóða upp á rútuferðir á nokkra menningarviðburði á árinu. Það gekk ekki eins og átti, en styrkurinn rennur þó ekki út og þarf ráðið nú að ákveða framtíðina varðandi styrkinn.
Mikil umræða skapaðist um málið og starfsmanni ráðs falið að vinna frekar í málinu.