Fjölmenningarráð
19. fundur
9. október 2024
kl.
16:15
-
17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
formaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Styrkur SASS til fjölmenningarráðs
Ný hugmynd fjölmenningarráðs um hvernig nýta skal styrk frá SASS fyrir fjölmenningarmál í Sveitarfélaginu fékk góðar móttökur hjá SASS. Nú tekur við frekari skipulagning og gerð fjárhagsáætlunar.
Hugmyndin þróaðist enn meira og verkefnastjóra fjölmenningar- og gæðamála falið að vinna frekar í punktunum sem komu upp á fundinum.
2.
Samræmd móttaka flóttafólks
Sveitarfélagið Hornafjörður kemur til með að sækja um styrk til sveitarfélaga vegna þróunarverkefna sem tengjast samræmdri móttöku flóttafólks, sbr. 2. mgr. 4. gr. þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks. Starfsfólk á velferðarsviði, sem sér um umsóknina, hefur nú þegar verkefni í huga, en vilja endilega heyra skoðanir og hugmyndir ráðsins.
Hugmyndin var kynnt og ráðinu leist vel á hugmyndina og fagnar erindinu.
3.
Samræmd móttaka flóttafólks
7.-8. október síðastliðinn sótti verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála starfsdaga samræmdrar móttöku flóttafólks í Reykjavík. Allt gekk vel og fer starfsmaður nú stuttlega yfir helstu punkta með fjölmenningarráðinu.
Ráðið þakkar fyrir kynninguna og hlakkar til að skoða nýjar hugmyndir enn frekar.
4.
Upplýsingabréf til erlendra íbúa
Nýr upplýsingabæklingur sem sendur er til nýrra íbúa með erlent ríkisfang er nánast tilbúinn og leitar verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála eftir skoðun ráðsins á honum.
Ráðinu líst vel á nýjan bækling en bendir á að þurfi að uppfæra hann eftir þörfum og þá sömuleiðis upplýsingar fyrir erlenda íbúa á heimasíðu Hornfjarðar.