Fjölmenningarráð
24. fundur
26. ágúst 2025
kl.
16:15
-
17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
formaður
Matsupha Brynjulfsson
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Samstarfs- og nýsköpunarstyrkir til íslenskunáms innflytjenda
Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir lausa til umsóknar styrki til að efla samstarf og nýsköpun í íslenskunámi innflytjenda. Ráðið ræddi möguleg verkefni.
Ráðið kom með tvær flottar hugmyndir og felur verkefnastjóra að vinna frekar í þeim og umsóknunum.
2.
Styrkumsóknir fjölmenningarráðs
Alþjóðleg bíó/matarkvöld sem fjölmenningarráð hélt fyrri part síðasta árs gengu vonum framar. Líkt og fjallað var um á síðasta fundi, hefur ráðið áhuga á að endurtaka leikinn, en þó með smávægilegum breytingum sem voru ræddar.
Ráðið ræddi hvernig næsta útfærsla gæti farið fram og verkefnastjóra falið að vinna í styrkumsókn.
3.
Bara tala - smáforrit
Leyfi sveitarfélagsins að íslenskukennslu smáforritinu Bara tala var endurnýjað núna í sumar. Farið var yfir notendavirkni.
Frábært að sjá hvað notkuninn er góð og að sveitarfélagið hafir endurnýjað samninginn. Gott væri þó að kynna þetta aftur því þrátt fyrir að mörg noti þetta, eru enn mörg sem gera það ekki.