Fara í efni

Fjölmenningarráð

22. fundur
29. apríl 2025 kl. 16:15 - 17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic formaður
Matsupha Brynjulfsson aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson aðalmaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Styrkur SASS til fjölmenningarráðs
Málsnúmer 202408045
Fjölmenningarleg bíó- og matarkvöld hafa gengið frábærlega. Góð mæting hefur verið á öll kvöld og enn er eitt eftir sem skráning gengur vel á.
Fjölmenningarráð er virkilega ánægt með hvernig viðburðirnir hafa gengið fyrir sig og vonast til að geta endurtekið leikinn. Miklar hugmyndir um hvernig ráðið myndi vilja hafa viðburðina í framtíðinni voru ræddar og hvetur ráðið fólk til að skrá sig á síðasta kvöldið sem er nú 11. maí.
2.
Fræðslumyndband fjölmenningarráðs
Málsnúmer 202502047
Á síðustu fundum hefur möguleg gerð kynningarmyndbands fyrir fjölmenningu í Sveitarfélaginu Hornafirði verið rædd. Ungmennaráð Sveitarfélagsins gerði myndband sem var til fyrirmyndar og þaðan kom hugmyndin um að framkvæma eitthvað svipað hvað varðar fjölmenninguna. Rætt var um hvað ráðinu þætti mikilvægast að kæmi fram í myndbandinu svo hægt sé að fá vissa hugmynd um t.d. lengd þess og hægt að gera kostnaðaráætlun.
Fjölmenningarráð styður þá hugmynd að búa til einhvers konar fræðslumyndband segir frá fjölmenningu sveitarfélagsins. Starfsmanni ráðsins falið að skoða framhaldið betur.