Fjölmenningarráð
20. fundur
11. desember 2024
kl.
16:15
-
17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
formaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir
embættismaður
Anna Birna Elvarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Styrkur SASS til fjölmenningarráðs
Líkt og áður hefur verið fjallað um, fékk fjölmenningarráð styrk frá SASS og var mikið rætt um hvernig ætti að nýta hann. Nú er hugmynd ráðsins orðin fullmótuð og hefur verið haft samband við þá samstarfsaðila sem kunna að koma að verkefninu. Allt skýrist frekar á næstu vikum og vonandi getur verkefnið farið í loftið í lok febrúar eða snemma í mars.
Góð umræða skapaðist um viðburðinn og allskonar hugmyndir um framkvæmd komu til máls. Starfsmanni fjölmenningarráðs falið að vinna frekar í hugmyndunum sem komu upp á fundinum.
2.
Upplýsingar á heimasíðu á ensku
Mikið af upplýsingum á ensku inná heimasíðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru orðnar úreltar og þarf að uppfæra. Nú þegar bæklingur með upplýsingum sem nýjir íbúar með erlent ríkisfang í sveitarfélaginu fá mánaðarlega, hefur verið uppfærður, er uppfærsla upplýsinga á heimasíðu næsta skref.
Margar góðar ábendingar og hugmyndir varðandi nýtt efni á heimasíðu sveitarfélagsins komu. Bendir ráðið á að síður vissra sveitarfélaga eru til fyrirmyndar varðandi upplýsingagjöf til erlendra íbúa og væri gaman ef Sveitarfélagið Hornafjörður gerði slíkt hið sama. Starfsmanni ráðs falið að skoða þetta betur.
3.
Fjölmenningarráð 2024
Nýlega kom upp hugmynd um að fjölmenningarráði gæfist tækifæri á að fara í einhvers konar vettvangsferð/fræðsluferð í sveitarfélag þar sem er virkt fjölmenningarráð starfar sömuleiðis og kynnast þeirra verkefnum betur.
Fjölmenningarráð fagnar þessu og finnst frábær hugmynd og vonar að hún verði að veruleika. Sömuleiðis hefur fjölmenningarráð áhuga á að fá önnur fjölmenningarráð til sín og kynnast þeirra vinnu betur. Ráðið hvetur starfsmann ráðs til að halda áfram virku sambandi við önnur fjölmenningarráð á suðurlandi og jafnvel á landsvísu.